Fréttatíminn


Fréttatíminn - 19.04.2013, Blaðsíða 56

Fréttatíminn - 19.04.2013, Blaðsíða 56
56 bíó Helgin 19.-21. apríl 2013 Ég held að það sé auðveldara fyrir okkur að meðtaka söguna í dag.  Falskur Fugl Enn Ein íslEnsk F alskur fugl er fjórða íslenska kvikmyndin sem er frumsýnd frá áramótum. Jón Atli Jónasson skrifaði handrit myndarinnar upp úr samnefndri skáldsögu Mikaels Torfasonar. Falskur fugl er fyrsta mynd leikstjór- ans Þórs Ómars Jónssonar í fullri lengd. Falskur fugl er fyrsta skáldsaga Mikaels og kom út árið 1997 og vakti mikla athygli enda bæði kraftmikil og ofbeldisfull en hún segir frá Arnaldi Gunnlaugssyni, sextán ára syni vel stæðra hjóna sem reynir að komast yfir sjálfsvíg eldri bróður síns. Arnaldur er truflaður á geði, andfélagslegur og vægast sagt erfiður og rang- hugmyndir hans leiða hann í ógöngur sem enda með skelfingu. Þór Ómar segir geðsjúka aðalpersónuna hafa flækt handritsvinnuna. „Okkur reyndist erfiðara en við héldum í upphafi að koma saman almennilegu handriti. Bókin hans Mikka er bara svo ofboðslega ofbeldisfull og Arnaldur svo geðsjúkur að okkur reyndist erfitt að koma honum til skila án þess að þetta yrði bara eins og American Psycho,“ segir Þór sem hafði áhyggjur að sem slíkur yrði Arnaldur of fráhrindandi. Þór og Jón Atli kynntust við gerð kvikmyndarinnar Popp í Reykjavík 1998 og þá strax stakk Jón Atli upp á því að þeir myndu gera sína eigin bíómynd. Jón Atli og Mikael eru miklir vinir og þannig var Falskur fugl fljótt kominn í brennidepil. Allt gekk þetta þó mun hægar en félagarnir lögðu upp með þannig að Þór segir tilfinninguna núna að vonum vera góða, þegar myndin er loksins tilbúin. „Það eru sextán ár síðan bókin kom út og við færum söguna yfir í samtíma okkar. Ég man að þegar ég las bók- ina á sínum tíma fannst mér sá veruleiki sem hún lýsti mjög fjarlægur raunveru- leika þess tíma,“ segir Þór sem telur Mikael vægast sagt spámannlega vaxinn þar sem hann fæst í Fölskum fugli við eitthvað sem þykir nánast daglegt brauð í dag. „Ég held að það sé auðveld- ara fyrir okkur að meðtaka söguna í dag og bara miðað við fréttir af því sem er að gerast í samfélaginu núna þá held ég að heimur myndar- innar sé meira eins og sá heimur sem við búum í í dag.“ Styr Júlíusson leikur Arn- ald og leikstjórinn er hæst ánægður með hversu góð skil ungi maðurinn gerir hinum afvegaleidda unglingi. „Styr datt bara í raun og veru upp í hendurnar á okkur en Jón Atli þekkti til hans,“ segir leikstjórinn. „Við hittum hann nokkrum sinnum og ég var einhvern veginn sannfærður um að hann myndi valda þessu og hann gerir þetta alveg ótrúlega vel, þannig að ég get ekki verið neitt annað en ánægður með útkomuna,“ segir Þór Ómar sem frum- sýnir Falskan fugl í dag, föstudag. Straumur íslenskra bíómynda í kvikmyndahús hefur verið stríður síðan í janúar þegar XL var frumsýnd. Þetta reddast kom síðan í kjölfarið og Ófeigur gekk aftur um páskana og nú flýgur Falskur fugl í bíó. Þetta er fyrsta mynd leikstjórans Þórs Ómars Jónssonar í fullri lengd en hún er byggð á samnefndri fyrstu skáldsögu Mikaels Torfasonar sem kom fyrst út fyrir sextán árum. Þórarinn Þórarinsson toti@frettatiminn.is Forðuðust að gera Arnald að American Psycho Þór Ómar sleppir Fölskum fugli lausum eftir áralangt streð við að koma þessari fyrstu skáld- sögu Mikaels Torfasonar á hvíta tjaldið. Ljósmynd/Hari Catherine Deneuve sturlast í einverunni í Repulsion.  Frumsýnd Olympus Has FallEn Die Hard í Hvíta húsinu Ferill leikstjórans Antoine Fuqua hefur verið brokkgengur en hæst reis hann 2001 með löggumyndinni Training Day sem skilaði Denzel Washington óskarsverðlaunum fyrir frábæra túlkun á ger- spilltum lögreglumanni. Í Olympus Has Fallen teflir Fuqua Gerard Butler fram í miklum jötunmóð í spennumynd sem segja má að sé einhvers konar Die Hard í Hvíta húsinu. Allsherjar uppnám verður í Bandaríkjunum þegar hryðjuverka- menn yfirtaka Hvíta húsið, stráfella öryggisverði og ná forsetanum á sitt vald. Skúrkarnir reikna þó ekki með lífverðinum Mike Bann- ing (Butler) sem er á lífi í rústunum og ætlar sér ekki að gefast upp fyrr en í fulla hnefana. Kunnuglegt? Aaron Eckhart leikur forsetann en í öðrum hlutverkum er öndvegisfólkið Morgan Freeman, Ashley Judd, Dylan McDermott, Radha Mitchell, Angela Bassett, Cole Hauser og Sean O'Bryan.  svartir sunnudagar rEpulsiOn Polanski á mörkum raun- veruleika og ímyndunar Sá umdeildi leikstjóri Roman Polanski fær að njóta sín í Bíó Paradís á svörtu sunnudagskvöldi þegar áhorfendum verður boðið upp á Repulsion frá 1965. Catherine Deneuve er í aðalhlutverki myndarinnar og leikur unga konu sem býr með eldri systur sinni. Þegar systirin og nýi kærastinn hennar fara út úr bænum og unga konan er orðin ein í íbúðinni fyll- ist hún ótta, missir öll tök og mörk raunveruleika og ímyndunar verða stöðugt óljósari. Myndin var á sínum tíma fyrst og fremst talin takast á við geðveiki en eftir því sem umræðan um kynferðislega misnotkun hefur opnast blasir við flestum að Polanski og handritshöfundurinn Ger- ald Brach voru í myndinni að fást við það mikla tabú sem lá í þagnargildi fyrir hart nær hálfri öld. Repulsion verður sýnd í Bíó Paradís sunnudaginn 21. apríl klukkan 20. Gerard Butler hefur verið að festa sig í sessi í harðhausadeildinni eftir að hann lék Leonídas Spartverjakonung, útblásinn af testósteróni, í 300 fyrir nokkrum árum og nú ræðst hann einn síns liðs gegn hryðjuverkamönnum í Hvíta húsinu. HANNAH ARENDT LAU & SUN: 17:50, 20:00 (12) REPULSION SUN: 20:00 (16) SKÓLANEMAR: 25% AfSLáTTUR gEgN fRAMvíSUN SKíRTEINIS! MEÐ STUÐNINGI REYKJAVÍKURBORGAR & KVIKMYNDAMIÐSTÖÐVAR ÍSLANDS - MIÐASALA: 412 7711 Fæst í apótekum Ert þú búin að prófa ? Ferming í Langholtskirkju á sumardaginn fyrsta 25.apríl 2013, kl.11:00 Prestur: Kristín Pálsdóttir Andrea Elizabeth Gavern Gullsmára 10, 201 Kópavogi. Aníta Sól Sveinsdóttir Engjaseli 74, 109 Reykjavík. Daníel Þorsteinsson Barðavogi 24, 104 Reykjavík. Helga Bergmann Sigfúsdóttir Reykjabyggð 16, 270 Mosfellsbæ. Hörður Elí Kristmundsson Holtabyggð 6, 220 Hafnarrði. Juste Sarkauskaité Vesturbergi 144, 111 Reykjavík. Kristjana Halldórsdóttir Fannafold 189, 112 Reykjavík. Sverrir Ásgeirsson Dalhúsum 81, 112 Reykjavík. Langholtskirkja Sólheimum 13 104 Reykjavík
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.