Bændablaðið - 28.11.2013, Page 23
23Bændablaðið | Fimmtudagur 28. nóvember 2013
CLAAS Arion 550 comfort
FR
U
M
-
w
w
w
.f
ru
m
.is
Gylfaflöt 32 112 Reykjavík Sími 580 8200 www.velfang.is Óseyri 2 600 Akureyri
VERKIN TALA
165 hestafla 4 cyl. mótor
án Ad-Blue búnaðar
Verð:
kr. 12.600.000+vsk
Gengi € kr. 162
Vélin er mjög vel búin
og má þar nefna fjögurra
hraða aflúrtak, rafmagns
stjórnun á vökvaspólum/
ámoksturstækjum í arm hvílu
(electropilot) alfjaðrandi
stórglæsilegt stýrishús
sem hannað er í samvinnu
við bændur, 10 vinnuljós,
loftkæling, vökvaskotkrókur,
vökvavendigír, vökvaskiptur
gírkassi 4x6, öryggisbelti í
báðum sætum, útvarp/Mp3,
afturrúðuþurrka, nestisbox,
drykkjarkælir o.m.fl.
Dekk: 600/65R38 480/65R28
Continental
Til viðbótar fylgir veglegur
aukahlutapakki til áramóta
að andvirði 750.000 kr. Hann
inniheldur fjaðrandi framhás-
ingu, upphitaða afturrúðu og
hliðarspegla og eitt albesta
Grammer ökumannssæti sem
fáanlegt er.
Ps. Trima + 4.1 með sveiflu-
jöfnun, þriðja sviði, vökva-
skóflu lás og 2,2 m skóflu
ásett á traktorinn kosta
kr. 1.750.000+vsk.
Fallegt 178 fm einsbýlishús á góðum stað á Patreks-
firði til sölu. Þrjú svefnherbergi, rúmgóður bílskúr,
laust við kaupsamning. Lýsing eignar og myndir á
vefsíðu http://www.as.is/soluskra/eign/283677.
Nánari upplýsingar er hægt að fá hjá Eiríki Svani
Sigfússyni löggiltum fasteignasala í síma 862-3377.
GOTT TÆKIFÆRI - TILBOÐ ÓSKAST
Bændablaðið
Kemur næst út
12.
desember
KAUPI BER
Vantar krækiber
Íslensk hollusta ehf
islenskhollusta@islenskhollusta.is - sími 864-4755
Plastgluggar eru framtíðin
Nú er hægt að fá ódýra og viðhaldsfría plastglugga sem líta út eins og hefðbundnir timburgluggar.
„Ég mæli hiklaust með þessu við aðra bændur,“ segir bóndinn í Efstadal.
„Þetta er besta lausnin sem ég rakst á í
öllum mínum framkvæmdum og það sem
í raun kom mér mest ánægjulega á óvart,“
segir Snæbjörn Sigurðsson, bóndi á bænum
Efstadal á Suðurlandi. „Ég gerði fjárhags-
og byggingaráætlun fyrir allan pakkann
og þetta var það sem kom best út að mínu
mati.“
Snæbjörn er kúa- og ferðaþjónustubóndi
með umfangsmikinn rekstur sem felur m.a. í
sér veitingastað, ísbúð, fjós og sýningarfjós.
Í kringum síðustu áramót lagðist hann í
viðamiklar framkvæmdir og skipti meðal
annars um alla glugga hjá sér, um 80 talsins,
í íbúðarhúsi, fjósum o.fl. Eftir að hafa kynnt
sér þær lausnir sem voru í boði ákvað hann
að leita til Glerborgar. „Ég sá að þarna myndi
ég gera bestu kaupin og fá vandaða vöru
á góðu verði. Nú er komin dálítil reynsla
á þetta og ég sé svo sannarlega ekki eftir
þessari ákvörðun,“ segir Snæbjörn.
Henta vel í gripahús
Glerborg býður upp á plastglugga sem eru
hagkvæmir af ýmsum ástæðum. Á veitinga-
staðinn valdi Snæbjörn hvíta PVC glugga
úr 120 mm prófíl með galvaniseruðum stál-
kjarna en einn helsti kosturinn við þá er að
þeir líta út eins og hefðbundnir timbur-
gluggar. Í fjósin keypti hann glugga úr
70 mm prófíl og hann finnur mikinn mun
eftir að hann skipti út þeim gömlu. Þessir
opnast inn á við að ofan og er læsingin efst
á faginu svo engin hætta er á að gripirnir
nagi húnana. „Timbrið verður oft svo ljótt ef
dýrin ná til þess svo það er engin spurning
að þessir gluggar henta einstaklega vel í
gripahús. Svo vill maður auðvitað hafa
öndun í fjósinu sem mesta og með svona
glugga þarf ekki að hafa neinar áhyggjur
af því að þeir fjúki upp,“ segir Snæbjörn, en
þetta þýðir að hægt er að hafa gluggana
opna í hvernig veðri sem er. „Þeir þétta líka
vel og eru einangrandi.“
Ódýrt og viðhaldsfrítt
Snæbjörn segir plastgluggana afar hag-
kvæma, þeir séu ódýrari en hefðbundnir
timburgluggar og eigi auk þess að endast
vel þar sem plastið veiti góða vörn. „Þetta
er líka viðhaldsfrí vara og það munar heldur
betur um það, ekki síst þegar maður er
með svona stór og mikil hús. Hefðbundna
glugga þarf reglulega að mála og það vill
nú dragast hjá mönnum að sinna slíku. Þess
vegna er auðvitað frábært að þurfa ekki að
standa í viðhaldi,“ segir hann.
Snæbjörn hyggur jafnvel á enn meiri fram-
kvæmdir og segir að þá muni hann leita
aftur til Glerborgar. „Ef ég væri t.d. að fara út
í endurbætur á hesthúsinu myndi ég kaupa
þessar vörur aftur og ég mæli hiklaust með
þeim við aðra bændur. Þetta kemur mjög
snyrtilega út, það var einfalt og gott að setja
gluggana í og öll umgengni við þá er mjög
þægileg,“ segir hann að lokum.
Einn helsti kosturinn við plast-
gluggana er að þeir líta út eins
og hefðbundnir timburgluggar.
Snæbjörn lét skipta um 80 glugga hjá sér svo það var
umfangsmikinn rekstur. Hann kaus að skipta við Gler-
borg eftir að hafa kynnt sér þær lausnir sem í boði voru.
Gluggarnir sem opnast inn á við að ofan hafa læsingu
efst á faginu svo dýrin nái ekki til þeirra. Þeir henta því
afar vel í gripahús.
„Þetta er besta lausnin
sem ég rakst á í öllum
mínum framkvæmdum.“
„Það er engin spurning
að þessir gluggar henta
einstaklega vel í gripa-
hús.“
„Þetta er líka viðhaldsfrí
vara og það munar
heldur betur um það.“