Læknablaðið - 01.10.1956, Side 37
LÆKNABLAÐIÐ
111
Hérumbil 15,000 sin'num var
ABO flokkun prófuð með end-
urflokkun án þess að nokkur
villa fyndist. Meðal hinna
15,000 voru 6 rangar, þar af
2 vegna raka, en það var áður
en rakaþéttar umbúðir voru
upp teknar. Maður nokkur
gerði 2 athuganir með aðferð
2 og taldi 0,Rh jákvæðari og
A,Rh-jákvæðan mann báða
0,Rh-neikvæða. Hann hafði
hrært stöðugt í hverjum reit í
5-7 mínútur. Þegar betur var
að gáð kom í ljós að kekkina
má skemma með því að hræra
svo ákaflega. Ennfremur skeði
það, að 2 byrjendur fluttu efni
úr anti-D reit í anti-B reit.
Varð það til þess að 2 0,Rh-
jákvæðir menri töldust B,Rh-
jákvæðir.
Aukaleg CDE flokkun á
spjöldum:
Smám saman hefur fengizt
vissa fyrir því að hver sá, sem
ekki hefur Rh einkennið D er
Rh neikvæður sem recipient, en
aðeins þeir, sem ekki hafa Rh
einkennin C og E teljast einnig
Rh neikvæðir sem donorar.
Upp á síðkastið hafa blóðbank-
ar bæjarspítalanna í Kaup-
mannahöfn notað sérstök spjöld
til þess að gera viðbótar CDE
flokkun á þeim blóðgjöfum, sem
‘taldir voru Rh neikvæðir með
tilliti til þess að fá blóð eftir
niðurstöðum fyrri rannsókna
rneð anti D efni.
CDE spjöldin eru notuð al-
veg eins og ABO og Rh flokk-
unar spjöldin.
Sökum þess að anti E móh
efnið er veikara en hin, er nið-
urstaðan lesin þar af 2 mín.
síðar, eftir að spjaldinu hefur
verið ruggað þeim mun lengur.
Meðal 1179 blóðgjafa, sem voru
Rh neikvæðir með tilliti til þess
að fá blóð, voru 110 Rh já-
kvæðir með tilliti til þess að
gefa blóð (64 vegna C og 46
vegna E eiginleika).
Aihugasemdir:
Blóðflokkun, sem gerð er með
þurrefnum, sem leyst eru upp
um leið og hún er framkvæmd,
byggist á því • að fyllstu ná-
kvæmni sé gætt þegar hún fer
fram. Þegar samtímis er gerð
ABO og Rh flokkun á spjöldum
ber að leggja áherzlu á ná-
kvæmni í eftirtöldum atriðum:
1. Eirium dropa af vökva
skal dreypt í hvern reit með
dropateljara, sem haldið skal í
réttum skorðum (lóðrétt við
aðferð 1 og með 45° halla við
aðferð 2)
2. öll efni verða að vera upp-
leyst og skal dreyfa blóði og
efnablöndu þannig að hver reit-
ur sé að fullu þakinn. i
3. Hræristautinn skal vand-
lega hreinsa eftir hverja hræru.
Það hefur sannazt að þessar
nauðsynlegu reglur, sem leggja
skal áherzlu á við byrjendur
hafa verið haldnar af rannsak-
endum, sem gert hafa fleiri en