Læknablaðið - 01.04.1966, Blaðsíða 29
LÆKNABLAÐIÐ
55
um Krabbameinsfélags íslands, má sjá, að hlutfallið milli karla og
kvenna er sem næst 1.97:1, en það er lægra en hlutfall það, er fannst
við krufningar á Rannsóknarstofu Háskólans 1932—1960, sem var
2.4:1. 5 20 í Noregi er karl/kven-hlutfallið talið um 2:1 (Eker & Ef-
skind, cit. ^0), en það kynjahlutfall telur Bockus einnig gilda um
Bandaríkin. 2
Úr 1. töflu má enn fremur lesa, að magakrabbinn eru tæp 25%
allra greindra krabbameina; nærfellt 40% allra greindra krabbameina
lijá körlum, og 16.5% allra krabbameina hjá konum. Eru þetta mjög
háar hlutfallstölur magakrabba, eins og oft hefur áður verið greint
frá, 5 ð 19 en þó ívið lægri en samanburðartölur Dungals o. fl. um
tíðni magakrabba sem dánarmeins í ýmsum löndum.19
í 2. töflu, sem einnig er unnin úr efniviði krabbameinsskrárinnar,
greinir frá aldursskiptingu sjúklinga með magakrabba á árunum 1955
—1963. Eftir áratugum er hundraðstalan hæst á sjöunda tugnum hjá
karlmönnum, eða 30.5%; en 34.5% allra magakrabba hjá konum eru
greindir á áttunda tug ævinnar.
Þessum tölum öllum munu þó verða gerð betri skil af öðrum, og
skulu ekki ræddar frekar hér. 4
Table 2
Stomach Cancer, Registered in lceland 1955-1963
Age Distribution
Age Per cent. ? Per cent. ?
30 - 39 7 1.28 5 1.8 1 2
40 -49 34 6.21 1 1 3.96 45
50-59 1 1 1 20.3 36 12.95 1 47
60 -69 1 67 30.53 67 24.10 234
70 -79 158 28.88 96 34.53 254
80 - 89 62 11.34 53 19.06 1 1 5
90 ► 7 1.28 9 3.24 16
Age unknown 1 0.18 1 0.36 2
2. tafla
Aldurs- og kynjadreifing magakrabba 1955—1963.