Bændablaðið - 24.01.2013, Page 37
37Bændablaðið | Fimmtudagur 24. janúar 2013
Vélabásinn
Skrúfaðir Best-Grip naglar:
Geta naglar leyst hálkuvandamál
dráttarvéla og fjórhjóla?
Í þessum pistli mínum ætla ég
að deila smá fróðleik frá mér og
viðmælendum mínum um nagla og
keðjur vegna þess að fyrir nánast
öllu Norðurlandi er mikill klaki
sem hefur gert mönnum erfitt fyrir
í mörgum tilfellum, en fyrir nokkru
heyrði ég sögu af manni sem lenti í
erfiðleikum við að sækja heyrúllu á
dráttarvél og rann stjórnlaust tugi
metra sökum hálku.
Keðjur eru hlutur sem allir
treysta enda er virkni þeirra á svelli
góð, en að kaupa keðjur getur verið
kostnaðarsamt því par af stálkeðjum
á framhjól geta kostað frá 150-170
þúsund og á afturhjól er verðið frá 200-
250 þúsund parið. Að keðja dráttarvél
allan hringinn gæti því farið upp í 400
þúsund (fyrir utan virðisaukaskatt).
Til er lausn sem gæti hugsanlega
gagnast mörgum, en það eru naglar
sem heita Best Grip og fást hjá Kletti
hjólbarðadeild, Klettagörðum 8-10.
Þessir naglar eru mislangir, standa
mislangt út og eru ætlaðir í ýmis
vélknúin tæki, skó og jafnvel hesta
(www.best-grip.com en á þessari
síðu má finna miklar upplýsingar
um stærðir og hvernig naglarnir eru
settir í og teknir úr dekkjum ásamt
fleiru). Í stofnkostnaði eru þessir
naglar frekar dýrir og kostar stykkið
120 krónur, en naglarnir duga vel og
eru sterkir. Sjálfur hef ég ekki mikla
reynslu af þessum nöglum, en ég er
með svona nagla í gönguskónum
mínum, sex nagla í hvorum skó, og
er mjög ánægður (allavega skárra en
hefðbundnir mannbroddar að mínu
mati). Til að afla mér upplýsinga um
notkun á svona nöglum á gröfum
og dráttarvélum hringdi ég í nokkra
aðila sem hafa notað svona nagla
við mismunandi aðstæður og með
mislöngum nöglum.
Með Best-Grip nagla í stað keðja
Einar Halldórsson er gröfumaður á
Ísafirði og hefur í mörg ár mokað snjó
á Ísafirði og víðar, en fyrir áeggjan
Guðmundar Einars í Bílaverinu á
Ísafirði fékk Einar sér Best-Grip nagla
í afturhjólin á gröfunni hjá sér í stað
keðja. Bílaverið á Ísafirði er söluaðili
fyrir Best-Grip nagla og má sjá allar
mismunandi tegundirnar á vefslóðinni
www.parts4u.is. Einar er nú á fjórða
vetri með sömu naglana, sem hann
skrúfar úr á vorin í í á haustin. Hann
er með þrjá nagla í hverri spyrnu í
afturhjólunum, sem gerir 120 nagla í
hvort dekk, en síðastliðið haust bætti
ég við 13 nöglum. Það eru öll afföllin
af 240 nöglum á þrem vetrum hjá
mér á 9 tonna gröfu sem sýnir hversu
sterkir naglarnir eru sagði Einar. Hins
vegar nota ég alltaf keðjur að framan,
en meðan ég var með keðjur allann
hringinn dugðu keðjurnar mér tvo
til þrjá vetur og er því ávinningurinn
augljós. Naglarnir sem Einar er með í
sinni vél eru stærstu naglarnir og heita
1800.
Ægir Sigurgeirsson, Stekkjadal
í Húnavatnssýslu, er með stystu og
minnstu naglana frá Best-Grip sem
ég talaði við, naglarnir standa um 3-4
mm út úr spyrnunum á Valtra 6850
dráttarvélinni hjá Ægi. Hann skrúfaði
tvo nagla í hverja spyrnu að framan og
þrjá að aftan. Ægir sagði að vissulega
væru keðjur öruggari, en naglarnir
halda vel við. Þetta er svipað og á bíl
með nöglum, heldur við og er betra.
Þar sem naglarnir standa svona stutt
út á hann ekki von á því að vera neitt
að taka naglana úr í vor, þar sem hann
notar vélina mest heima við, fjarri öllu
malbiki.
Nýtast líka fyrir fjórhjól
Þórður Halldórsson, Laugaholti við
Ísafjarðardjúp, notar Best-Grip nagla
í traktorinn sinn og fjórhjólið. Hann
er með nagla sem heita 1910T, en
þessir naglar standa um 5 mm út úr
dekkjunum þegar þeir eru komnir
á sinn stað. Þórður setti þrjá nagla í
hverja spyrnu bæði á framdekkjunum
og að aftan (um 120 stk. í afturdekkin
og um 100 að framan) á dráttarvélinni.
Í fjórhjólið fór einn nagli í hvern kubb.
Bæði á traktornum og á fjórhjólinu
gefur þetta gott grip og er ég mjög
ánægður, sérstaklega með fjórhjólið,
og mæli ég með því að menn setji
þessa nagla í fjórhjól og sexhjól eftir
mína reynslu á fjórhjólinu. Það eina
sem maður þarf að passa er að láta ekki
borvélina spóla í farinu við ísetningu á
nöglunum, en til öryggis mæli ég með
því fyrir þá sem ætla að setja svona í
dekk að fá sér a.m.k. einn aukalykil
(bita) framan á borvélina því að við eitt
spól á nagla getur maður auðveldlega
skemmt ísetningarbitann, sagði Þórður.
Pierre Davíð Jónsson á
verktakafyrirtækið Nautási á Hellu
hefur í mörg ár verið við snjómokstur
víða um landið. Hann fékk sér stærstu
naglana, sem heita 1800, og sagði um
þá að þetta væri einfalt: Þessir virka og
þó er ég búinn að prófa marga nagla
í gegnum árin frá öðrum. Þessir virka
best, sagði Pierre.
Mín persónulega reynsla er
engin af þessum nöglum fyrir utan
skónaglana mína, en miðað við svör
manna sem reynslu hafa af þessum
nöglum virðist hún vera jákvæð í alla
staði, en þó að naglarnir séu dýrir í
stofnkostnaði virðist endingin vera
það góð að fjárfestingin borgi sig.
Hins vegar vil ég gefa mönnum það
ráð að mæla vel hversu mikið gummi
er á hjólbörðunum með það í huga
að kaupa ekki nagla með of löngum
skrúfgangi inn í gúmmíið svo að
skrúfgangurinn fari ekki í gegn og loft
fari að leka með nöglunum.
Sundlaugin á Blönduósi er hluti
af Íþróttamiðstöðinni Blönduósi
og stendur við Melabraut 2. Laugin
er nánast ný, en hún var opnuð 16.
júní 2010. Laugin er 25x8,5 metrar
að stærð en auk þess eru við hana
tveir heitir pottar, vaðlaug, tvær
stórar rennibrautir og gufubað. Góð
sólbaðsaðstaða er við laugina og
yfirsýn er góð yfir sundlaugarsvæðið,
sem fjölskyldufólk kann að
meta. Á síðasta ári sóttu 35.000
gestir sundlaugina, þar af komu
21.000 gestir í maí til ágúst. Í
íþróttamiðstöðinni er einnig
íþróttahús og líkamsrækt.
Sundlaugin á Blönduósi hefur
sérstöðu varðandi klórkerfi sitt. Fest
voru kaup á búnaði til framleiðslu á
klór, en framleiðslan á sér stað með
rafgreiningu og er salt eina afurðin
sem þarf í framleiðsluna ásamt
rafmagni og vatni. Helstu kostir
kerfisins fyrir sundlaugargesti eru
að klórlykt minnkar, sviði í augum
minnkar verulega, húðerting er
minni og að auki er þetta vistvænna
fyrir starfsfólk, þar sem enginn
hefðbundinn klór eða önnur hættuleg
efni eru flutt milli staða. Kerfið er því
umhverfisvænna en gengur og gerist
og samrýmist vel umhverfisstefnu
Blönduósbæjar.
Sundlaugin á Blönduósi er opin til
21.00 alla virka daga nema föstudaga
en þá er henni lokað klukkan 17.00.
Mánudaga, miðvikudaga og föstudaga
er opnað klukkan 6.30 en klukkan
7.45 á þriðjudögum og fimmtudögum.
Á laugardögum er opið frá 10.00 til
16.00 en lokað á sunnudögum. Frekari
upplýsingar má fá í síma 452-4178
eða með því að senda tölvupóst á
netfangið robert@blonduskoli.is.
Sundlaugin á Blöndósi
Laugar landsins
Vélaprófanir
hlj@bondi.is
Hjörtur L. Jónsson
Sýnishorn af Best-Grip nöglum hjá sölumanni í Kletti.
JCB-grafan hjá Einari Halldórssyni. Best-Grip skónaglasett frá Kletti.
Á fjórða vetri var enn töluvert eftir af nöglunum hjá Einari.