Bændablaðið - 28.11.2013, Blaðsíða 24
24 Bændablaðið | Fimmtudagur 28. nóvember 2013
Finnbogi Geirsson forstjóri
stofnaði fyrirtækið Stjörnublikk
í Vesturvörinni í Kópavogi árið
1990. Fyrirtækið byrjaði smátt
en hefur stækkað jafnt og þétt og
flutt nokkrum sinnum í stærra
húsnæði. Nú er það á Smiðjuvegi
2 og er eitt öflugasta fyrirtæki á
sínu sviði á landinu.
Finnbogi segir að þegar hann
stofnaði fyrirtækið hafi hann verið í
90 fermetra húsnæði í Vesturvörinni
í Kópavogi með einn strák sér til
aðstoðar. „Í byrjun var þetta hrein
blikksmiðja og nær öll verkefni
fengust á tilboðsmarkaði. Síðan hefur
fyrirtækið stækkað og Magnús bróðir
minn kom inn í það nokkrum árum
seinna. Úr Vesturvörinni fluttum við í
150 fermetra húsnæði að Smiðjuvegi
1. Þaðan fórum við á Smiðjuveg 11
í 200 fermetra húsnæði. Árið 1994
komum við svo hér á Smiðjuveg 2
í 400 fermetra húsnæði. Hér hefur
fyrirtækið stækkað mjög mikið og
í dag eigum við 7.200 fermetra í
þessari húsasamstæðu og eins í
húsum hér í kring. Af þessu húsnæði
leigjum við út frá okkur nærri 3.000
fermetra.
Lengi vel komu 95% tekna okkar
af verktakastarfsemi. Fyrir nokkrum
árum ákváðum við að reyna að breyta
þessu þannig að verktakastarfsemin
hefði ekki svona mikið vægi í
restrinum. Hef ég því unnið að því að
að stækka framleiðslu- og söluþáttinn
í starfseminni. Nú koma um 60% af
tekjunum úr verktakastarfsemi og um
40% af vörusölu.“
-Þið eruð þá væntanlega með
eitthvað af erlendum umboðum?
„Já, við erum með fjölmörg
umboð og flytjum inn frá flestum
löndum Evrópu. Þar erum við að
flytja inn stál og ál, vatns kassa,
steypustyrktarmottur, steypustyrktar-
járn og ýmsar vörur sem við liggjum
með á lager. Einnig framleiðum við
bárujárn, klæðningar og fleira.“
Upprunnir á Steinum undir
Eyjafjöllum
Bræðurnir í Stjörnublikki hafa alla tíð
unnið mikið fyrir bændur landsins,
enda sjálfir fæddir og uppaldir í
sveit, á bænum Steinum undir
Eyjafjöllum. Auk fyrirtækisins eiga
þeir nú jörðina Fornusanda sem þeir
keyptu árið 1995, þar sem rekin er
hrossarækt og fjárbúskapur. Margir
af starfsmönnum þeirra eru líka úr
sveit.
Mikil uppbygging fyrirtækja í
blikk- og annarri málmsmíði er þekkt
á uppgangstímum í gegnum tíðina.
Oftar en ekki hafa menn þá reist sér
hurðarás um öxl og fyrirtækin fallið
með tilheyrandi gjaldþrotum. Það
lá því beinast að spyrja Finnboga af
hverju sömu lögmál giltu ekki um
Stjörnublikk.
„Við höfum verið mjög heppnir.
Við höfum byggt þetta rólega upp og
haft þá stöðu að geta stækkað inni í
þessu húsi, sem hefur verið mikið
hagræði. Eftir því sem fyrirtækið
hefur vaxið höfum við keypt meira af
þessari húsasamstæðu. Við byrjuðum
hér í 400 fermetrum og höfum síðan
smám saman bætt við okkur.“
Gott uppeldi í sveitinni skilaði sér
Finnbogi segir að uppeldið í sveitinni
hafi komið sér vel. Þar hafi menn
lært að vinna og haga fjármálum af
skynsemi. Þar hafi hann lært mikið
af föður sínum Geir Tryggvasyni
sem sá m.a. um að safna ull af
bæjunum í Rangárvallasýslu
og Vestur-Skaftafellssýslu fyrir
Álafossverksmiðjuna og einnig var
hann í fjárflutningum í sláturhús fyrir
bændur á haustin. Oftar en ekki var
Finnbogi með honum og kynntist þá
bændum á fjölmörgum bæjum og
þekkir því vel til.
„Ég lærði mikið af honum. Svo
flutti ég í bæinn 19 ára gamall og
fór þá að læra blikksmíði. Fyrirtækið
stofnaði ég svo um leið og ég fékk
meistarabréfið 1990.
Reynslan úr sveitinni kenndi
manni að fara varlega og ég hef því
ekki tekið í þátt í áhættusæknum
verkefnum. Stjörnublikk er því eitt
af fáum fyrirtækjum sem ekki hafa
þurft á aðstoð að halda eftir hrun og
eftir það höfum farið í mjög miklar
fjárfestingar og að mestu leyti fyrir
eigið fé.
Ég var reyndar handviss um að
illa færi fyrir hrun. Ég var búinn
að sjá að á þeim tíma voru menn
að kaupa fyrirtæki og fasteignir á
óraunhæfu verði sem útilokað var
að menn gætu nokkurn tíma staðið
undir. Þessi bóla hlaut því að springa
og gat ekki farið öðruvísi, þó að ég
vissi ekki á þeim tíma að menn voru
líka búnir að ræna bankana innan frá.
Staðan í dag er þannig að ég tel að
það sé ekki búið að afskrifa nóg hjá
fyrirtækjum til að þetta geti staðist.
Starfshættir bankanna hafa líka mjög
lítið breyst frá því fyrir hrun.“
Finnbogi segist ekki skilja af
hverju hlutafélagalögin hafi ekki
Fyrirtækinu Stjörnublikki á Smiðjuveginum í Kópavogi vex stöðugt fiskur um hrygg:
Eigendurnir komu úr sveitinni og hafa
unnið mikið fyrir íslenska bændur
– Nú starfa um 60 manns hjá félaginu og öll starfsemin er rekin á eigin fé fyrirtækisins
Myndir/HKr.