Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 01.04.1966, Qupperneq 26

Læknablaðið - 01.04.1966, Qupperneq 26
52 LÆKNABLAÐIi) lega. Hann var fæddur að Hvanneyri i Borgarfirði 1. nóv. 1890, og voru foreldrar hans Valgerður Einarsdóttir og Sveinn Sveins- son skólastjóri, mikill frömuður í búnaðarstétt á þeim árum. Föð- ur sinn missti Ólafur, þegar hann var á öðru ári. Árið 1903 fluttist hann til Reykjavikur og hóf prentnám árið eftir í Isafoldarprent- smiðju hjá Birni Jónssyni. Stundaði hann æ síðan prentiðn og hafði því starfað við hana full 60 ár, er hann féll frá. Ólafur var tvíkvæntur og átti sex börn með konum sínum. Snennna gerðist Ólafur áhugasamur íþróttamaður og vann mikið og gott starf fyrir íþróttamál Islendinga. Eins og kunnugt er, hóf Læknablaðið göngu sína árið 1915 og var fyrstu þrjú árin prentað í Prentsmiðjunni Rún, en síðan í Félagsprentsmiðjunni. 1 Rún komst Ólafur i kynni við blaðið árið 1917, og síðan vann hann óslitið við það alla ævi, þegar frá eru skilin nokkur ár. Kynntist hann þess vegna snemma völund- arhúsum læknamáls og ekki sízt læknaskriftar, og mun enginn leikmaður hafa staðið honum á spcrði að lesa úr því og ráða þær rúnir. Varð mér þetta vel ljóst i starfi mínu, og dáðist ég að því, hversu sýnt honum var að lesa úr ekki allt of greinilegum eða vel búnum handritum til prentunar. Málamaður var Ólafur ágætur. einkum enskumaður, og kom það vel að haldi við setningu er- lendra greina í blaðinu. Auðfundið var, að Ólafur gat verið þéttur fyrir, og hann hélt fast á skoðun sinni, en sannur íþróttaandi og meðfædd lipurð kom í veg fyrir nokkra snurðu á ágætu samstarfi. Er vissulega ánægju- legt að hafa kynnzt manni með þá eiginleika og raunar mikið tjón fyrir Læknablaðið að verða að sjá á bak slíkum starfsmanni. En enginn má sköpum renna og „eitt sinn skal hverr deyja“. Þetta vita allir og þá ekki sízt læknar, sem reyna þó eins lengi og unnt er að tefja fyrir manninum með ljáinn. Þegar hinn mæti og samvizkusami setjari, ólafur Sveinsson, hefur ýtt úr vör í síðasta skipti, skulu honum færðar alúðar])akk- ir ritstjórnar Læknablaðsins fyrir langa og dygga þjónustu. Sjálf- ur vil ég þakka Ólafi mjög ánægjulega samvinnu, sem varð því miður of stutt, en allt um það ógleymanleg. Jón Aðalsteinn Jónsson.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.