Læknablaðið - 01.06.1967, Blaðsíða 56
94
LÆKNABLAÐIÐ
efnum þeim, sem nefndin átti að fjalla um, hefur því lítt miðað áfram
frá því, sem áður var, enda eru þau þess eðlis, að þau verða ekki fylli-
lega leyst á grundvelli nefndar í L. R., eins og fram hefur komið í
fyrri aðalfundarsamþykktum um sjúkrahúsmál.
Á síðasta aðalfundi L. í. að Laugum í Þingeyjarsýslu var því beint
til stjórnar L. í., að hún beitti sér fyrir allsherjar-endurskipulagningu
heilbrigðismála. Greinargerð þar að lútandi er nú í smíðum, og mun
hún m. a. fjalla um sömu málefni og sjúkrahúsmálanefnd var ætlað
undanfarið.
Lyfjanefnd. í nefndinni eiga sæti Ólafur Jónsson,, Ófeigur J.
Ófeigsson og Ragnar Karlsson.
Lyfjanefnd hefur lítið starfað á árinu, enda vonlítið, að tillögur
lækna varðandi lyfsölumál verði nokkru sinni teknar alvarlega, hvað
þá nái fram að ganga, sbr. afskipti stjórnar Læknafélags Reykjavíkur
af setningu lyfsölulaga.
Greinargerð barst frá heilbrigðismálaráðuneytinu vegna fundar-
.samþykktar L. R., þar sem óskað var frestunar á framkvæmd og niður-
fellingu ákveðinna kafla úr lyfsölulögum. Um jákvæð svör var ekki
að ræða, en Guðjón Lárusson læknir hefur undirbúið svar við greinar-
gerðinni, en litlar eða engar líkur eru á, að nokkur leiðrétting fáist á
þessum málum, eins og nú horfir.
Á árinu gerðist það, að næturvarzla lyfjabúða var flutt að Stórholti
1, og munu einhverjir fulltrúar lækna hafa léð þessu máli lið á sínum
tíma, trúlega vegna ónógra upplýsinga um fyrirkomulag.
Það hefur sýnt sig, að þessi næturþjónu.sta er með öllu ónóg og
til vansa, enda ekki fáanleg þar nema örfá lyf og engar aðrar vörur,
er venjulega eru seldar i lyfjabúðum, svo sem barnapelar, túttur, snuð
og dömubindi — og alls engar sáraumbúðir. Þessu hefur verið mót-
mælt, og er von um, að úr rætist, þannig að fullkomin lyfjabúð verði
opin allan sólarhringinn.
Trúnaðarlæknanefnd. í trúnaðarlæknanefnd eru Bjarni Konráðs-
son, Ólafur Helgason og Halldór Arinbjarnar.
Nefndin hefur ekki haft tilefni til fundahalda á árinu og því enga
fundi haldið. Taxti fyrir trúnaðarlæknastörf hefur verið hækkaður til
samræmis við kauphækkanir í landinu undanfarin ár, og skrifstofa
Læknafélagsins hefur eins og áður veitt upplýsingar um hann.
Vaktþjónustunefnd. í nefndinni eiga ,sæti Tryggvi Þorsteinsson,
Ólafur Jónsson og Sigurður Þ. Guðmundsson.
Vaktþjónusta hefur verið með sama sniði og áður og virðist hafa
gengið vel. Kvartanir hafa verið fáar, og hefur verið leitazt við að
rannsaka þau fáu tilfelli, er kvartað hefur verið yfir, og reynt að læra
af þeim, ,sem unnt er að færa til betri vegar.
Ekki hafa verið örðugleikar á að fá lækna til þess að gegna kvöld-
og næturvöktum, en frekar verið tregða á að fá neyðarvaktir skipaðar
sem skyldi, en þó vandræðalaust.