Fréttatíminn - 19.04.2013, Blaðsíða 58
Hamraborg – Nóatún 17 – Hr ingbraut – Austurver – Grafarho l t
KjúKlingamáltíð fyrir 4
Grillaður kjúklingur – heill
Franskar kartöflur – 500 g
Kjúklingasósa – heit, 150 g
Coke – 2 lítrar*
*Coca-Cola, Coke Light
eða Coke Zero
1990,-
Verð aðeins
+ 1 flaska af
2 L
F erdinand Jónsson geðlækn-ir sinnir okkar minnstu bræðrum í Tower Hamlets í
miðborg Lundúna en margir skjól-
stæðinga hans eru heimilislausir.
Læknirinn á auðveldast með að færa
tilfinningar sínar í orð á íslensku og
leyfir þeim að flæða fram í ljóðum en
hann hefur fengist við yrkingar í tvo
áratugi. Hann hefur nú tekið saman
safn ljóða á bókina Innsævi þar sem
heimþrá Íslendingsins í útlöndum
bergmálar um síðurnar.
„Ég valdi úr stórum bunka og
ákvað bara að láta slag standa og
vera kaldur,“ segir Ferdinand sem
tengist fósturjörðinni sterkum bönd-
um. „ Ég er eins og svo margir aðrir
mikið tengdur landinu og tungunni
og næ dýpstri tilfinningalegri tján-
ingu á íslensku. Þannig að ljóðheim-
urinn er svona hér um bil allur ís-
lenskur.“
Ferdinand hefur búið í Bretlandi
í um það bil sextán ár og þótt hug-
urinn stefni alltaf heim þá hefur
hann ílengst í London. Ekki síst
vegna þess að þar hefur hann feng-
ið spennandi viðfangsefni og störf
sem hann segir þess eðlis að hann
sé í raun alltaf að læra. Hann er geð-
læknir í TowerHamlets í miðborg
Lundúna og sinnir þar þeim sem
minnst mega sín.
„Ég er „Consultant psychiatrist“
eða yfirlæknir, eins og það myndi
útleggjast á íslensku, meðal annars
vinn ég á stórri heilsugæslustöð á
Brick Lane í Austur-London fyrir
heimilislausa.
Þar er ég með göngudeild og lít
eftir öllu því fólki sem þarf að leggj-
ast inn á spítala og fylgi því eftir,
Vitaskuld er mikið um geðsjúkdóma
hjá heimilislausu fólki. Þarna er líka
saman komið fólk alls staðar að úr
veröldinni sem hefur einhvern veg-
inn lent á botninum í samfélaginu.
Vinnan með þessu fólki er mjög
áhugaverð. Í fyrsta lagi vegna þess
að þú áttar þig á því að mannskepn-
an er í eðli sínu alltaf sjálfri sér lík
Ekkert hreinsar hugann og
hleður batteríin betur en að
eltast við einhverja haferni
í tilkomumiklu landslagi.
Ferdinand Jónsson Geðlæknir með lJóðabók
Ljóðið læknar og líknar
Ferdinand Jónsson
starfar sem geð-
læknir í einu fátæk-
asta hverfi London
þar sem hann hefur
búið í ein sextán
ár. Hugurinn leitar
stöðugt heim til Ís-
lands en spennandi
verkefni í Bretlandi
hafa aftrað heimför
árum saman. Ferdin-
and hefur ort ljóð í
tvo áratugi og sendir
nú frá sér sína fyrstu
ljóðabók, Innsævi.
Sterkar taugar
hans til heima-
landsins ganga sem
leiðarminni í gegnum
bókina og ljóðin þar
sem einlægur nátt-
úruunnandi horfir
heim úr fjarska.
Ferdinand Jónsson, ljóðskáld og geðlæknir, sinnir fátæku fólki í London en sækir innblástur
í íslenska náttúru. Hann segir tilfinninguna sem hellist yfir hann úti í náttúrunni ákaflega
líknandi. „Ég er að reyna að koma þessari tilfinningu í orð.“
og við erum öll meira og minna eins
hvaðan sem við komum eða hverju
sem við trúum. Fókið er einnig oft
geysi þakklátt fyrir hjálpina og tekur
á stundum miklum framförum með
réttum greiningum og meðferð.
Þetta eru oft alveg einstaklega stór-
ar og mikilfenglegar manneskjur.“
Ferdinand hefur frá unga aldri
haft mikinn áhuga á náttúruvernd
og hefur sérstakan áhuga á fuglum
og ljóðin í bókinni bera þess mörg
merki. „Í Bretlandi er fuglaskoðun
mjög algengt áhugamál og þykir ef
til vill ekki eins „dularfull“ og heima
á Íslandi. Ég yrki meðal annars um
geirfuglinn. Það er að mínu mati
ákveðinn harmur, sem mér finnst
að við eigum að bera með okkur, að
geirfuglinn dó út á Íslandi. En þá var
þjóðin bláfátæk og átti ekki ofan í
sig og á þannig að maður getur því
ekki sagt mikið. Harmurinn getur
samt þjónað þeim tilgangi að við
vöndum okkur í þessum málum.
Þessi tegund hefði alveg ábyggilega
getað lifað ef hún hefði ekki orðið
fyrir svona gegndarlausum ofsókn-
um. Ég geri mikið af því að skoða
fugla í fríum á Íslandi en þótt ég kalli
þetta fuglaskoðun þá er þetta meira
bara náttúruskoðun. Ekkert hreins-
ar hugann og hleður batteríin betur
en að eltast við einhverja haferni í
tilkomumiklu landslagi. Við getum
ekki metið til fjár hversu dýrmæt
þessi mikla auðlegð, sem við eigum
í landinu og náttúrunni heima, er.“
Þótt geðlæknirinn reiði sig á
lækna- og lyfjavísindi í starfi sínu
telur hann ljóðið ekki síður geta
borið í sér ákveðinn lækningarmátt.
„Ég er í þeim bransa að lækna og
líkna og það smitast ef til vill yfir
í ljóðagerðina hjá mér. Og ég vona
að með því að deila þessum ljóðum
þá geti ég kannski hjálpað einhverj-
um. Ég yrki um veikindi og margs-
konar tilfinningar, bæði erfiðar en
sammannlegar, og þótt lyfin séu nú
oft mjög góð þá held ég að ljóð geti
einnig líknað.“
Þórarinn Þórarinsson
toti@frettatiminn.isMiðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is
Mary Poppins (Stóra sviðið)
Fös 19/4 kl. 19:00 aukas Lau 11/5 kl. 19:00 Mið 5/6 kl. 19:00 aukas
Lau 20/4 kl. 19:00 aukas Sun 12/5 kl. 13:00 Fim 6/6 kl. 19:00
Sun 21/4 kl. 19:00 12.k Mið 15/5 kl. 19:00 aukas Fös 7/6 kl. 19:00
Mið 24/4 kl. 19:00 Fim 16/5 kl. 19:00 Lau 8/6 kl. 19:00
Fös 26/4 kl. 19:00 aukas Fös 17/5 kl. 19:00 Sun 9/6 kl. 13:00
Lau 27/4 kl. 19:00 Lau 18/5 kl. 19:00 Fös 6/9 kl. 19:00 ný sýn.
Sun 28/4 kl. 13:00 Mán 20/5 kl. 13:00 aukas Lau 7/9 kl. 19:00 ný sýn.
Þri 30/4 kl. 19:00 aukas Fim 23/5 kl. 19:00 Sun 8/9 kl. 15:00 ný sýn.
Fim 2/5 kl. 19:00 aukas Lau 25/5 kl. 19:00 aukas Fim 12/9 kl. 19:00 ný sýn.
Fös 3/5 kl. 19:00 Sun 26/5 kl. 13:00 Fös 13/9 kl. 19:00 ný sýn.
Lau 4/5 kl. 19:00 Mið 29/5 kl. 19:00 aukas Lau 14/9 kl. 19:00 ný sýn.
Sun 5/5 kl. 13:00 Fim 30/5 kl. 19:00 aukas Sun 15/9 kl. 15:00 ný sýn.
Mið 8/5 kl. 19:00 aukas Fös 31/5 kl. 19:00 Fim 19/9 kl. 19:00 ný sýn.
Fim 9/5 kl. 14:00 Lau 1/6 kl. 13:00 Fös 20/9 kl. 19:00 ný sýn.
Fös 10/5 kl. 19:00 Sun 2/6 kl. 13:00 aukas Lau 21/9 kl. 19:00 ný sýn.
Einn vinsælasti söngleikur heims, loks á Íslandi. Nýjar sýningar komnar í sölu!
Gullregn (Stóra sviðið)
Mið 12/6 kl. 20:00 Fös 14/6 kl. 20:00
Fim 13/6 kl. 20:00 Lau 15/6 kl. 20:00 lokas
Frumraun Ragnars Bragasonar í leikhúsi. Nýjar aukasýningar. Síðustu sýningar.
Mýs og menn (Stóra sviðið)
Fös 24/5 kl. 20:00 aukas Lau 1/6 kl. 20:00 aukas Sun 9/6 kl. 20:00 lokas
Sun 26/5 kl. 20:00 aukas Sun 2/6 kl. 20:00 aukas
Meistaraverkið eftir John Steinbeck. Nýjar aukasýningar. Síðustu sýningar.
Svar við bréfi Helgu (Nýja sviðið)
Mið 24/4 kl. 20:00 19.k Þri 30/4 kl. 20:00 Sun 5/5 kl. 20:00
Fim 25/4 kl. 20:00 20.k Fös 3/5 kl. 20:00
Lau 27/4 kl. 20:00 Lau 4/5 kl. 20:00
Byggt á metsölubók Bergsveins Birgissonar. Snýr aftur í takmarkaðan tíma.
Núna! (Litla sviðið)
Þri 23/4 kl. 20:00 4.k Þri 14/5 kl. 20:00 Þri 28/5 kl. 20:00
Sun 28/4 kl. 20:00 5.k Mán 20/5 kl. 20:00 Þri 4/6 kl. 20:00 lokas
Þri 7/5 kl. 20:00 Þri 21/5 kl. 20:00
Sun 12/5 kl. 20:00 Mið 22/5 kl. 20:00
Þrjú ný íslensk verk eftir ung og öflug leikskáld í einni sýningu
Tengdó (Litla sviðið)
Fös 19/4 kl. 20:00 aukas Lau 4/5 kl. 20:00 25.k Fim 23/5 kl. 20:00
Lau 20/4 kl. 20:00 20.k Sun 5/5 kl. 20:00 Lau 25/5 kl. 20:00
Sun 21/4 kl. 20:00 21.k Fim 9/5 kl. 20:00 aukas Sun 26/5 kl. 20:00
Mið 24/4 kl. 20:00 22.k Fös 10/5 kl. 20:00 Fös 31/5 kl. 20:00
Fim 25/4 kl. 20:00 aukas Lau 11/5 kl. 20:00 Lau 1/6 kl. 20:00
Lau 27/4 kl. 20:00 23.k Fim 16/5 kl. 20:00 Sun 2/6 kl. 20:00 lokas
Fim 2/5 kl. 20:00 aukas. Fös 17/5 kl. 20:00
Fös 3/5 kl. 20:00 24.k Lau 18/5 kl. 20:00
Grímusýning síðasta leikárs snýr aftur!
Íslenski Dansflokkurinn: Walking Mad (Stóra sviðið)
Fim 25/4 kl. 20:00 3.k Fim 9/5 kl. 20:00 Þri 28/5 kl. 20:00
Sun 28/4 kl. 20:00 4.k Sun 12/5 kl. 20:00
Sun 5/5 kl. 20:00 5.k Mán 20/5 kl. 20:00
Tvö verk á einu kvöldi: Walking Mad og Ótta - húmor, galsi og geðveiki
Mary Poppins – HHHHH – MLÞ, Ftíminn
Hverfisgötu 19 551 1200 leikhusid.is midasala@leikhusid.is
VIÐ SÝNUM TILFINNINGAR
Englar alheimsins (Stóra sviðið)
Fös 19/4 kl. 19:30 Fors. Lau 4/5 kl. 19:30 5.sýn Lau 25/5 kl. 19:30 12.sýn
Lau 20/4 kl. 19:30 Frums. Mið 8/5 kl. 19:30 6.sýn Fim 30/5 kl. 19:30 13.sýn
Mið 24/4 kl. 19:30 Aukas. Fös 10/5 kl. 19:30 7.sýn Fös 31/5 kl. 19:30
Fös 26/4 kl. 19:30 2.sýn Lau 11/5 kl. 19:30 Aukas. Lau 1/6 kl. 19:30
Lau 27/4 kl. 19:30 3.sýn Fim 16/5 kl. 19:30 8.sýn Fös 7/6 kl. 19:30
Sun 28/4 kl. 19:30 Aukas. Fös 17/5 kl. 19:30 9.sýn Lau 8/6 kl. 19:30
Fim 2/5 kl. 19:30 Aukas. Fim 23/5 kl. 19:30 10.sýn Fös 14/6 kl. 19:30
Fös 3/5 kl. 19:30 4.sýn Fös 24/5 kl. 19:30 11.sýn Lau 15/6 kl. 19:30
Ein vinsælasta íslenska skáldsaga síðari ára í nýrri leikgerð
Kvennafræðarinn (Kassinn)
Fös 19/4 kl. 19:30 2.sýn Fös 3/5 kl. 19:30 7.sýn Fös 24/5 kl. 19:30
Lau 20/4 kl. 19:30 3.sýn Lau 4/5 kl. 19:30 8.sýn Lau 25/5 kl. 19:30
Mið 24/4 kl. 19:30 4.sýn Fös 10/5 kl. 19:30 9.sýn Fös 31/5 kl. 19:30
Fös 26/4 kl. 19:30 5.sýn Lau 11/5 kl. 19:30 Lau 1/6 kl. 19:30
Lau 27/4 kl. 19:30 6.sýn Fim 16/5 kl. 19:30
Hver er ekki upptekin af kvenlíkamanum?
Dýrin í Hálsaskógi (Stóra sviðið)
Sun 21/4 kl. 13:00 Sun 28/4 kl. 13:00 Sun 5/5 kl. 14:00
Eitt ástsælasta barnaleikrit á Íslandi
Karíus og Baktus (Kúlan)
Lau 20/4 kl. 13:30 Lau 4/5 kl. 13:30 Lau 25/5 kl. 13:30
Lau 20/4 kl. 15:00 Lau 4/5 kl. 15:00 Lau 25/5 kl. 15:00
Lau 27/4 kl. 13:30 Lau 11/5 kl. 13:30
Lau 27/4 kl. 15:00 Lau 11/5 kl. 15:00
Frábært leikrit sem á erindi við alla krakka
Karma fyrir fugla (Kassinn)
Lau 8/6 kl. 19:30 aukas. Sun 9/6 kl. 19:30 aukas.
Síðasta sýning 7.apríl
Hvörf (Kúlan)
Fös 3/5 kl. 19:00 Aðalæf Mið 8/5 kl. 19:00 Sun 12/5 kl. 19:00
Lau 4/5 kl. 19:00 Frums. Fös 10/5 kl. 19:00
Sun 5/5 kl. 19:00 Lau 11/5 kl. 19:00
Uppistand - Mið-Ísland (Þjóðleikhúskjallarinn)
Fös 19/4 kl. 20:00 Síðasta
sýn.
Ef hláturinn lengir lífið stefnir Mið-Ísland á ódauðleika!
Gilitrutt (Brúðuloftið)
Lau 20/4 kl. 13:30 Lau 27/4 kl. 13:30
Lau 20/4 kl. 15:30 Lau 27/4 kl. 15:30
Skemmtileg brúðusýning fyrir börn
58 menning Helgin 19.-21. apríl 2013