Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 01.09.1953, Qupperneq 23

Læknablaðið - 01.09.1953, Qupperneq 23
LÆKNABLAÐIÐ 19 synlegt skilyrði ]>ess, aff sjúkdómur myndist. Sem betur fer mun þetta ekki hafa þýðingu í mönnum, nema lielzt i sambandi við sýkingu af candida albicans, en hefur verið sýnt mjög greinilega á tilraunadýrum. (C. P. Miller et al 1947). Antibiotika og chemothera- peutika (fúka- og efnanlyfjum) er oft skipt í tvo flokka, bacteriocid og bacteriostatisk. Þó eru öll efnin í litlum þynn- ingum bacteriocid og miklum þynningum bacteriostatisk. Hjá sumum eru bacteriocid verkan- ir meira áberandi en hjá öðrum, t. d. eru penicillin og streptomy- cin í hæfilegu magni bacleriocid gegn sýklum í örum vexti, en bacteriostatisk gegn sýklum, sem vaxa hægt, og hafa nal. engin áhrif á sýkla í algerðri hvíld. Sulfonamid, aureomycin, chloromycetin og terramycin liafa því nær eingöngu bacter- iostatiskar verkanir i sönni þynningu og þau ná í líkams- vefjum. Sulfonamid. Ef við litum fyrst á sulfona- mid samböndin, þá sjáum við, að lækningagikli þeirra er miklu minna nú en það var fyrir 17 árum, er þau voru fyrst notuð sem lyf, einmitt vegna þess, að svo margar tegundir sýkla bafa orðið ónæmar fyrir þeim. Þetta verður aðallega með þeim hætti, að þegar sýklar kynnast hinum skaðlegu áhrifum lyfjanna, þá læra þeir að mynda efni, sem hindra verkanir sulfonamid sambanda. 1 sumnm tilfellum befur verið sannað, að þetta er p.-aminolænzoe sýra (K. Möll- er 1952). Aukist þol sýkla gegn einni tegund sulfonamida, þá eyksl það jafnframt gegn öllum liin- um, þess vegna er aðeins prófað fyrir sulfathiazol. Þcir sýklar, sem fyrstir urðu ónæmir fyrii sulfonamid, voru gonococcar. Sennilega hefur nokkur hluti gonococca upprunalega þolað sulfonamid, og sú tegund haldið velli, en hinum næmu verið útrýmt að mestu. (P. Garrod, 1951). Það er næsta furðulegl, að bræður gonococcanna, meningococcarnir, hafa ekki enn orðið ónæmir fyrir sulfona- midum, þrátt fyrir óendanlega mörg tækifæri til að kynnast þessum efnum. Enn í dag eru sulfonamid notuð til lækninga á meningococca meningitis með sama árangri og fyrir 16 árum. Aðrir þýðingarmiklir sýklar, sem oft eru næmir fyrir sul- fonamid, eru pneumococcar, hæmolytiskir streptococcar, einnig stundum II. influenzae, sumir stofnar af B. coli, para- colon og proteus. Sulfonamid verka bezt á fáa sýkla og hent- ugt er að sýrustig sé lútkent. Dauður vefur og gröftur eyðir áhrifum þeirra, einnig procain

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.