Læknablaðið - 01.04.1966, Blaðsíða 23
LÆKNABLAÐIÐ
GEFIÐ ÚT AF L/EKNAFÉLAGI ÍSLAND5
O G LÆKNAFÉLAGI REYKJAVÍKUR
Aðalritst jóri: Olafur Jensson. Meðritstjórar: Magnús Olafsson og
Þorkell Jóhannesson (L.Í.), Asmundur Brekkan og Sigurður Þ. Guðmundsson (L.R.)
52. ÁRG. REYKJAVÍK, APRÍL 1966 2. HEFTI
SVEINN GUNNARSSON
MINMING
Hann lézt 18. nóv. 1964, og var
banamein hans hjartaslag.
Sveinn var borinn og barnfædd-
ur Reykvíkingur, fæddur 17. maí
1899, sonur hjónanna Salvarar
Guðmundsdóttur og Gunnars
Gunnarssonar húsasmíðameistara,
en hann var einn meðal atkvæða-
mestu byggingameistara höfuð-
borgarinnar á árunum um og eftir
aldamótin síðustu.
Sveinn gekk í Menntaskólann í
Reykjavík og varð stúdent Jtaðan
í júní 1920. Hóf hann nám í lækn-
isfræði og varð kandídat í júní
1926 með hárri I. einkunn (184%
st.). Við Ríkisspítalann í Kaupmannahöfn dvaldist hann 1927—
28, en 1. des. þ. á. hóf hann störf sem starfandi læknir í Reykja-
vík. Aðstoðarlæknir á röntgendeild Landspítalans var hann frá
1930—32, en frá 1935—51 veitti hann forstöðu röntgendeild
Landakotsspítala, sem þá var nýstofnuð.
Sveinn naut mikilla vinsælda jafnt í starfi sínu sem utan.
Hann var glaðlyndur og aðlaðandi og varð vel til vina. Hann var
fríður maður sýnum, glæsilegur og rammur að al'li, en þó skap-