Bændablaðið - 28.11.2013, Qupperneq 8
Bændablaðið | Fimmtudagur 28. nóvember 20138
Fréttir
Saga Travel hlaut nýsköpunar-
verðlaun sem afhent voru á á
dögunum og er þetta í tíunda sinn
sem Samtök ferðaþjónustunnar
afhenda verðlaunin.
Saga Travel er alhliða ferða-
skipuleggjandi og ferðaskrifstofa sem
lagt hefur metnað sinn í vöruþróun
í samvinnu við fjölda fyrirtækja
í landinu öllu og heimafólk á
Norðurlandi. Fyrirtækið hefur skapað
sér verðugan sess í íslenskri ferða-
þjónustu norðan heiða með því að
bjóða upp á fjölbreytta afþreyingu
og nýjar ferðavörur á öllum tímum
ársins og jafnvel á öllum tímum
sólarhringsins.
Afar mikilvægt er að huga að
vöruþróun í þeirri ört vaxandi atvinnu-
grein sem ferðaþjónusta á Íslandi er í
dag með það fyrir augum að nýta betur
innviði og auka framlegð í greininni.
Fyrirtækið Saga Travel hefur
skapað sér verðugan sess í íslenskri
ferðaþjónustu og hefur sannarlega
verið vítamínsprauta í vöruþróun
ferðaþjónustu á Norður landi, segir í
fréttatilkynningu frá SAF.
Saga Travel fékk nýsköpunarverðlaun
Samþykkt hefur verið að ráðast
í nauðsynlegar steypuviðgerðir
á Skrapatungurétt til að bjarga
henni frá yfirvofandi skemmdum.
Er það nauðsynlegt til að koma í
veg fyrir frekari skemmdir. Það
eru Blönduósbær og sveitarfélagið
Skagabyggð sem ætla að hafa sam-
vinnu um verkið. Sagt er frá þessu
á Húnahorninu.
Jafnframt ætlar bæjarstjórn
Blönduóss, í samvinnu við Skaga-
byggð, að gera úttekt og kostnaðar-
áætlun um aðrar nauðsynlegar
viðgerðir á réttinni og verður gert ráð
fyrir því við gerð fjárhagsáætlunar
Blönduósbæjar fyrir árið 2014.
Skrapatungurétt var byggð
árið 1957 að frumkvæði tveggja
sveitarfélaga, Engihlíðarhrepps og
Vindhælishrepps. Við sameiningu
Blönduóss og Engihlíðarhrepps
annars vegar og Vindhælishrepps
og Skagahrepps hins vegar er réttin
í umsjón þessara sameinuðu sveitar-
félaga og upprekstrafélaga þeirra, en
þau nýta réttina sem skilarétt, bæði
fyrir sauðfé og hross.
Í mörg ár hefur Skrapatungurétt
verið landsfræg sem stóðrétt í
tengslum við ævintýrasmalamennsku
á Laxárdal og er því ánægjulegt að
sjá fyrir endann á þessari nauðsyn-
legu viðgerð.
Tinna borgar lífgjöfina
Þegar fé á Krossnesi í Árneshreppi
á Ströndum var tekið inn á gjöf
og til rúnings og smalað saman af
heimalandi og eyðibýlinu Felli á
laugardag kom um mánaðargamalt
lamb með fénu úr Fellsdalnum.
Móðurinni, sem heitir Tinna, var
sleppt út í vor sem geldri á jafnt og
hrútum, sem oftast er gert til að fá
pláss vegna sauðburðarins. Svo hefur
hún komist í hrút fljótt eftir það og
kemur nú heim með þetta vænlegasta
hrútlamb.
Tinna hefur verið gjöful ær gegn-
um árin, en hún er nú á tíunda vetri.
Úlfar Eyjólfsson bóndi á
Krossnesi segir að ekkert hafi
verið tekið eftir því að Tinna hafi
verið sverari um sig en aðrar ær
um sláturtíð. Henni hafi verið gefið
líf vegna þess hvað hún hafi verið
frjósöm alla sína tíð, jafnan verið
þrílembd og tvílembd.
„Núna kom hún með þetta
hrútlamb. Hvort hún hefur átt fleiri
veit enginn og ekki hægt að segja
til um, en þessi ær hefur alltaf
verið svolítið sérstök,“ segir Úlfar.
Vetrararlamb eða jafnvel jólalamb
má því kalla þetta hrútlamb undan
henni Tinnu á Krossnesi.
/Jón Guðbjörn Guðjónsson
Verklagsreglur BÍ um ráðstöfun fjár vegna ullarnýtingar birtar:
Ein umsókn barst um stuðning
til söfnunar ullar
Hinn 23. nóvember 2012
staðfesti atvinnuvega- og
nýsköpunarráðherra verklags-
reglur Bændasamtaka Íslands
um ráðstöfun fjár vegna ullar-
nýtingar. Reglurnar voru birtar í
Stjórnartíðindum sama dag.
Mánudaginn 30. september
2013 var auglýst eftir umsóknum
um stuðning til söfnunar ullar á
vef Bændasamtakanna, bondi.is og
síðan í Bændablaðinu 3. október
2013. Umsóknarfrestur rann út
hinn 17. október og þegar þetta
er skrifað hafði aðeins borist ein
umsókn. Sá umsækjandi, ÍSTEX
hf., er reiðubúinn að uppfylla öll
skilyrði samkvæmt 3. og 4. gr.
verklagsreglnanna.
Um fyrirkomulag um greiðslur
til bænda segir í 1. tölul. 1. mgr.
2. gr. verklagsreglnanna að
fjármunum til ullarnýtingar skuli
ráðstafað þannig að að minnsta
kosti 84% skulu greiðast til
bænda og skal fjárhæðinni deilt
niður hlutfallslega eftir gæðum á
hvert kíló hreinnar ullar miðað við
alla innlagða ull á tímabilinu 1.
nóvember–31. október samkvæmt
verðskrá sem Bændasamtök
Íslands útbúa.
Stjórn Bændasamtaka Íslands
fjallaði fimmtudaginn 17. október
síðastliðinn um svofellda tillögu að
verðskrá og fyrirkomulagi vegna
greiðslna til bænda, sbr. 1. tölul.
1. mgr. 2. gr. verklagsreglnanna.
Fjárhæðir eru áætlaðar og birtar
með fyrirvara um breytingar á
fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2014.
Meðfylgjandi töflur voru birtar
með annarri frétt um málið í Bænda-
blaðinu 17. október. Þar slæddust
inn inn röng ártöl um greiðsludaga
innvigtunar mánaðanna sem að
sjálfsögðu eiga að miða við næsta
ár 2014. Þá hefur dagsetningu
greiðsludags í nóvember 2014 verið
breitt frá því sem áður var birt.
Um ráðstöfun fjár vegna
ullarnýtingar gilda áður nefndar
verklagsreglur Bændasamtaka
Íslands nr. 993/2012. Verklags-
reglurnar eru aðgengilegar á bondi.
is og á vef Stjórnartíðinda. Nánari
upplýsingar veitir félagssvið
Bændasamtaka Íslands.
Almanak
Háskóla Íslands 2014
H Á S K Ó L A Ú T G Á F A N
haskolautgafan.hi.is – hu@hi.is – s. 525 4003
Almanak
Þjóðvinafélagsins 2014
ALMANAKHins íslenskaþjóðvinafélags
2014
Árbók Íslands
2012
140. árgangur
ALMANAK ÞJÓÐVINAFÉLAGSINS 2014 - ÁRBÓK
2012
Komin í helstu bókaverslanir um land allt.
Bærinn Krossnes í Árneshreppi.
Ærin Tinna númer 1311 með hrút-
lambið í fjárhúsunum á Krossnesi.
Myndir / Jón Guðbjörn Guðjónsson Litlu-Ávík
Sævar Freyr Sigurðsson, stofnandi Saga Travel, með Ragnheiði Elínu
Árnadóttur ferðamálaráðherra sem afhenti verðlaunin og Árni Gunnarssyni,
formanni SAF.
Farið í viðgerðir á Skrapatungurétt
Nýir leigutakar með Laxá í Refasveit
Nýir leigutakar hafa tekið við Laxá
á Refasveit, en það eru þeir Atli Þór
Gunnarsson á Mánaskál, Benedikt
Sigfús Þórisson í Skrapatungu og
Sindri Páll Bjarnason á Neðri-
Mýrum. Skipulagi veiði í ánni
verður breytt á næsta tímabili og
selt verður sér í Norðurá.
Á næsta tímabili verður heimilt
að halda eftir einum laxi á hverja
stöng daglega en eftir það má veiða
og sleppa að vild. Þá verður mælst til
að veiðimenn sleppi hrygnum lengri
en 70 cm. Eru þetta aðgerðir til að
byggja upp stofn árinnar enn frekar.
Veiðileyfi í Norðurá verða seld
sér en ekki með veiðileyfum í Laxá
eins og verið hefur og er það gert til
að reyna að auka veiði í Norðurá.
Veiðimenn hafa lítið reynt fyrir
sér í ánni fram að þessu. Urriði er
staðbundinn í ánni og að auki hefur
laxi verið sleppt í ána. Sleppa skal
öllum laxi veiddum í Norðurá en
taka má allan urriða.
Veiði í Laxá á síðasta ári var góð,
475 laxar í heildina. Meðalveiði
Laxár síðastliðin fimm ár var 320
laxar á tvær til þrjár stangir. Sala
veiðileyfa er hafin og er hægt að
panta veiðileyfi á síðunni www.
refasveit.is.
Verðskrá fyrir ull*
Nr Gæðaflokkur Áætlað verð Stuðlar
10 H- Lamb 582 1,25
11 H-1 Flokkur 558 1,20
12 H-2 Flokkur 489 1,05
13 H-2 Lamb (lítið gölluð) 558 1,20
14 M-Svart 512 1,10
15 M-Grátt 512 1,10
16 M-Mórautt 512 1,10
22 M-2 Flokkur 140 0,30
23 M-3 Flokkur
24 Úrkast
26 Greitt f. Flokkun
Nóvember - desember 1. febrúar 2014
Janúar 1. mars 2014
Febrúar 1. apríl 2014
Mars 1. maí 2014
Apríl 1. júní 2014
Maí - júlí 1. september 2014
Ágúst - september 20. nóvember 2014