Bændablaðið - 24.01.2013, Síða 14
14 Bændablaðið | Fimmtudagur 24. janúar 2013
Ingólfur Þorláksson á Eyrar-
bakka, sem er með hrossin sín
í hesthúsahverfinu á Selfossi,
hefur síðustu ár eftir jólin gefið
hrossunum sínum jólatré að éta,
sem þau háma í sig af góðri lyst.
Mörgum þykir þetta mjög sérstakt
og segir Ingólfur að hestamenn geri
óspart grín að sér en hann láti það
ekki á sig frá. „Hestarnir eru brjálaðir
í trén, það er greinilega eitthvert efni
í þeim, sérstaklega berkinum, sem
þau sækjast eftir. Þau fá trén út í gerði
þegar ég hleypi þeim út á daginn en
á kvöldin fá þau sitt hey þegar þau
eru komin inn. Ég get ekki séð að
trén skaði hrossin á neitt hátt, þau
virðast bara vera yfir sig hrifin. Þetta
er líka mjög umhverfisvænt,“ sagði
Ingólfur. /MHH
Hross á Selfossi háma í sig jólatré
Rétt fyrir áramót fór fram
formleg undirskrift á Hótel
Flúðum um inngöngu slökkviliðs
Hrunamannahrepps inn í Bruna-
varnir Árnessýslu (BÁ). Með
samningum eru nú öll slökkvilið
í sýslunni komin undir BÁ, sem
þýðir að nú eru starfandi átta
slökkvistöðvar og 120 manna lið
í sýslunni.
Fram kom við undirskriftina að
nú væri slökkvimáttur sameinaðs liðs
mikill með samæfðu liði og tækjakosti
sem losar u.þ.b. einn milljarð króna
ef kaupa þyrfti búnaðinn í dag. Þá
var sagt frá því að 37 ár eru síðan BÁ
var stofnað af sveitarstjórnum í neðri
hluta sýslunnar. Eggert Vigfússon var
þá ráðinn fyrsti slökkviliðsstjóri BÁ
en nafnið, Brunavarnir Árnessýslu,
var valið á þessum tíma þar sem
menn höfðu þá trú að öll liðin
sameinuðust fljótlega eftir stofnun
BÁ. Nú, 37 árum síðar, varð það
að veruleika. Jóhann Marelsson,
sem var slökkviliðsstjóri á Flúðum,
verður nú varðstjóri BÁ á staðnum.
/MHH
Slökkvilið á Flúðum sameinast
Brunavörnum Árnessýslu
Mikið hefur gengi á að undanförnu
í Fánasmiðjunni ehf. á Ísafirði,
enda verður fyrirtækið opnað
formlega að nýju á laugardaginn
eftir brunann í fyrra.
Eins og greint var frá í síðasta
Bændablaði er búið að koma upp
nýjum tækjabúnaði og segir Örn
Smári Gíslason framkvæmdastjóri
að öllum sé velkomið að kíkja í
heimsókn til að skoða og þiggja kaffi
á laugardaginn.
Búið er að opna nýja heimasíðu
www.fanar.is sem gefur nýja
möguleika fyrir sölu og einnig fyrir
fólk að nálgast allar upplýsingar
varðandi fána, fánastangir og það
sem snýr að þessum hlutum. „Enda
er það markmið okkar að vera
leiðandi á þessum markaði hér á
landi.“
Þegar pantaðir eru fánar er hægt
að afgreiða minni upplög með eins
dags fyrirvara.
„Þá hefur verið bætt við
tækjabúnaði til að prenta myndir og
texta á drykkjarkönnur og glös og
er það að koma rosalega vel út. Við
gerum ráð fyrir að koma vörunni á
túristamarkaðinn í sumar.
Við erum í samstarfsverkefni með
Rafskaut ehf. í hönnun og framleiðslu
á vestfirskum gjafavörum og var
tekið forskot á sölu fyrir jólin,
fengu þær vörur frábærar viðtökur
og þökkum við fyrir það.
Búið er að hanna og þróa
fánastangar línu til að festa á
húsveggi fyrir 1-4 metra fánastangir,
gerðar til að þola íslenskar aðstæður.
Festingin er úr rýðfríu stáli, stöngin
úr áli og massífir plasthnúðar. Einnig
voru hannaðar fánaborgir fyrir 5 og
7 stangir af sama gæðastaðli.
Gaman er að geta þess að þetta
er allt smíðað hér á svæðinu. Þessar
vörur er allar hægt að nálgast í
vefverslun okkar, enda er það okkar
búðargluggi á markaðinn. Við erum
þó líka með myndarlega verslun
hér í Norðurtangahúsinu þar sem
fólk getur séð sýnishorn af öllum
vörunum. Við tökum alltaf vel á móti
öllum og reynum að leysa vanda með
þekkingu okkar og tækjabúnaði,“
segir Örn Smári Gíslason.
Fimm þúsund manns gengu
á Ingólfsfjall í Ölfusi 2012
– Ólafur Auðundsson, 65 ára Stokkseyringur, fór 153 ferðir á fjallið
Á árinu 2012 gengu
um 5 þúsund manns á
Ingólfsfjall í Ölfusi, en
það sést í dagbók sem
Ferðafélag Árnesinga
kom fyrir uppi á fjallinu.
Fjallið er orðið eitt af
helstu líkamsræktarfjöllum
á Árborgarsvæðinu
og dæmi er um að þeir
hörðustu skokki upp á
fjallið tvisvar á dag. Farið
er upp við malargryfjuna
við Suðurlandsveginn, en
ferðin upp og niður tekur
um 1 klukkustund. Ganga
á fjallið er brött og erfið á
köflum, en það er um 380
metra hátt. Ólafur Auðunsson
á Stokkseyri, sem er 65 ára
gamall, fór 153 ferðir á
Ingólfsfjall á síðasta ári, auk
þess að ganga á önnur fjöll
víða um land.
„Þetta er frábær heilsurækt sem
ég hvet alla til að stunda. Ég hefði
ekki trúa því hvað fjallgöngur gera
manni gott fyrr en ég fór að prófa
fyrir einu ári. Ingólfsfjall er frábær
staður til að fara upp og niður og
reynir á alla vöðva líkamans og
eykur þrótt og þol þeirra sem reyna
sig á fjallinu,“ sagði Ólafur. /MHH
Fjallagarpurinn Ólafur Auðunsson
á Stokkseyri. Hér er hann staddur
við Ingólfsfjall á gamlársdag 2012,
þegar hann fór sína 153. ferð upp á
fjallið á árinu.
Hér skrifar Kristján Einarsson, slökkviliðsstjóri BÁ, undir samninginn. Ragnar
Magnússon, oddviti Hrunamannahrepps, fylgist með. Mynd / MHH
Verðlaun fyrir prjónaferðir
í íslenskri náttúru
Hélène Magnússon prjóna-
hönnuður hlaut á dögunum árleg
ferðaverðlaun þýska blaðsins
Sonntag Aktuell fyrir prjónaferðina
Knitting and Hiking between Fire
and Ice. Prjónaferðina skipulagði
Hélène í samstarfi við Íslenska
fjallaleiðsögumenn.
Verðlaunin eru veitt á hverju ári í
tengslum við ferðasýninguna CMT í
Stuttgart, sem er stærsta ferðasýning í
Evrópu, en þangað koma rúmlega 200
þúsund manns á degi hverjum sem
hún er haldin. Að þessu sinni voru
163 tilnefningar til verðlaunanna
í ár og hlutu fimm ólíkar ferðir
víðs vegar um heiminn verðlaun
að þessu sinni. Þema ferðarinnar,
Knitting and Hiking between Fire
and Ice, er íslensk prjónahefð,
rósaleppaprjón og íslenska ullin.
Auk þess að njóta þess að prjóna
í íslenskri náttúru sem er síður en
svo af verri endanum er gengið yfir
Fimmvörðuháls. Prjónarnir eru teknir
upp á völdum stöðum og þá fléttar
Hélène inn fróðleik og kennslu um
ólíkar prjónaaðferðir auk þess sem
ullarvinnslan Þingborg er heimsótt,
íslenski torfbærinn, Skógarsafn og
fleira.
/ehg
Hélène Magnússon
Eigendur Fánasmiðjunnar ehf. á Ísafirði:
Opna á ný á laugardag
Á liðnu hausti hafa Tyrfingur
Sveinsson og Hulda Brynjólfsdóttir,
bændur í Lækjartúni í Ásahreppi,
unnið að breytingum á fjósinu
þar á bæ. Hafa þau rifið allar
innréttingar fyrir kýr úr húsinu
og sett inn gólf og innréttingar
fyrir sauðfé og þannig breytt því
í fjárhús.
Allar innréttingar hefur
Tyrfingur smíðað sjálfur, en hann
rekur viðgerðaverkstæði jafnhliða
búskapnum og gerir þar við allar
vélar sem bila auk þess að smíða
innréttingar eftir pöntunum og
teiknar hann þær þá upp þannig að
þær passi í þau hús sem pantaðar eru
innréttingar fyrir. Við breytingarnar
á fjárhúsinu var reynt að miða allar
innréttingar og vinnuaðstöðu við sem
mesta hagræðingu og allt gert til að
létta störf bóndans eins og hægt er,
en oft eru sveitastörfin þung og reyna
mikið á líkamann og því ástæða til
að minnka það álag eins og hægt er.
„Í stað þess að þurfa að bera allt
hey í kindurnar og moka að þeim
tvisvar á dag er nú gefið í stóran
fóðurgang á fjögurra daga fresti og
síðan er einungis fylgst með og lengt í
keðjum, þangað til ærnar hafa etið upp
allt heyið sem þeim er gefið hverju
sinni. Framhliðarnar ganga sjálfkrafa
fram undan kindunum þegar þær éta
heyið og hægt er að hækka og lækka
borð í átgrindunum eftir því hversu
mikið er af heyi á ganginum,“ sagði
Hulda í samtali við blaðið. /MHH
Fjósi breytt í glæsilegt fjárhús
í Lækjartúni í Ásahreppi
Steinn Másson og Helga Dagrún Helgadóttir í Hjarðarbrekku komu með
svargolsótta gimbur og færðu Huldu (græn lopaleysa) og yr ngi (brún
lopapeysa) að gjöf í tilefni opnunarinnar sem haldið var upp á um miðjan
nóvember. Mynd / MHH