Læknablaðið - 01.10.1956, Blaðsíða 22
96
LÆKNABLAÐIÐ
IVwBikm' orð um LITBLIXDU og LIT<
aillMMIMtÓIAMIt
(2jlir Cjuhnund iCj
i/ornSion
Síðastliðin 3 ár hefur dr. med.
Jóhannes Björnsson prófað lit-
sjón meðal drengja í öllum 12
ára bekkjum Laugarnesskólans
í Reykjavík. Þeir drengir, sem
reyndust vera með afbrigðilega
litskynjun, voru sendir til mín
til nánari athugunar á litsjón-
inni og einnig til samanburðar
á litprófunartöflum, er við nob-
um. Þess skal getið, að niður-
stöðum okkar bar alltaf saman.
Við notum báðir American
Optical Company Pseudo-Iso-
chromatic litprófunartöflur, en
ekki sömu útgáfurnar og að
nokkru frábrugðnar. Töflur
þessar eru samsettar og endur-
bættar úr Ishihara- og Stilling-
litprófunartöflum. Þær eru við-
urkenndar af ameríska augn-
læknafélaginu og mikið notaðar
við hóprannsóknir á litblindu.
Eingöngu hefur verið prófað
fyrir rauð-grænblindu, sem er
langalgengust og sú litskynjun-
artruflun, er hefur hagnýta
þýðingu að vita um. Blá-gul-
blinda og algjör litblinda
(achromatopsia totalis) eru af-
ar sjaldgæfar.
'Af 287 drengjum, sem skoð-
aðir voru, reyndust 18 með af-
brigðilega rauð-græna li'tskynj-
un eða um 6,27% (samanber
töflu 1).
Tafla 1
Ófullkomin litskynjun meðal
12 ára drengja í Laugarnesskól-
anum í Reykjavík.
Skólaár Sk.alls Ófullk. | gr.-rlitsk| %
1953-54 66 4 I 6,06
1954-55 107 7 | 6,54
1955-56 114 7 1 6,14
287 A8 | 6,27
Til samanburðar má geta
þess, að tíðni rauð-grænlit-
blindu og litskynjunarveilu er
talin meðal Norðurálfubúa vera
frá 4-8% meðal karla og 0,4%
meðal kvenna. (1) Meðal Aust-
urlandabúa virðist vera um
svipaða litblindutíðni að ræða.
Við litblinduprófun, sem gerð
var á stúdentum í Filipseyja-
háskóla, reyndust um 4,3%
karla og 0,3% kvenna hafa ó-
fullkomna rauð-græna litskynj-
un. Prófað var með Ishihara-
töflum. (2)
Aðeins þrír þeirra drengja,
sem við Jóhannes skoðuðum
reyndust algjörlega blindir á
grænt og rautt. Þekktu þeir
ekki í sundur hrein rauð og