Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 01.06.1967, Page 42

Læknablaðið - 01.06.1967, Page 42
82 LÆKNABLAÐIÐ legra starfa setið fundi með stjórn og meðstjórn félagsins, einnig félags- fundi og fundi með ýmsum nefndum. Sú breyting verður á starfsliði skrifstofunnar, að Guðrún Þórhalls- dóttir, sem starfað hefur hjá félaginu í sex ár, hættir nú störfum hjá félaginu og mun flytjast af landi brott. Guðrún hefur unnið ómetan- legt starf fyrir læknafélögin á undanförnum árum, og er mikill missir að slíkum starfskrafti. Óskar stjórn félagsins henni allra heilla í fram- tíðinni, um leið og hún þakkar henni frábærlega vel unnin störf á undanförnum árum. Við starfi Guðrúnar tekur frú Ingibjörg Bjarna- dóttir, en hún hefur áður starfað hjá Flugfélagi íslands. Býður stjórn félagsins hana velkomna til starfa. Sökum sívaxandi starfsemi má búast við, að innan tíðar þurfi að bæta við starfsfólki, en ekkert hefur verið afráðið um það enn. Lögfræðileg Eins og undanfarið hefur stjórn félagsins notið að- aðstoð. stoðar lögfræðinga við allar samningagerðir, bæði við stjórnir sjúkrahúsa, sjúkrasamlög og Tryggingastofnun. Hefur á liðnu ári mest mætt á Guðmundi Ingva Sigurðssyni hrl. í sambandi við launadeilur lækna við borg og ríki, og veitti Guðmundur launanefnd og stjórn L. R. ómetanlega að.stoð, meðan á samninga- gerðinni stóð. í samningum við Tryggingastofnun ríkisins og Sjúkra- samlag Reykjavíkur hafa samninganefndir félagsins notið aðstoðar Sveins Snorrasonar lögfræðings. Samstarfið við báða þessa lögfræðinga hefur verið með ágætum, og vill stjórn félagsins flytja þeim beztu þakkir fyrir störf þeirra í þágu félagsins. STÖRF NEFNDA Samninganefnd Nefndina skipuðu Stefán Bogason formaður, Jón heimilislækna. Gunnlaugsson og Þorgeir Jónsson. Samningum heimilislækna var að venju sagt upp fyrir áramótin 1965—1966, og var nú miðað við 1. maí, en ekki 1. apríl eins og áður. Var því breytt vegna þess, að tími hefur oft reynzt naumur fyrir nýja stjórn og samninganefnd frá aðalfundi í byrjun marz og til 1. apríl. Nefndin hélt nokkra fundi og hafði samráð við stjórn Félags sjúkrasamlagslækna, stjórn og stórráð L. R., framkvæmdastjóra L. R. og lögfræðing L. R., Svein Snorrason, sem var nefndinni til mikillar aðstoðar í samningunum. Einnig leitaði nefndin ráða hjá Benedikt Sig- urjónssyni, sem annazt hefur samninga fyrir félagið mörg undanfarin ár. Gengið var frá kröfum og þær sendar S. R. í bréfi dags. 15. apríl 1966. Nú var í fyrsta sinn samið við nýstofnaða samninganefnd sameigin- lega fyrir S. R. og Tryggingastofnun ríkisins. Var það til hagræðis fyrir báða aðila. Fyrsti samningafundur var haldinn 24. apríl, en alls urðu formlegir samningafundir fimm talsins, auk þess sem lögfræð- ingur og formaður samninganefndar áttu marga óformlega fundi og viðræður við mótaðila til lausnar ýmsum þáttum deilunnar.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.