Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 01.04.1966, Side 63

Læknablaðið - 01.04.1966, Side 63
læknablaðið 87 Ewing’s sarcoma Eiwing’s sarcoma er algengast á fyrstu þremur áratugum ævinnár, þ. e. yfirleitt í yngra fólki en önnur illkynja beinaæxli. Þessi æxli eru algengari í körlum en konum og myndast oftast í löngu útlimabeinunum og mjaðmagrindinni. Meinvörp eru al- geng í lungum, eitlum og beinum, og hefur stundum verið talið, að æxlið geti myndazt í fleiri en einu beini samtímis á svipaðan bátt og lymphoma. Læknismeðferð er venjulega röntgengeislun, en stundum má framkvæma skurðaðgerð, og telja sumir læknar liana betri en geislameðferð. 0 7 Æxlið er í byrjun mjög næmt fyrir röntgen- geislum, en horfur eru slæmar, og læknast sjaldan fleiri en 5— 10% sjúklinganna. Lymphoma Stundum gerir lymphoma malignum fyrst vart við sig í bein- um, og verður þá að álíta, að það eigi upptök sín þar. Algengara er, að lymphoma á síðari stigum seljist að í beinum sem mein- vörp. Lympboma er algengast í löngu útlimabeinunum. Horfur eru heldur betri með lymphoma en flest önnur illkynja beinaæxli, og eru allt að 35% sjúklinganna á lífi fimm árum eftir greiningu.8 Ekki er þó hægt að telja sjúklinginn læknaðan, þótt hann hafi ver- ið einkennalaus í fimm ár, þar sem æxlið getur tekið sig upp síð- ar og þá víðar um líkamann. Læknismeðferð er oftast skurðaðgerð og röntgengeislun á eftir eða röntgengeislun eingöngu, og virðist árangurinn vera svipaður með háðum aðferðunum. Myeloma Myeloma er algengasta illkynja æxli í beinum. Ekki er kleift að draga neinar ályktanir um tíðni ]æss hérlendis af þessum fáu æxlum, sem hafa komið til vefjagreininga á Rannsóknastofu Há- skólans, þar sem sjúkdómsgreiningin er oftast gerð á sjúkrahús- unum með mergstroki og blóð- og þvagrannsóknum. Æxlið er yfirleitt mjög útbreitt um beinmerginn og í mörg- um beinum samtímis. Einstaka sinnum er aðeins einn æxlishnútur í byrjun, og verður sjúkdómurinn ekki útbreiddur fyrr cn fimm til tíu árum síðar. Myeloma er oftast í beinum, sem innihalda blóðmyndandi merg, t. d. hrygg, liaúskúpu, hrjóstbeini og mjaðmagrind. Myeloma cr sjaldgæft fyi’ir fimmtugsaldur, og flestir sjúkl-

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.