Læknablaðið - 01.07.1929, Page 41
LÆKNABLAÐIÐ
127
Úr heilbrigðisskýrslum Svía 1928. Soc.-Medic. Tidskrift, apr. '29.
Heilsufar þjótSarinnar taliÖ yfirleitt í franiför. Hreinlæti ábótavant, eink-
um hjá eldri kynslóÖinni. VíÖa bagaleg vöntun á baÖhúsum og tannlækn-
ingum. Yfirleitt frámunaleg fákunnátta um kynsjúkdóma. Svíar eignuð-
ust nýveriÖ lög um varnir gegn kynsjúkd., og varð þá í fyrstu vart, að
úr þessum kvillum drægi. En þetta stóð ekki lengi, og eru kynsjúkdómar
nú að aukast á ný. Dansinum er m. a. kent um. — Kaffiþamb er víða
mjög mikið. Einkum fær kvenfólkiÖ orÖ í eyra, enda víða talið áhugalítið
og fákunnandi um það, sem aÖ matargerð lýtur.
Injection treatment of varicose veins. The Lancet dec. 1928. Rit-
stj.grein.
Dæling í æöahnúta er í þann veginn aö útrýma fyrri tíma skurðaðgerð-
um. þótt reyndar sé ekki unt ennþá að segja um, hve varanlegur bati
fæst með þessari nýtísku lækning. Nýlega hafa amerískir læknar tekið
saman það, sem birst hefir í læknaritum um dælingar-aðferðina, og er um
53 þús. sjúkl. að ræða. Áhættan er auðvitað nokkur og dóu 7 sjúkl. af
umræddri tölu. Orsökin sú, að notuð voru koagulerandi efni, eða asept-
ik ekki i fullkomnu lagi. Af 7 sjúkl. dóu 4 úr æðakökk í art. pulmonalis,
en hinir úr thrombo-phlebitis septica, eða kvikasilfurseitrun. Dánartölur
eru æði miklu hærri með fyrri aðferðinni. Sepsis 0g suppuration ætti að
mega komast hjá, með nægilegri aðgæslu. Ekki hefir orðið vart throm-
bosis í djúpum æðum. Dælingar-aðferðin stendur vitanlega til bóta, og er
vcn um að framvegis megi lækna flestalla sjúkl. með æðahnúta.
G. Cl.
F r é 11 ir.
Embætti. K r i s t j ári S v e i n s s o 11 hefur verið skipaður héraðs-
læknir í Dalahéraði.
Laus embætti. Reykjarfjarðarhérað hefur verið auglýst laust
til umsóknar og var umsóknarfrestur til 1. ágúst, en þá var engin um-
sókn kornin um héraöið.
Embættispróf í læknisfræði við háskólann var ekki lokið fyr en kom-
ið var fram í júlímánuð vegna þess hve erfiðlega gekk að útvega
verkefni til prófs í handlæknisaðgerð. Þessir kandidatar luku prófi:
Bragi Ólafsson, Ófeigssonar, kaupmanns í Keflavík með II. betri
eink. 153% stigum, Jón Nikulásson, Guðmundssonar, bónda frá
Hrafnabjörgum í Norðurmúlasýslu með I. eink. 164^ stig, Karl
Jónasson Jónssonar bónda í Sólheimatungu, með II. beri einkuun
135Á stig, Ólafur Einarss.on, Guðmundssonar, bónda á Sval-
barði í Dalasýslu, með I. eink. 173*4 stig, Sigurður Sigurðls-
s o n, Sigurðssonar, bónda á Húmsstöðum í Húnavatnssýslu með I. eink.
197Á st. og Þórðulr Þórðarson, Jónssonar, kennara í Reykja-
vik með I. eink. 1593^ stig.