Bændablaðið - 24.01.2013, Blaðsíða 28
28 Bændablaðið | Fimmtudagur 24. janúar 2013
Fagfélag ráðnauta stóð fyrir
endurmenntunar- og fræðsluferð
dagana 29. ágúst til 7. september
síðast liðinn. Greint var frá hluta
þessarar ferðar í Bændablaðinu 29.
nóvember 2012 og hér kemur annar
hlutinn sem Margrét Ingjalds-
dóttir og Sigríður Bjarnadóttir
unnu upp úr dagbókar færslum
ferðalanganna.
Að þessu sinni er gerð grein fyrir
heimsóknum hópsins; á nautastöð,
á bæ í Slóvakíu sem sérhæfir sig í
útflutningi á kvígum til Rússlands,
á ferðaþjónustu-, sauðfjár- og kúabú.
Vaxandi samstarf við Skandinavíu
Nautastöð Insemas í Zvolen er önnur
af tveimur nautastöðvum í Slóvakíu.
Alls eru um 60 naut á stöðinni, ýmist
í eigu stöðvarinnar eða í leigu frá
öðrum stöðvum utan Slóvakíu.
Nautin voru af nokkrum kynjum;
tveimur slóvakískum, Holstein
rauð og svört, Charolais, Limousin
og Hereford. Um 400.000 skammtar
eru seldir á ári, fjórðungurinn fer í
sölu innanlands og restin til útlanda,
mest til Tyrklands.
Nautastöðin notar 0,5 ml strá sem
eru með 20 milljón frumur í skammt-
inum og krafa er gerð um að það sé
50% lifun.
Árlega eru 8 ungnaut prófuð,
sem er töluverð færra en áður
var. Það er mögulegt vegna þess
að arfgerðargreining (e. genomic
selection) er nýtt á erfðaefninu. Frá
hverju nauti í árgangi eru sendir út
1.500 skammtar í dætraprófun og
niðurstaðan fæst eftir 5 ár. Þá eru
teknir 10 þúsund skammtar úr hverju
nauti áður en fáein nautanna fá að
lifa, þau sem talin eru vænlegust til
notkunar áfram. Stöðin á samstarf
við ýmis ræktunarsamtök og er
samstarf vaxandi við kynbótafélög í
Skandinavíu. Greinilega er vandað til
verka við sæðistökuna og sæðismatið
á stöðinni.
Kvígusala til Rússlands
Við heimsóttum fjölskyldubúið
Lauko, www.isokman.sk, sem
er dálítið sérstakt fyrir þær sakir
að stærsta tekjulind búsins er
útflutningur á kvígum til Rússlands.
Auk útflutningsins eru þau með
framleiðslu á sauðaostum og ferða-
þjónustu. Byggingarnar eru fjögurra
ára gamlar og byggðar upp með
styrk frá ESB. Búið er byggt upp
úr samyrkjubúi sem fór í þrot. Það
hefur til umráða um 300 ha lands,
þar af eru 30 ha í kornrækt og aðrir
30 ha í maísrækt. Þarna eru einnig
14 reiðhestar í glæsilegri aðstöðu.
Starfsemin byggir á umboðssölu
á 2.500 kelfdum kvígum. Slóvakía er
laus við sjúkdóminn blátungu og þess
vegna er mögulegt að selja lifandi
nautgripi til Rússlands. Kvígurnar
eru hafðar í einangrun í 30 daga á
sölubúinu, og áður en þær fara til
Rússlands er þeim safnað saman í
fjós Laukos þar sem þær dvelja í
um sólarhring. Þar fer fram síðasta
skoðun og pappírar eru yfirfarnir.
Rússneskir eftirlitsdýralæknar
fylgjast með kvígunum allan
tímann sem þær eru í einangrun á
sölubúunum. Rússar greiða 2.500
evrur (410.000 kr.) fyrir gripinn, þar
af borgar rússneska ríkið 95%, en
markmiðið er að stuðla að bættum
kynbótum nautgripa. Bóndinn sem
selur fær 1.500-1.800 evrur (246-
295 þús. kr.) í sinn hlut. Bændurnir
sem kaupa kvígurnar dvelja að
jafnaði í hálfan mánuð á gistiheimili
Laukos og læra undirstöðuatriði í
nautgriparækt og meðferð kúnna.
Salan fer fram í mars til nóvember,
yfir háveturinn er flutningsleiðin um
fljótin til Síberíu frosin og ófær.
Handmjólka 300 ær
Á búinu eru um 1.500 fjár og þar
af eru handmjólkaðar allt að 300
ær. Fært er undan mjólkuránum
um páska þegar lömbin eru tveggja
mánaða. Þau eru seld á fæti til slátr-
unar sem páskalömb til Ítalíu eða
Tyrklands. Mjaltaskeiðið er frá apríl
til september. Daglega eru framleidd
allt að 70 kg af osti en nytin er 0,5 til
1 kg á dag eftir ána. Við umönnun
fjárins, mjaltir og ostagerð vinna 3-4
og eru starfsmennirnir frá Austur-
Slóvakíu, fjölskylda sem hefur
starfað við þetta í fleiri kynslóðir
og kann vel til verka.
Starfseminni fylgir myndarleg
ferðaþjónusta og er osturinn notaður
í ferðaþjónustuna ásamt því að vera
seldur til veitingastaða. Hópurinn
smakkaði mismunandi gerðir
sauðaosta, svo sem reykta og óreykta.
Mikil uppbygging í ferðaþjónustu
Hópurinn hélt áfram um lendur
Slóvakíu og nálgaðist Mið-
Slóvakíu. Hann hafði viðkomu í
Banská Bystrica, sem er höfuðborg
þess héraðs. Að því búnu var farið
á einkabú í Selce, Fuggerov Dcor,
þar sem landið er farið að hækka
talsvert. Búið er í eigu þriggja aðila
og var stofnað 1995. Þeir keyptu
byggingarnar en leigja landið. Á búinu
er búfjárhald og mikil uppbygging
ferðaþjónustu hefur átt sér þar stað.
Mjólkurframleiðslunni hefur verið
hætt og mjólkurkýrnar seldar en nú
eru 120 kjötframleiðslugripir á búinu
í lífrænni ræktun. Þar er t.d. ekki
notaður áburður né nein eiturefni.
Afurðirnar eru seldar á sama verði
og hefðbundnar afurðir, en styrkirnir
eru mun meiri vegna lífræna
búskaparins. Eftirlitið er mikið með
framleiðslunni og stendur bóndinn
straum af þeim kostnaði. Landið er
320 ha, nánast allt graslendi.
Hundar verja sauðfé fyrir úlfum
og björnum
Aðalrekstur þessara þriggja aðila
er ferðaþjónustan, þar sem gömlu
fjósi hefur verið breytt í glæsilegt
gisti- og veitingahús. Ferðaþjónustan
er starfandi allt árið með áherslu
á vetraríþróttir, skíðaiðkun með
svigbrekkum og heilsurækt með
íþróttavelli, keilusal, líkamsrækt
og nuddi, gufubaði og sundlaug.
Gistirýmin eru 50 talsins og nýtingin
á ársgrundvelli 56%.
Gestir búsins geta farið um
ákveðið svæði nálægt gistiaðstöðunni
og séð mismunandi búfjártegundir
sem haldið er þar til sýnis. Þar fyrir
utan eru á búinu 120 ær mjólkaðar,
ostur unninn úr sauðamjólkinni og
notaður á veitingahúsinu. Fjórar
ostategundir eru framleiddar, m.a.
reyktur ostur. Ærnar eru ekki hafðar
í afgirtum hólfum heldur er setið yfir
þeim dag og nótt og eru sérstakir
varðhundar notaðir til að passa féð
fyrir úlfum og björnum.
Mikil tæknivæðing og stórt bú
Bærinn Ocova var heimsóttur. Þar
er 14 ára gamalt fyrirtæki með
95 starfsmenn á nokkrum jörðum
með sauðfé til mjólkurframleiðslu,
mjólkurkýr og akuryrkju. Fyrirtækið
var byggt á grunni samyrkjubús sem
var stofnað fyrir 40 árum. Landið sem
fyrirtækið hefur til afnota er 4.000 ha
en 2.000 ha af þeim eru ræktanlegir.
Jarðnæðið er í eigu margra aðila. Sá
hluti búsins sem hópurinn kynnti sér
var mjólkurframleiðslan, þó bara
hluti hennar þar sem fjósin voru
víða. Heildarbústofn er um 500 kýr
af rauðskjöldóttu Fleckvieh-kyni
og svartskjöldóttu Holstein-kyni.
Keyptir voru 8 Lely Astronaut 2011
mjaltaþjónar í lausagöngufjós með
hálmlegubásum. Á þessum stað
eru um 200 kýr með 4 mjaltaþjóna.
Meðalnyt er um 8.000 kg eftir kúna
en þessar rauðskjöldóttu mjólka
aðeins minna að meðaltali en
þær svartskjöldóttu. Nokkur
holdafarsmunur er á milli kynjanna,
þar sem Holstein-kýrnar eru nokkuð
magrari en þær rauðskjöldóttu.
Það bar þó nokkuð á fótameini í
gripunum og var heilsufar þeirra eftir
því. Gólfið er heilsteypt með grófum
raufum en þó er hálmur notaður sem
undirburður bæði á gang og bása.
Fóður gripanna er heilfóður og
kjarnfóðurgjöf í mjaltaþjóni. Kýrnar
eru ekki settar á beit en geldkýr og
kýr sem komnar eru að burði hafa
útivistarsvæði utan við fjósvegginn.
Fjósin voru tekin í gegn árið 2011
og veittur var styrkur fyrir helmingi
af kostnaði við þær breytingar og
kaup á mjaltaþjónum í gegnum
Evrópusambandið. Á móti kom
að skila þarf rekstrargreiningu
fyrir reksturinn næstu 5 ár á eftir.
Kaupverð mjaltaþjóns var um 133
þúsund evrur, þ.e. um 21,8 milljónir
ísl. króna, með uppsetningu.
Afurðarverð mjólkur langt undir
framleiðslukostnaði
Næsta bú var í Lupca og
byggði á samyrkjubúi sem stofnað
var 1952. Landið þar til umráða
nemur 1.080 ha, þar af eru 400 ha
í ræktun. Búið er með 800 kindur til
mjólkurframleiðslu, 440 kýr í þremur
fjósum með meðalnytina 6.500-7.000
kg/kú á ári, akuryrkju og malarnám
en starfsmennirnir eru 80 talsins.
Dregið hefur verið úr framleiðslu
á kúamjólk en stefnt að aukningu í
kjötframleiðslu. Einnig átti að hefja
sölu á afurðum til biogasframleiðslu,
það eru greinilega miklar væntingar
til betri afkomu vegna þeirrar
framleiðslu. Ástæðan fyrir því að
dregið hefur úr mjólkurframleiðslunni
er óhentugt rekstrarumhverfi, tap
sl. árs nam 120 þús. evrum (um 20
milljónir kr). Afurðaverð mjólkur er
27 sent (44 kr) á lítra en framleiðslu-
kostnaður 36 sent (59 kr.) á lítra.
40 kinda Westfalia-mjaltabás
Sjö manns vinna eingöngu við
sauðfjárhluta búsins og er það sá
hluti búsins sem hópurinn skoðaði
aðallega. Framleiðsluskipulags
búsins byggir á því að ærnar eru ýmist
látnar bera í febrúar eða október,er
stefnan farin að taka meira mið af
októberburði því þá fæst meira fyrir
bæði mjólkurafurðirnar og lömbin.
Lömb til nytja eftir á eru 1,52.
Lömbin voru hjá móður í 5 vikur og
ná á þeim tíma 14-15 kg lífþunga.
Stefnt er á að slátra lömbunum sem
mjólkurlömbum eða selja á fæti,
ýmist sem jóla- eða páskalömb til
Ítalíu. Verðið sem fæst er 2,7 evrur/
kg (443 kr./kg) ef um páskalamb er
að ræða en 3,5 evrur/kg (574 kr./kg)
ef lambið er jólalamb. Þær ær sem
Íslenskir ráðunautar á faraldsfæti – annar hluti greinar um endurmenntunar- og fræðsluferð Fagfélags ráðnauta:
Slóvakískir bændur sóttir heim
Það er óneitanlega glæsilegt, Fuggerov Dcor ferðaþjónustubýlið í Slóvakíu.
Í Insemas-nautastöðinni í Zvolen í Slóvakíu. Á myndinni má sjá kútinn og
jótandi köfnunarefni þar sem sæðisstráin eru geymd.
Rauðskjöldótt Holstein-naut.
Glæsilegar byggingar á Lauko-búinu.
Sauðaostar frá Lauko-búinu.
Hér má sjá vinnubúðir starfsfólksins
á Fuggerov Dcor-búinu.