Læknablaðið - 01.06.1967, Blaðsíða 78
110
LÆKNABLAÐIÐ
uð mjógirnislykkja, sem lögð er fram á húð, og í hana eru
græddar báðar þvagpípurnar, sem dregnar eru fram i kviðar-
holið.11, 12 Hér á sjúkraliúsinu eru þessar tvær aðferðir nol-
aðar jöfnum höndum og svo virðist víðast hvar. Fyrir kemur,
að sjúklingur þolir ekki þvag á húð, og er þá gripið til Coffey-
aðgerðar.
Þvagfráleiðsla á iiúð er sjúklingum oft í upphafi erfið
þraut, og því er mikilvægur þáttur í meðferð þeirra að kenna
þeim umbúðatækni, en umbúðum hefur fleygt fram og eru nú
alveg viðunandi.
Geislameðferð
Eins og áður segir, fá þeir sjúklingar geislameðferð, sem
liafa carcinoma anaplastica og æxli af T-3 og T-4 stigi. Við
þetta bætast einstöku sjúklingar með útbreidd æxli af T-2
stigi, og er skurðaðgerð áætluð, og svo þeir sjúklingar, sem
hafa ÞBK, en vegna aldurs eða annarra sjúkdóma eru ekki
taldir þola aðgerð.
Gefin er ytri geislun með milljón volta tækjum, þ. e. með
röntgen- eða gammageislum, sem hafa yfir eina milljón elek-
trónvolta orku. Milljón volta geislun hefur þá kosti fram yfir
eldri geislunaraðferðir, að auðveldara er að ná nægilegu geisla-
magni í djúpt liggjandi krabbameini, um leið og skaðleg' áhrif
á heilbrigðan vef eru mun minni en áður var. Hér á sjúkra-
húsinu er ÞBK geislað með „linear accelerator“ með fimm
milljón volta spennu. Þrjú svæði eru geisluð, að framan og frá
báðum bliðum, með jöfnunarblýi. Alls er meinið geislað með
5500—0000 r á fjórum til sex vikum.
Meðan á geislun stendur og nokkrar vikur á eftir er afar
mikilvægt að komast hjá þvagsýkingu, og því er forðazt að
taka þvag með legg eða blöðruspegla sjúldinga.
Sjúklingar fá oft eftir tveggja til þriggja vikna geislun
óþægindi frá blöðru og endaþarmi, en hvort tveggja er oftast
á lágu stigi og um stundarsalcir.
Þremur mánuðum eftir að geislun lýkur, er tekin afstaða
til skurðaðgerðar hjá þeim sjúklingum, sem liafa æxli af T-3
stigi eða lægri stigum. Árangur geislunar er oft undraverður.
Sérstaklega gildir ])að um carcinoma anaplastica. Stór æxli
lijaðna niður svo, að við blöðruspeglun er erfitt að sjá, hvar
þau hafa verið. Yfirleitt er þó liorfið að blöðrubrottnámi í