Læknablaðið - 01.04.1966, Blaðsíða 53
LÆKNABLAÐIÐ
77
LÆKNABLAÐIÐ
52. árg. Apríl 1966
FELAGSPRENTSMIÐIAN H F
LÆKN ANÁMSKEIÐ
Læknablaðið vill vekja at-
hygli lesenda á auglýsingu á
öðrum stað í þessu blaði um
námskeið fyrir lækna, sem hald-
ið verður hér í Reykjavík dag-
ana 5.—10. september næstkom-
andi. Námskeiðið er fyrst og
fremst ætlað héraðslæknum og
öðrum starfandi almennum
læknum, en vissulega er öllum
læknum heimil þátttaka að öllu
eða einhverju leyti.
Efni námskeiðsins verður að
jjessu sinni aðallcga „Aðkallandi
læknishjálp“, og ætti það að
vera flestum forvitnilegt til
þekkingarauka og umræðna. Er
því að vænta mikillar þátttöku
í námskeiðinu, sem að mestu
leyti mun fara fram í hinum
nýju húsakynnum læknafélag-
anna í Domus Medica.
I sambandi við námskeiðið er
gert ráð fyrir að verði kvik-
myndasýningar, hæði í beinum
tengslum við efni námskeiðs-
ins svo og um önnur læknis-
fræðileg efni, og auk þess sýn-
ingar á lækningatækjum, bók-
um og öðru, er læknisstörf
varðar.
Undirbúningsnefnd nám-
skeiðsins hefur þegar unnið
mikið starf til þess að gera það
sem bezt úr garði og er vonandi,
að læknar fjölmenni. Óskað er
eftir tilkynningum um þátttöku
hið allra fyrsta, m. a. vegna
þess, að Læknafélag Islands og
Félag læknanema munu gera
allt, sem unnt er, til þess að út-
vega þeim, er þess óska, stað-
gengla, en til þess þarf talsverð-
an fyrirvara.
WORLD MEDICAL
JOURNAL
Alþjóðasamband lækna,
World Medical Association, gef-
ur út tímarit, World Medical
Journal, sem út kemur á þrem
tungunlálum, ensku, frönsku og
spönsku. Norrænu læknafélög-
in hafa nú tekið að sér þá út-
gáfu, sem prentuð er á cnsku,
og hefur verið unnið markvisst
að því að kynna og útbreiða
tímarit þetta meðal lækna á
Norðurlöndum, Bretlandseyj-
um, Kanada og Bandaríkjunum.
Tímaritið kemur út sex til tólf
sinnum á ári og flytur margvís-
legt efni um alþjóðafélagsmál
lækna, auk merkra yfirlits-
greina um læknisfræðileg og fé-
lagsleg efni.
Áskriftargjaldi tímaritsins
verður mjög í hóf stillt; vænt-
anlega um 50 íslenzkar krónnr
árgangurinn.
Með þessu hefti Læknahlaðs-