Bændablaðið - 24.01.2013, Side 40
40 Bændablaðið | Fimmtudagur 24. janúar 2013
Íslensk hönnun
Vöruhönnuðirnir Edda Jóna
Gylfadóttir og Helga Björg
Jónasardóttir stofnuðu hönnunar-
fyrirtækið Björg í bú árið 2009,
fljótlega eftir útskrift úr Listaháskóla
Íslands. Hönnun þeirra er æði
fjölbreytt, allt frá skurðarbretti,
hnífastandi, hitaplöttum og flíkum
úr íslenskri ull.
Upphaf:
Við byrjuðum að vinna saman strax
eftir útskrift úr LHÍ, þar sem við
vorum í raun í miðju kafi við að
þróa verkefni sem var mjög stórt
og viðamikið. Þetta verkefni heitir
Örflögur (Arctic snack) sem eru
hollar, fitulausar kartöfluflögur sem
við síðan kynntum á Hönnunarmars
árið 2011. Við stofnuðum Björg í bú í
upphafi þessarar vinnu og höfum verið
að síðan.
Hráefni:
Síðan 2009 höfum við sett ýmsar aðrar
vörur á markað undir vörumerkinu
BÚ. Björg í bú hefur alltaf lagt áherslu
á íslenska framleiðslu í hönnun sinni
og kappkostar að nýta þá möguleika
sem finnast hjá íslenskum framleiðslu-
fyrirtækjum. Þannig höfum við til
dæmis unnið mikið með íslensku
ullina. Peysuleysi er ein þeirra vara
sem við höfum þróað úr íslenskri ull
og hefur fengið frábærar viðtökur.
Það gerðum við í samstarfi við Glófa.
Peysuleysið er margnota flík sem hægt
er að nota á óteljandi marga vegu.
Síðan höfum við einnig hannað litríka
vöru úr ull sem er BÚ-hitaplattar, sem
og BÚ-Hlýju sem er hlýtt höfuðfat
fyrir ekta íslenskar aðstæður.
Við höfum einnig notað annan
náttúrulegan efnivið eins og timbur/
við. Úr honum hafa komið á markað
nokkrar vörur eins og BÚ- hnífa segull,
BÚ-kjötbretti og BÚ- barnagull.
Innblástur:
Allt mögulegt veitir okkur innblástur.
Náttúran, umhverfið, mannlífið,
húmor og tilfinningar. Einnig alls
kyns efni og ónýttir möguleikar
sem við sjáum eitthvað sniðugt út
úr. Okkur finnst gaman að fíflast og
gerum það eins oft og við getum. Þá
fæðast alltaf einhverjar skemmtilegar
hugmyndir.
Fram undan:
Við erum alltaf með hugann við
frekari þróun á okkar eigin vörum
og að búa til eitthvað nýtt. Við
erum í augnablikinu að vinna að
vörum sem við stefnum á að kynna á
Hönnunarmars í mars á þessu ári. Það
er alltaf gaman að vera með á þessum
einstaka hönnunarviðburði á Íslandi.
/ehg
Leggja áherslu á íslenska framleiðslu
Vöruhönnuðirnir Edda Jóna Gylfadóttir og Helga Björg Jónasardóttir stofnuðu hönnunarfyrirtækið Björg í bú árið 2009 og hafa sett fjölmargar vörur á markað.
Edda Jóna og Helga Björg hafa notað náttúrulegan efnivið sem úr hafa
orðið BÚ-hnífasegull og BÚ-kjötbretti ásamt BÚ-barnagullum.
Skínandi festi með endurskini. Húfurnar Hlýja úr íslenskri ull.
Litríku BÚ-hitaplattarnir sem gerðir eru úr ull.
Björg í bú tók þátt í hönnunar-
samkeppni um nytjahlut í anda Ás-
mundar Sveinssonar sem verslun-
in Kraum, Listasafn Reykjavíkur og
Hönnunarmiðstöð Íslands stóðu
fyrir árið 2010. Hér er verðlauna-
tillagan, Minn Ásmundur, sem er
þrívíddarpúsluspil.