Bændablaðið - 24.01.2013, Qupperneq 39
39Bændablaðið | Fimmtudagur 24. janúar 2013
4 2 6 5
8 2
8 6 9
8 5
3 1 4
9 7
9 2 7
7 5
7 1 8 6
4
7 6
1 2 7
8 9 4
4
3 8 1
3
7 4 9 8 2 1
3 1
2
1 6 8 4 7
2 5 4
8 3 9 7
1
8 3
1
5 9
326 42 7
Sudoku
Galdurinn við Sudoku-þrautirnar er
að setja réttar tölur frá 1-9 í eyðurn ar.
Sama talan má ekki koma fyrir tvisvar
í línu lárétt og lóð rétt og heldur ekki
innan hvers reits sem afmarkaður er
af sverari lín um.
Þrautirnar eru miserfiðar, sú sem
er lengst til vinstri er léttust og sú til
hægri þyngst en sú í miðjunni þar á
milli.
Hægt er að fræðast nánar um
Sudoku-þrautirnar á vefsíðunni www.
sudoku2.com og þar er einnig að finna
fleiri þrautir ef þessi skammtur nægir
ekki.
Aðalheiður Ella Ásmundsdóttir er
6 ára gömul og býr á Lambeyrum
í Laxárdal. Hún er í fyrsta bekk
í Auðarskóla, þar sem hún hefur
mest gaman af stærðfræðinni.
Nafn: Aðalheiður Ella
Ásmundsdóttir.
Aldur: 6 ára.
Stjörnumerki: Ég held að ég
sé tvíburi.
Búseta: Lambeyrar í Laxárdal.
Skóli: Ég man það ekki alveg, jú
Auðarskóli.
skólanum?
skemmtilegust.
Hvert er uppáhaldsdýrið þitt?
Hvolpur. Við eigum hvolp og eina
tík en þau eru ekkert skyld.
Uppáhaldsmatur: Það er svo mikið
en lasagna er mest uppáhalds.
Uppáhaldshljómsveit: Ég á enga
uppáhalds.
Uppáhaldskvikmynd:
Fríða og dýrið skemmtilegust.
Mamma segir að það megi bara
horfa á bíómyndir þegar það er
kósýkvöld og líka stundum þegar
koma gestir.
Fyrsta minningin þín? Ég man
þegar ég var að skoða Júlíu systur
hjá mömmu á spítalanum þegar hún
fæddist.
r þú íþróttir eða spilarðu
á hljóðfæri? Ég var einu sinni
í fótbolta og hann dettur alltaf og
meiðir sig.
Hvað er það skemmtilegasta sem
þú gerir í tölvu? Ég fer ekki svo oft
í tölvu.
Hvað ætlar þú að verða þegar þú
verður stór? Læknir, sko barna-
læknir en ekki dýralæknir.
Hvað er það klikkaðasta sem þú
hefur gert? Ég hef aldrei gert neitt
klikkað.
Hvað er það leiðinlegasta sem
þú hefur gert?
leiðinlegt þegar Júlía meiðir mig.
/ehg
Flottir sokkar fyrir gönguskóna
PRJÓNAHORNIÐ
Svona sokkar eru vinsælir hjá ungum
stúlkum og tilvalið fyrir ömmur eða
mömmur að prjóna þá og nota til þess
garn afgangana í prjónakörfunni. Við
notuðum Fever, sem er 100% ullargarn,
en það fæst víða á tilboði núna. Dali með
glimmerhnútum var í prjónakörfunni.
Einnig var svart og hvítt Nepal frá Drops
í prjónakörfunni. Uppskriftin kemur frá
Drops en þar er notað Karisma garn.
Stærðirnar 22/23-24/25-26/28-29/31-32/34-
35/37
Lengd fótar 13-15-17-18-20-22 cm
Hæð leggsins 18-19-20-22-23-24 cm
Aðallitur – þar þarf 100 g í minnstu sokkana,
150 í alla hina nema stærstu, þar þarf 200 g.
Síðan þarf smávegis af mynsturlitunum.
Sokkaprjónar nr 4.
Aðferð:
Prjónað í hring með sokkaprjónum, þið getið
notað þann hæl sem þið eruð vanar en þessi
hæll í uppskrifinni er algengur og kemur vel út.
Sokkabolur:
Fitja upp 96-112-112-112-112-128 l jafnt yfir 4
prjóna. Prjónið mynstur A1 og eftir það eiga að
vera 48-56-56-56-56-64 l á 4 prjónum. Prjónið
stroff 2 sl, 2 br þar til sokkurinn mælist 4 cm.
Prjónið 1 umferð slétt, takið þá 0-2-2-2-2-4 l úr
jafnt yfir þá eiga að vera 48-54-54-54-54-60 l á
4 prjónum. Setjið prjónamerki í byrjun umferðar
sem verður miðjan að aftan. Prjónið nú slétt
eftir mynstri A2 en um leið þegar sokkabolurinn
mælist 7-8-7-8-7-8 cm er tekið úr í byrjun og
enda umferðar samtals 2 l þannig: prjónið þar til
3 l eru að prjónamerkinu, prjónið þá 2 l saman 2
sl en prjónamerkið á að vera á milli þeirra síðan 2
snúnar saman. Endurtakið úrtökurnar á 2,5-1,5-
2-2,5-3-2 cm millibili þar til 38-40-40-42-42-44
l eru á 4 prjónum. Athugið að við úrtökurnar
ruglast mynstrið að aftan en passið upp á að
mynstrið haldi sér hringinn.
Þegar sokkabolurinn mælist 18-19-20-22-23-24
cm eru fyrstu 18-20-20-20-20-22 l á prjónunum
fyrir hælinn geymdar og hinar 20-20-20-22-22-
22 settar á hjálparband (ofan á fætinum). Prjónið
sléttprjón fram og til baka yfir hælinn 4-4,5-4,5-
5-5-5 cm, setjið merki sitt hvoru megin.
Hæll:
1.prj. Réttan: Prjónið slétt þar til 6-6-6-6-6-6 l
eru eftir á prjóninum, takið næstu lykkju fram af
óprjónaða prj 1 l sl og lyftið óprjónuðu l yfir
snúið.
2. prj. Rangan: Prjónið brugðið þar til 6-6-6-6-
6-6 eru eftir á prjónunum, takið næstu lykkju
óprjónaða fram af, prjónið brugðið næstu l og
lyftið óprjónuðu lykkjunni yfir.
3 prj. Réttan: Prjónið slétt þar til 5-5-5-5-5-5 l
eru eftir á prjónunum, takið næstu l óprjónaða
prjónið 1 l sl og lyftið óprjónuðu l yfir. Snúið.
4 prj. Rangan: Prjónið brugðið þar til 5-5-5-5-
5-5 eru eftir, takið næstu l óprjónaða prjónið 1 l
brugðna og lyftið óprjónuðu l yfir, snúið.
Haldið áfram þannig þar til 8-10-10-10-10-12
l eru eftir á prjónunum.
Eftir hælúrtökuna eru teknar upp 8-9-9-10-
10-10 á hvorri hlið á hælnum og lykkjurnar af
hjálparbandinu að fram teknar upp á prjóna.
Samtals 44-48-48-52-52-54 l. Prjónið slétt og
takið úr sitt hvoru megin við merkin. Prjónið
síðustu 2 l saman fyrir lykkjurnar ofan á fætinum
og fyrstu 2 l saman.
Endurtakið þetta í annarri hvorri umferð 4
sinnum fyrir allar stærðir, þá eiga að vera
34-38-38-42-42-44 l á prjónunum. Prjónið þar
til sokkurinn mælist 10-11-13-14-16-18 cm
frá merkinu við hælinn. Nú eru ca 3-4-4-4-4-4
cm þar til sokkurinn er tilbúinn. Þá er jafnað á
prjónunum og sett merki í hvorri hlið,17-19-19-
21-21-21 l að ofan og jafn margar að neðan. Nú
er tekið úr báðum megin við merkin fyrir tánni,
þ.e. prjónað þar til 3 l eru að merki, þá teknar
2 l saman 2 l sl og 2 saman, merkið er á milli
sl lykkjanna.
Endurtekið aðra hverja umferð 2-3-3-2-2-2
sinnum í viðbót. Síðan í hverri umferð alls 2-2-
2-4-4-5 sinnum, þá eiga að vera alls 14-14-14-
14-14-12 l á prjónunum.
Í síðustu umferð eru 2 og 2 l teknar saman,
klippið á þráðinn og dragið þráðinn í gegnum
l sem eftir eru.
Gangið frá endum.
Góða skemmtun og gleðilegt nýár.
FÓLKIÐ SEM ERFIR LANDIÐ
Man vel þegar litla systir fæddist
9
Aðalheiður Ella hor r á bíómyndir
þegar það er kósýkvöld.
Bækur og geisladiskar
= Blátt Fever
= Sleppa
= Dali drapplitt
= Hvítt Nepal
= Svart Nepal
= Dali drapplitt
= Slétt
= Brugðið
= Takið 1 L óprjónaða,
prj 1 L sl og lyftið
óprj L yfir
= 2L sléttar saman
HS Tókatækni gaf út nýjan
DVD-pakka fyrir síðustu jól.
Í pakkanum eru tveir DVD-
diskar með fjölbreyttu efni fyrir
u.þ.b. frá árunum 1940 til 1980.
Þar er m.a. rætt við Sigmar
á Lindarbakka, Þórodd Má
Árnason frá Kistufelli og Viðar
Bjarnason, Ásólfsskála, en þeir
eru allir vélasafnarar sem gaman
er að kynnast. Þá er komið við á
Sunnlenskum sveitadögum, sýningu
Fornvélafélags Íslands á Hvolsvelli,
Pardus-akstursleikninni á Hofsósi,
Traktorstorfærunni á Flúðum og í
Skógræktinni í Hallormsstað þar
sem aldnir höfðingjar eru enn í fullri
vinnu. Efnisöflun fór fram sumarið
2012.
HS Tókatækni er fyrirtæki
Hjalta Stefánssonar og Heiðar
Óskar Helgadóttur. Hjalti er lands-
mönnum að góðu kunnur sem
myndatökumaður Sjónvarpsins á
Austurlandi á árunum 1999-2012,
þar sem hann sá að mestu leyti
um myndatökur og klippingar
Sjónvarpsfrétta og annars
sjónvarpsefnis af Austurlandi. Ekki
skemmir fyrir að Hjalti er mikill
áhugamaður um dráttarvélar og hefur
varið frístundum við að koma sínum
eigin vélum í gott stand.
HS Tókatækni með DVD-
diska um eldri dráttarvélar