Bændablaðið - 24.01.2013, Síða 1
2. tölublað 2013 Fimmtudagur 24. janúar Blað nr. 387 19. árg. Upplag 28.000
Mjólkurframleiðslan 2012:
125 milljónir lítra
Heildarframleiðsla mjólkur á
Íslandi árið 2012 nam 125.159.990
lítrum. Meðtalin er mjólk sem
nýtt var til heima vinnslu. Til
samanburðar var heildar-
framleiðslan 2011 124.541.031 lítri.
Heildargreiðslumark ársins 2012
var 114,5 milljónir lítra. Ónotað
greiðslumark þeirra framleiðenda
sem ekki nýttu greiðslumark sitt til
fulls var 2.315.155 lítrar. Framleiðsla
umfram greiðslumark hjá þeim
framleiðendum sem framleiddu
umfram greiðslumark var 12.975.145
lítrar. Samanlagt var framleiðsla
umfram greiðslumark því 10.659.990
lítrar. /EB
Góður árangur hefur verið
af samstarfi á milli sveitar-
félaga við Eyjafjörð um eyðingu
minka á undanförnum árum, en
Atvinnuþróunar félag Eyjafjarðar
(AFE) hefur haldið utan um
verkefnið. Jón Þórarins son á
Hnjúki í Svarfaðar dal, formaður
landbúnaðar ráðs Dalvíkur byggðar,
segir að orðið sé að kallandi að fara
í sambæri legt átak til að fækka ref,
sem farinn sé að hafa slæm áhrif á
fuglalíf víða um land.
Á fundi landbúnaðarráðs
Dalvíkurbyggðar fyrir skömmu var
til umræðu hvort hvert sveitarfélag
myndi sjá um „sitt“ svæði en
endanlega ákvörðun hefur ekki
verið tekin um það. Fyrirhugað er
að AFE haldi sérstakan fund um þetta
verkefni nú í ársbyrjun.
Með vísan til þess árangurs sem
minkaveiðiátakið hefur sýnt telur
landbúnaðarráð Dalvíkurbyggðar
eðlilegt að sveitarfélög í Eyjafirði
haldi áfram í samstarfi um minka-
veiði og njóti handleiðslu AFE.
Landbúnaðarráð Dalvíkurbyggðar
telur nauðsyn að tekið verði til
umræðu sambærilegt veiðiátak til
eyðingar á ref.
„Núna telst það frétt hér í
Svarfaðardal ef það sést minkur,“
segir Jón.
„Það eru ákveðnir menn í hverju
sveitarfélagi hér við Eyjafjörð sem
vinna þessi verk. Við erum til dæmis
með afburða samviskusama menn
hér hjá okkur sem hafa fylgt þessu
mjög vel eftir. Ef sama væri ekki
uppi á teningnum í nærliggjandi
sveitarfélögum myndi minkurinn
flæða hér yfir til okkar.“
Á árum áður var mikið af mink
í Dalvíkurbyggð sem menn rákust
nánast daglega á, sérstaklega við ár
og læki. Í dag telst það til frétta ef
menn sjá mink úti í nátturunni hér
um slóðir.
Svipað átak þarf vegna refsins
„Nú þarf að fara í svipað átak varð-
andi refinn. Við munum ekki ná
neinum árangri nema að stórfækka
í refastofninum. Þá dugar ekki átak
í eitt ár, heldur að minnsta kosti í
þrjú ár í röð.
Það er ekki verið að tala um að
útrýma refnum, eins og hugmyndir
hafa verið um varðandi minkinn,
heldur að halda stofninum, sem er
orðinn allt of stór, í skefjum.
Það er farið að stórsjá á fugla-
lífinu hér og víðar um land. Þá hefur
málið heldur ekki verið hugsað til
enda í svokölluðum friðlöndum.
Þar má ekki fara inn á svæðið með
byssur til að skjóta ref, en á þeim
svæðum horfa menn upp á varginn
fá að vera í friði við að eyða fugla-
lífinu. Það er trúlega enginn fugla-
stofn sem hefur orðið eins illilega
fyrir barðinu á refnum og rjúpan.
Hún er auðveld bráð fyrir refinn,
ekki síst yfir vetrartímann.
Um leið og búið verður að ná
refastofninum niður í ásættanlega
stærð tel ég að rjúpnastofninn muni
fljótlega ná sér á strik. Þá ætti að
rýmkast um fyrir skotveiðimenn til
að veiða rjúpu í jólamatinn.
Að öllu eðlilegu er árangurs ríkast
að veiða tófuna yfir vetrartímann
með skipulögðum útburði við
skotbirgi, sem kallar á vel
skipulagða vöktun skotveiðimanna.
Nú í vetur er ástandið þó mjög
afbrigðilegt. Refurinn situr að
veisluborðum um stóran hluta
Norðurlands í fé sem varð úti í
norðanáhlaupinu í september. Þetta
verður síðan stórvandamál í vor þar
sem kindahræin eru. Þar er viðbúið
að refir muni koma sér upp greni.
Því þurfa sveitarfélög, ríkið,
bændur og dýralæknar nú þegar
að finna lausnir á því hvernig
staðið verði að hreinsunarstörfum
á þessum svæðum strax og snjóa
leysir, en það verður bæði erfitt og
kostnaðarsamt verkefni.“
Mikil fjölgun álfta vandamál
Þar sem álft hefur fjölgað gríðarlega
síðustu árin og hún er farin að valda
bændum miklu tjóni á túnum og
kornökrum ætti einnig að huga
að því að breyta lögum og leyfa
tímabundna skotveiði á álft á
vissum svæðum á landinu, einkum
þar sem hún veldur mestum usla.
Það gæti komið skotveiðimönnum
vel á meðan þeir bíða eftir auknum
heimildum til rjúpnaveiða,“ segir
Jón Þórarinsson.
/HKr.
Samvinna sveitarfélaga við Eyjafjörð um minkaeyðingu skilar góðum árangri:
Aðkallandi að fara í átak til að fækka ref
– refurinn er farinn að stórskaða fuglalífið, segir formaður landbúnaðarráðs Dalvíkurbyggðar
t r agt að agð undir ögru
inni. r ru dauðir ungar m
þessi tófa náði að drepa áður en hún
var felld. Mynd / Jón Pétursson
10 20 38
Bærinn
okkar
Kjarr
Vorönn búfræðifjarnema LbhÍ hófst með komu að Hvanneyri 10. janúar síðastliðinn. Þann dag hittu fjarnemar kennara í þeim áföngum sem teknir eru á
önninni og áttu langan og góðan samverudag. Hluti fjarnemanna var nokkuð lengur á staðnum um þetta leyti og tók málmsuðunámskeið sem er hluti
búfræðinámsins og dæmi um áfanga sem ekki verður lokið nema með viðveru á staðnum. Á myndinni eru nemendur og kennari í áfanganum sem tóku
s r örstutt hl til myndatöku. Á komandi vori stefnir í að sjö fjarnemar útskri st sem búfræðingar. Búfræðifjarnám er ætlað starfandi bændafólki og er
tekið inn í námið annað hvert ár ef næg þátttaka fæst. æst verður tekið inn haustið 2013 en umsóknarfrestur er til 4. júní. ánari uppl singar er að nna
á heimasíðu skólans www.lbhi.is (fjarnám/starfsmenntanám). Mynd / EÞ
Berglind Ósk Óðinsdóttir,
fóðurráðunautur hjá Bænda-
samtökunum, segir að áberandi
skortur sé á fosfór í fóðri víða um
land, ekki síst á Norðurlandi og
Vesturlandi.
„Þetta er til að mynda mjög
greinilegt í Eyjafirði. Það er frekar
lág steinefnastaða í fóðri víða, og
sérstaklega er þetta áberandi varðandi
fosfór. Fosfór er erfiður í upptöku í
plöntur og eftir þurrkasumar eins og
í fyrra er líklegt að áborinn fosfór
nýtist ekki eins og til var ætlast. Það
er mjög mikilvægt fyrir bændur að
hafa samband við ráðunauta og
fá ráðleggingar varðandi þessa
þætti. Í svona tilfellum gæti auka
steinefnagjöf verið lausnin.“
Þorsteinn Ólafsson, sérgreina-
dýralæknir hjá Matvælastofnun,
tekur í sama streng og Berglind.
„Það er margt sem bendir til að
kýr á Norðurlandi og Vesturlandi
hafi veikst af þessum sjúkdómi. Það
er rétt að vekja athygli á þessu við
bændur; ef menn verða varir við
blóðblandað þvag eða brúnleitt þvag
er það vísbending um að eitthvað
af þessu tagi sé að gerast. Því er
mikilvægt að vera passasamur með
fosfórgjöf og leita leiðbeininga hjá
ráðunautum um fóðuráætlanir.“ /fr
Fosfórskortur í fóðri:
Líklega valdur að
veikindum í kúm
Lambakjöt er
alltaf best
Framreiða
hádegismat
fyrir allt að
2.000 manns á
hverjum degi