Bændablaðið - 28.11.2013, Blaðsíða 63
63Bændablaðið | Fimmtudagur 28. nóvember 2013
Eigum allar síur í New Holland og JCB á lager
Skeiðarás 3 Garðabær Sími 5272600 velavit@velavit.is
Varahlutir - Viðgerðir
sérhæfum okkur í JCB Hydrema Iveco New
Holland og Case
Vélavit
Oftast ódýrastir!
JCB
Greiðslumark í sauðfé. Tilboð ósk-
ast í 81,7 ærgildi af greiðslumarki
til sauðfjárframleiðslu. Tilboð berist
Búnaðarsambandi Suðurlands fyrir
10. des. merkt tilboð í kvóta.
Óska eftir færanlegum vinnuskúr/
gámi með kaffi-og salernisaðstöðu.
Uppl. í síma 859-2010.
Óska eftir framhásingu úr Land
cruiser hj60 sem er orginal ólæst,
má vera með ARB loftlæsingu. árg.
´82 -´89. Uppl. í síma 695-3189.
Óska eftir að kaupa vinnuskúr, gaml-
an bústað, hálfkláraðan bústað. Ég
skoða allt. Uppl. í síma 772-5961,
Freyr.
Gamalt leikfang. Leikfangagufuvél
óskast keypt. Uppl. í síma 893-0878,
eða á netfangið flatey48@hotmail.
com.
Óska eftir gamalli dráttarvél m.
ámoksturstækjum 30-50 hestöfl. Má
þarfnast einhverjar lagfæringar. Uppl.
í síma 899-5801.
Óska eftir að kaupa notaðar Krone
diskasláttuvélar til niðurrifs. Uppl. í
síma 893-7616, Kristinn.
Óska eftir að kaupa þýskan drátt-
arkrók ásamt brakketinu á Case
maxum 5150 (passar líka af Case
/ McCormik , MC ,MX, MTX) Uppl. í
síma 893-7616, Kristinn.
Óska eftir að kaupa 2 stk. traktors-
dekk stærð 18,4 x 15-34. Uppl. í síma
892-0947.
Tvo efnilega Border-Collie (rúml.
60%) blendingshvolpa bráðvantar
nýtt heimili. Ljúfir og mannelskir.
Eru á Fljótsdalshéraði. Uppl. í símum
898-617 og 898-6518.
Tæplega fertugur Spánverji,
Sánchez að nafni óskar eftir starfi á
Íslandi, er opinn fyrir öllu. Duglegur
til vinnu og talar spænsku, frönsku
og ensku. Uppl. á netfanginu sanc-
hezromeroe@gmail.com
Armando La Sala, rúmlega tvítugur
Ítali, óskar eftir starfi á Íslandi. Hefur
reynslu af hótelstarfi og hefur unnið
sem þjónn. Talar góða ensku. Uppl. á
netfanginu; armando.qak@hotmail.it
Eldklár, glaður og góður, 8 mánaða
Border Collie (mestmegnis) hvolpur
þarfnast meiri hreyfingar og útiveru
en núverandi eigendur geta veitt
honum. Örmerktur, bólusettur og
ormahreinsaður. Fljótur að læra.
Verður eflaust frábær fjárhundur.
Uppl. í síma 695-2213.
Miðaldra kona vill kynnast miðaldra/
eldri jákvæðum manni með félags-
skap í huga. Áhugamál; ferðalög og
útivist. Ef þetta á við þig sendu skila-
boð í síma 698-4582.
Lesbók Tímans frá árunum 1962 til
1972, 23 bækur innbundnar til sölu.
Uppl. í síma 566-6157.
Bændur - verktakar! Skerum örygg-
isgler í bíla, báta og vinnuvélar.
Sendum hvert á land sem er. Skiptum
einnig um rúður í bílum. Vinnum fyrir
öll tryggingarfélögin. Margra ára
reynsla. BílaGlerið ehf. Bíldshöfða
16 110 RVK. Sími 587-6510.
GB Bókhald. Tek að mér að færa bók-
hald - skila vsk.skýrslu - geri ársreikn-
inga - geri og skila skattaskýrslu - er
með dk+dkBúbót.Gerða Bjarnadóttir.
Netfang gbbokhald@gmail.com símar
431-3336 og 861-3336.
Húsasmíðanám með vinnu – loka-
önn 2014. Á vorönn mun nám á
lokaönn í húsasmíði verða í boði við
Menntaskólann á Ísafirði ef næg þátt-
taka fæst. Kennslan mun fara fram
um helgar og í fjarnámi. Nánari upp-
lýsingar á misa.is
HEYRNAR
HLÍFAR
Í JÓLAPAKKANN!
Skeifunni 3 - Sími: 588 5080 - dynjandi.is
Gleðileg jól!Úr hörpu hugans:
Baldvin í Torfunesi gefur
út aðra plötu sína
Úr hörpu hugans er önnur plata
Baldvins Kr. Baldvinssonar,
hrossaræktanda og stórbónda í
Torfunesi. Á plötunni er að finna
átján lög sem öll eiga
það sameiginlegt að
vera einlæg og falleg
en söngur Baldvins,
er í senn lifandi og
tilfinningaríkur, sem
skilar sér beint til
hlustandans. Platan
kom upphaf lega
út skömmu fyrir
jólin 2010 en
vegna skyndilegs
fráfalls Brynhildar
Þráinsdóttur, konu Baldvins, varð
ekkert úr tónleikum til kynningar
á plötunni og lá hún því nokkuð
óbætt hjá garði um sinn. Nú hefur
Baldvin hins vegar hafið upp raust
sína á ný og fylgir nú plötunni úr
hlaði með þeim hætti sem stefnt var
að í upphafi.
Árið 1994 gaf Baldvin út
geisladisk með einsöngslögum, en
áður hafði hann gefið út plötuna
Rangárbræður með Baldri bróður
sínum. Baldvin hefur auk þess
sungið með fjölda kóra og var
virkur meðlimur í Karlakórnum
Hreimi um árabil. Þá hefur
Baldvin tekið þátt
í margvíslegum
uppfærslum, til
að mynda Evítu
sem sett var
upp á Akureyri.
Hann syngur í
dag með kirkju kór
Þóroddsstaðasóknar.
Á plötunni
Úr hörpu hugans
slær Baldvin trúar-
strenginn, sem hann
hefur ætíð átt í hörpu hugans og lagt
rækt við. Meðal laga eru Allsherjar
drottinn, Kveðja (sól að morgni),
Hvert örstutt spor, Rósin, Sonur
minn sofðu í ró, Lýs milda ljós, Heyr
himna smiður og Ave María. Jón
Stefánsson organisti leikur með og
Kammerkór Langholtskirkju syngur.
Upptökum stjórnaði Sigurður Rúnar.
/fr
Torfunes ræktunarbú
ársins fyrir norðan
Torfunes í Ljósavatnshreppi var á
haustfundi Hrossaræktarsamtaka
Eyfirðinga og Þingeyinga valið
ræktunarbú ársins. Er þetta enn
ein rósin í hnappagat hrossa-
ræktar Baldvins Kr. Baldvinssonar
og fjölskyldu, en í Torfunesi hafa
þau rekið ræktunarbú sitt allt frá
árinu 1978.
Á dögunum kynnti Fagráð í
hrossarækt þau bú sem hljóta árlega
heiðursviðurkenningu Bænda-
samtaka Íslands fyrir ræktunar-
árangur. Tilnefnd voru tíu bú og
var Torfunes eitt þeirra. Hornsteinn
ræktunarinnar í Torfunesi er Toppa
frá Rangá, en langflest hrossin
í ræktuninni eru útaf henni.
Aðalmarkmið ræktunarinnar er að
rækta geðgóð, fagurlega sköpuð
og fjölhæf alhliða hross sem henta
öllum unnendum íslenska hestsins.
Níu hross voru sýnd frá Torfunesi
í ár og er meðalaldur þeirra 5,4 ár.
Ljúfur frá Torfunesi er tíundi hæst
dæmdi fimm vetra stóðhesturinn í ár,
en hann er með 8,32 í aðaleinkunn.
Meðaltal aðaleinkunna hrossanna
er 8,09. Þau Mette Mannseth og
Gísli Gíslason á Þúfum hafa verið
ráðgjafar í þjálfun, ræktun og
sýningum hrossanna undanfarin ár
og vilja ræktendur í Torfunesi færa
þeim sérstakar þakkir fyrir framlag
þeirra.
DALVEGI 16c · 201 KÓPAVOGI
SÍMI 568 6411 · WWW.RAFVORUR.IS
· Tekur heitt vatn > sparneytin
· Stórt op > auðvelt að hlaða
· Þvotta og orkuklassi A
· Engin kol í mótor
12 kg
Þvottavél
Amerísk
gæðavara