Fréttatíminn - 19.04.2013, Blaðsíða 37
LEIÐIN TIL
HOLLUSTU
www.skyr.is
Norræna matvælamerkið
Skráargatið auðveldar þér að
velja holla matvöru. Vörur með
Skráargatinu verða að uppfylla
ákveðin næringarviðmið og er
merking fyrir þær matvörur
sem teljast hollastar í sínum
fæðuflokki.
Skyr.is drykkirnir standast
þessar ströngu kröfur, þú getur
því treyst á hollustu Skyr.is.
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
Ungur og saklaus
Alfreð Finnbogason.
miklu jafnari. Það hjálpar auðvitað
til að fá að spila í hverri viku.“
En þetta hefur ekki alltaf gengið
jafn vel. Þú fórst út í atvinnu-
mennsku til Lokeren í Belgíu en
þar fékkstu lítið sem ekkert að
spila. Hvernig leið þér þá?
„Það var í hreinskilni sagt skelfi-
legt. Þetta er náttúrlega vinnan
manns og þetta var fyrsta tíma-
bilið mitt erlendis. Maður óttast
alltaf það versta en innst inni hafði
ég alltaf trú á sjálfum mér. Það var
kannski gott að þetta gerðist svona
snemma á ferlinum. Þá hvetur
þetta mann bara áfram og það
kemur ekki til greina að komast
aftur í þessa stöðu,“ segir Alfreð
sem ákvað að söðla um og fór á
láni til sænska liðsins Helsingborg.
Þar gekk honum allt í haginn.
Hann skoraði 12 mörk í 17 leikjum
og allt stefndi í að hann myndi
semja við liðið til frambúðar. „Það
voru tvö eða þrjú lið í Danmörku
sem ég gat farið til og líka lið í
Svíþjóð. Ég var búinn að ákveða
að vera áfram í Helsingborg þegar
tilboðið kom frá Heerenveen. Ég
þurfti að taka ákvörðun um þetta á
einum degi og ákvað að kýla á það.
Ég vissi ekkert fyrirfram að allt
myndi lukkast svo vel. Það eru svo
margir óvissuþættir þegar maður
skiptir um lið; meiðsli, hvernig
þú byrjar hjá félaginu og fleira.
Sem betur fer lukkaðist allt vel og
„the rest is history“,“ segir hann
glaðbeittur.
Svo bárust fréttir af því að mold-
ríkir Rússar hafi verið að reyna að
kaupa þig í félagsskiptaglugganum
í janúar.
„Já, það voru fyrirspurnir frá
Austur-Evrópu en það hefði veri
órökrétt skref hjá mér. Ég var
búinn að spila með þremur liðum
á einu ári og vildi frekar taka heilt,
gott tímabil hér í Hollandi.“
Spenntur fyrir þýsku deildinni
Hvað gerist svo í sumar? Það eru
ýmsar sögusagnir um að stór lið
fylgist með þér.
„Það verður bara að koma í ljós.
Það eru ýmsar þreifingar í gangi
og mikill áhugi en það er langur
vegur í að eitthvað verði að veru-
leika. Mörg af þessum stóru liðum
eru með lista yfir leikmenn sem
þau vilja og ég er örugglega á lista
hjá mörgum liðum.“
Ef til þess kemur, hvar viltu
helst spila?
„Ég er með plan í hausnum
sem ég setti upp áður en ég kom
hingað. Þau lönd sem eru með
stærri deildir en hér í Hollandi eru
Spánn, Ítalía, England og Þýska-
landi. Því meira sem ég horfi á
þýsku deildina, þeim mun hrifnari
verð ég af henni. Þar eru alltaf
fullir vellir og kúltúrinn kringum
fótboltann er skemmtilegur. Þeir
leikmenn sem ég hef spilað með
láta líka vel af þýsku deildinni.
En mestu máli skiptir að komast í
góðan klúbb.“
Fjölskyldan lifir sig inn í þetta
„Ég er alveg að rifna úr stolti. Facebook-
vinir mínir eru örugglega orðnir mjög
þreyttir á mér, klikkuðu mömmunni sem
er að springa úr ánægju með strákinn
sinn. En þetta hefur bara gengið svo vel
að það liggur við að maður verði spældur
ef hann skorar ekki,“ segir Sesselja Pét-
ursdóttir, móðir Alfreðs Finnbogasonar.
Sesselja segir að fjölskyldan og vinir
gleðjist yfir góðum árangri Alfreðs.
„Pabbi var sjálfur landsliðsmaður í ýms-
um íþróttum og hann lifir sig þvílíkt inn
í þetta,“ segir hún. Sesselja kveðst hafa
farið nokkrum sinnum út til að heimsækja soninn
í vetur, meðal annar með foreldrum sínum. „Svo
fór ég um páskana þegar hann var maður leiksins á
móti Feyenoord. Það var frábært að vera á leiknum
með 26 þúsund manns þar sem allir voru trylltir.
Svo var líka skrítið að sjá hann veita
eiginhandaráritanir eftir leikinn og að
sjá hvað horft var á hann þegar við fórum
út í búð. Maður hugsaði bara, er þetta
strákurinn minn?“
Sesselja kveðst ekki hafa getað séð
fyrir að Alfreð myndi ná svona langt en
hún rifjar upp eitt augnablik frá því fjöl-
skyldan bjó í Skotlandi þegar Alfreð var
átta eða níu ára. „Honum gekk vel með
liði sem hann spilaði með, skoraði mikið
og var alltaf að fá verðlaun. Svo var þarna
eldri maður sem var alltaf að skrifa um
hann í lókal blað þarna í Edinborg. Hann tók einu
sinni viðtal við okkur fjölskylduna og ég spurði
hann af hverju hann væri að þessu. „Hann er bara
„natural born talent“,“ var svarið. Kannski sá hann
eitthvað sem ég sá ekki.“
Alfreð og Sesselja mamma hans með blómvönd sem hann fékk fyrir að vera valinn maður
leiksins á móti Feyenoord á dögunum. Alfreð skoraði og lagði upp mark í 2-0 sigri.
framhald á næstu opnu
viðtal 37 Helgin 19.-21. apríl 2013