Bændablaðið - 28.11.2013, Síða 50
50 Bændablaðið | Fimmtudagur 28. nóvember 2013
Utan úr heimi
Dagana 12. til 16. nóvember
fór fram þýska stórsýningin
Agritechnica, en hún er sérhæfð
sýning fyrir vélar og tæknibúnað
í landbúnaði og er haldin annað
hvert ár.
Agritechnica, sem haldin
er í Hannover í Þýskalandi, er
stærsta landbúnaðarsýning í heimi
sem er haldin innandyra og er
sýningarsvæðið 41 hektari að stærð
enda ekki vanþörf á þar sem í ár tóku
2.898 sýnendur frá 47 löndum þátt
og er það nýtt met.
450 þúsund gestir
Nýtt met var einnig sett í fjölda
gesta, en 450 þúsund gestir komu á
þessa stórsýningu sem er 40 þúsund
fleiri gestir en mættu á sýninguna
árið 2011. Af þessum gríðarlega
mikla fjölda voru erlendir gestir
112 þúsund og þar af voru um 100
Íslendingar á svæðinu enda stóðu
nokkur íslensk vélafyrirtæki fyrir
hópferðum á sýninguna í ár.
400 nýjungar kynntar
Agritechnica er drifkraftur
frumkvöðlastarfs í landbúnaðar-
tækni sem kemur fram í öllum
þeim nýjungum sem fyrirtæki
heimsins leggja áherslu á að
kynna á sýningunni. Til þess að
geta sagt að um nýjung sé að
ræða má viðkomandi tæki eða
tæknilega lausn ekki hafa verið
kynnt opinberlega áður og þurfa
fyrirtækin að leggja fram ýtarleg
gögn til sérstakrar dómnefndar.
Dómnefndin metur svo hvort um
tæknibyltingu sé að ræða og þá fær
viðkomandi nýjung gullverðlaun.
Sé um verulega endurhönnun eða
aðlögun að tækni annars staðar frá
að ræða fær nýjungin silfurverðlaun
og bronsverðlaun eru veitt nýjungum
sem byggja á breyttum tæknilegum
útfærslum. Í ár voru kynntar alls
400 nýjungar sem hlutu verðlaun
og þar af fjórar nýjungar sem hlutu
gullverðlaunin.
Dráttarvélahermir Claas
Þýska vélafyrirtækið Claas var
með sjö nýjungar á sýningunni og
þar af fékk fyrirtækið gullverðlaun
fyrir eina en þar er um að ræða
tölvuforrit sem kaupendur Claas
dráttarvéla og þreskivéla geta
nálgast á netinu og æft sig í notkun
vélanna á heimilistölvunni sinni.
Allar nýjar vélar í dag eru búnar
afar flóknum tölvubúnaði og því
er þessi dráttarvélahermir einstakt
hjálpartæki og Claas afar vel að
þessum verðlaunum komið.
Tvinnskotbómulyftari
Meðal gullverðlaunahafa í ár var
einnig skotbómulyftari sem gengur
bæði fyrir rafmagni og hráolíu og
mætti því kalla tvinnskotbómulyftara.
Það var vélaframleiðandinn Merlo
sem kynnti þessa tæknibyltingu en
skotbómulyftarinn nýtist sérlega
vel þar sem loftræsting er lítil og
því upplagt að vera með tæki sem
mengar ekki með útblæstri.
Lofthreinsibúnaður flokkar
kartöflur
Vélaframleiðandinn Grimme
fékk einnig gullverðlaun fyrir
byltingarkennda nýjung sína
við grjóthreinsun við upptöku á
kartöflum. Vél þessi, sem kallast
einfaldlega SV-260, er búin
sérstökum búnaði sem heitir AirSep
sem gerir það að verkum að vélin
getur flokkað kartöflur frá jarðvegi,
grjóti og öðrum óhreinindum með
því að lofti er blásið upp undir
færiband sem flytur kartöflurnar.
Þessi nýji búnaður þykir sérlega
heppilegur þar sem mikið er af
grjóti í landi og sparar handavinnu
við flokkun.
Nákvæm áburðardreifing
Síðasta fyrirtækið í röðinni sem
hlaut gullverðlaun var Rauch, sem
framleiðir áburðardreifara m.a.
fyrir Kuhn. Dreifarinn Axmat er
Véla- og tæknisýningin Agritechnica 2013 í Hannover í Þýskalandi:
Nýtt met var sett í fjölda gesta
Á sýningarsvæði John Deere. Margt var um manninn á sýningunni eins og sjá má.
Á svona stórri landbúnaðarsýningu má búast við því að mörg tæki og tól henti alls ekki fyrir hérlendar aðstæður
og þó svo að margt henti klárlega er óvíst að þessi vél hér henti við íslenskar aðstæður.
Hinir heimsfrægu Peterson Farm Brothers komu fram og vöktu verðskuldaða
athygli.