Bændablaðið - 24.01.2013, Side 21
21Bændablaðið | Fimmtudagur 24. janúar 2013
dótturfélaga, en þau eru Lostæti
Norðurlyst, Lostæti Austurlyst og
Sesam brauðhús. Akureyrardeildin
sem heyrir undir Norðurlyst
er með fjölbreytta starfsemi;
aðalframleiðslueldhús fyrirtækisins
er við Naustatanga 1 auk þess sem
í sama húsi er rekin matstofa undir
nafninu Sjávarsíðan. Þá sér fyrirtækið
sem fyrr segir um rekstur tveggja
kaffitería í skólum bæjarins og
Ávaxtalandið er þar undir. Austurlyst
sér svo um rekstur mötuneytis Alcoa
– Fjarðaráls, veitingaþjónustu bæði
innan og utan álverssvæðisins og
rekstur bakarís.
„Við fylgjumst með markaðnum
og þeim tækifærum sem bjóðast,
en höfum aldrei farið út í neitt nýtt
án þess að skoða allt dæmið ofan í
kjölinn fyrst, förum gaumgæfilega
yfir alla fleti áður en ákvörðun er
tekin. Við erum jarðbundin og tökum
alltaf bara eitt skref í einu,“ segir
Ingibjörg og telur að hugsunarháttur
af því tagi sé grunnurinn að velgengni
fyrirtækisins.
Gott hráefni, góð þjónusta og hæft
starfsfólk skipta máli
Þá nefna þau að fjölmörg önnur
atriði skipti máli þegar kemur að
rekstri fyrirtækis sem sérhæfir sig
í veitingaþjónustu. Þannig þurfi
ævinlega að bjóða viðskiptavinum
upp á ferskt og gott hráefni og hafi
fyrirtækið metnaðarfulla stefnu
þegar að því kemur. „Og við
leggjum líka mikið kapp á að veita
góða þjónustu,“ segir Valmundur
og bætir við að til að reka gott
fyrirtæki sem standi undir væntingum
viðskiptavina þurfi það að hafa góðu
starfsfólki á að skipa. Innanborðs
eru menntaðir matreiðslumenn,
bakarar, smurbrauðsdömur,
viðskiptafræðingar og lögfræðingur
svo eitthvað sé nefnt. „Við erum mjög
heppin með starfsfólk, hjá okkur
starfar stór hópur af hæfu fólki,“ segir
hann. / MÞÞ
Lostæti sérhæ r sig í veitingaþjónustu við stærri
og minni fyrirtæki og hópa, rekur kaf teríur og
mötuneyti svo eitthvað sé nefnt en þær eru líka
fjölmargar veislurnar sem fyrirtækið hefur séð um.
Gestir geta ýmist tekið með sér glænýtt bakkelsi eða látið fara
vel um sig og notið veitinganna inni.
Konráð Þorsteinsson y rmatreiðslumaður.
Smári Þorsteinsson glímukappi
var krýndur íþróttamaður
Bláskógabyggðar fyrir árið 2012
fyrir góðan árangur í glímu.
Æskulýðsnefnd Bláskóga-
byggðar bauð til hófs til heiðurs
íþróttamanni Bláskógabyggðar
laugardaginn 12. janúar sl. í
Aratungu. Fjórar tilnefningar
bárust frá íþróttafélögum úr
Bláskógabyggð til nefndarinnar
en þau voru Agnes Erlingsdóttir,
Umf. Laugdælum, Finnur
Jóhannesson, Hestamannafélaginu
Loga, Smári Þorsteinsson, Umf.
Bisk., og Þorfinnur Guðnason,
Golfklúbbnum Úthlíð. Það var svo
Smári Þorsteinsson sem var krýndur
íþróttamaður Bláskógabyggðar
fyrir árið 2012 fyrir góðan árangur
í glímu.
Smári stóð sig mjög vel á
síðastliðnu ári í glímu en hann
varð m.a. Íslands- og bikarmeistari í
sínum þyngdarflokki. Í hófinu voru
allir þeir íþróttamenn sem voru
valdir í landslið og urðu Íslands-
og eða bikarmeistarar á árinu 2012
heiðraðir, en fimmtán einstaklingar
fengu slíka viðurkenningu.
/MHH
Glímumaður valinn íþróttamaður
Bláskógabyggðar 2012
Smári Þorsteinsson glímukappi með
viðurkenningu og verðlaunabikara.
Mynd / MHH
Auglýsing um styrki til varna
gegn landbroti árið 2013
Landgræðsla ríkisins auglýsir eftir umsóknum um styrki til varna
gegn landbroti. Um er að ræða styrki sem veittir eru til slíkra
verkefna skv. lögum nr. 91/2002 um varnir gegn landbroti.
Styrkirnir eru veittir til hvers konar verkefna til varnar því að vatns-
föll eyði mannvirkjum eða gangi á gróið land. Við forgangsröðun
verkefna er m.a. höfð hliðsjón af verðmæti þeirra mannvirkja eða
lands sem landbrot ógnr.
Athygli er vakin á að umsóknir sem berast fyrir 15. mars ár hvert
njóta að öðru jöfnu forgangs, en annars er enginn sérstakur
umsóknarfrestur og hægt að sækja um styrki til varna gegn land-
broti hvenær ársins sem er. Umsóknareyðublöð og nánari upp-
lýsingar eru á heimasíðu Landgræðslunnar, www.land.is , en einnig
er hægt að hafa samband við Landgræðsluna í Gunnarsholti, sími
488 3000 og héraðssetur Landgræðslunnar um land allt.
Umsóknum skal skila til Landgræðslu ríkisins, Gunnarsholti, 851
Hella eða á netfangið land@land.is
Landgræðsla ríkisins Gunnarsholti,
851 Hella – Sími 488 3000
Netfang land@land.is