Fréttatíminn


Fréttatíminn - 19.04.2013, Blaðsíða 70

Fréttatíminn - 19.04.2013, Blaðsíða 70
2 brúðkaup Helgin 19.-21. apríl 2013 V ið brúðkaupsund­ irbúninginn eyddi Helga miklum tíma í að finna rétta kjólinn en í byrjun gekk leitin ekki sem skyldi. „Ég fór á brúða­ kjólaleigur en fann ekki neitt. Mig langaði líka að kaupa kjól en þeir voru allir svo dýrir.“ Svo skoðaði Helga saumastofur á netinu og kom auga á eina í Kína sem margir höfðu mælt með. Helga ákvað að taka áhættuna og sendi mynd af draumkjólnum og málin sín til saumastofunnar í Kína og hugsaði með sér að þó pöntunin myndi mis­ takast yrði það samt þess virði að prófa. Helga sér ekki eftir að hafa tekið áhættuna því bæði smell­ passaði kjóllinn og var alveg eins og draumakjólinn á myndinni sem hún sendi. Meðan á saumaskapnum stóð fékk Helga að fylgjast vel með og fékk senda mynd þegar kjóllinn var næstum því tilbúinn. „Það besta var að kjóllinn kostaði aðeins 15.000 krónur með öllu og þá eru sendingarkostnaður og tollar inni­ faldir. Kjóllinn er úr silki og mjög vel saumaður.“ Þremur vikum fyrir brúðkaupið kom kjóllinn svo til Ís­ lands. Orðspor saumastofunnar góðu í Kína hefur spurst út og hafa margar vinkvenna Helgu og þeirra vinkonur nýtt sér þjónustuna. „Hjá öllum sem ég hef heyrt af hefur þetta gengið rosalega vel og kjól­ arnir verið vel saumaðir,“ segir Helga.“ Á brúðkaupsdaginn bar Helga belti sem er í eigu tengdafjölskyld­ unnar og aðeins konur sem borið hafa nafnið Kristín og Ingibjörg hafa gift sig með. Beltið er eitt af þremur sem Eiríkur Sverressen, sýslumaður í Rangárvallasýslu, lét smíða fyrir dætur sínar um árið 1840. Ein þeirra var Ingibjörg langalangamma Soffíu Ingibjargar Guðmundsdóttur tengdamóður Helgu Kristínar. Talið er að eitt beltanna sé á Þjóðminjasafninu en ekki er vitað hvar það þriðja er. Talið er að beltið hafi verið smíðað í Englandi en ættin kemur frá Bol­ holti. „Þetta belti hefur verið látið ganga frá Ingibjörgu til Kristínar svo lengi sem við munum,“ segir Helga sem svo heppilega vill til að ber millinafnið Kristín.  Draumakjóllinn Fann ekkert á brúðkjólaleigunum Pantaði brúðarkjól frá Kína Þegar Helga Kristín Auðuns- dóttir giftist eiginmanni sínum, Einari Þorsteins- syni, fann hún kínverska sauma- stofu á netinu og lét sauma draumakjólinn sem smellpass- aði. Við kjólinn bar Helga belti sem verið hefur í eigu tengdafjöl- skyldunnar í nær tvö hundruð ár. Helga Kristín Auðunsdóttir í brúðarkjólnum ásamt eigin- manni sínum, Einari Þor- steinssyni. VERÐ FRÁ 6.990 KR. EINTAKIÐ Hannaðu þína eigin myndabók á oddi.is Farðu inn á www.oddi.is og búðu til persónulega gjöf. Vegleg innbundin myndabók með þínum myndum. Belladonna á Facebook Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517 6460 • www.belladonna.is Mikið úrval af léttum yfirhöfnum Stærðir 38-58
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.