Læknablaðið - 01.06.1967, Blaðsíða 94
122
LÆKNABLAÐIÐ
Suppositoriae atroscopolamini innihalda nú 50 mg af phenemalum,
sem ekki var í þeim áður.
Breyttur er styrkleiki nokkurra tegunda augndropa. Oculoguttae
atropini eru 1% (áður 0,5%), oculog. homatropini 1% (0,5%), oculog.
physostigmini 0,5% (1%) og oculog. scopolamini 0,2% (0,1%).
Allmörg lyf hafa breytt um nafn með tilkomu nýju lyfjaskrár-
innar. Þótt okkur virðist frændur okkar á Norðurlöndum stundum
vera í nokkurs konar orðaleik með heiti lyfja, komast íslenzkir læknar
ekki hjá því að fylgjast með þessum nafnabreytingum, eigi lyfseðlarnir
að vera rétt ritaðir, þar sem lög okkar og reglur varðandi lyf fara eftir
því, sem gerist á Norðurlöndum. Verður hér aðeins getið nafnbreytinga
á fáeinum algengustu lyfjum.
Aneurini hydrochloridum heitir nú thiamini chloridum, synstigmini
bromidum heitir neostigmini bromidum, lactoflavinum nefnist nú
riboflavinum og antipyrinum er orðið að phenazonum. Alcohol abso-
lutus heitir nú aethanolum, en glycerinum er glycerolum. Stilboestrolum
nefnist nú diaethyLstilboestrolum, en narcotini hydrochloridum breytt-
ist í noscapini chloridum, og þannig mætti áfram telja. Auk þes.s eru
allvíða breytingar á stafsetningu, t. d. oxidum í stað oxydum, og stytt-
ingar, svo sem chloridum í stað hydrochloridum.
Þá er breytt nafn á mörgum lyfjasamsetningum, og eru þessar
einna helztar (auk þess sem samsetningar ofantalinna lyfja breyta að
sjálfsögðu um nafn). Mixtura bismuthi subsalicylatis heitir nú aðeins
mixtura bismuthi, mixt. chlorali hydratis nefnist mixt. chlorali, mixt.
senegae jodata composita er nú mixt. senegae jodata (nú án lóbelíns).
Tablettae nitroglycerini heita nú resoriblettae glyceryli nitratis 0,25
mg eða 0,5 mg, en tabl. betaini chloridi heita aðeins tabl. betaini 0,25 g.
Þá er supp. haemorrhoidalia nú orðin supp bijogali og supp. opiopapa-
verini atropica nefnist nú supp. morphatropini cum papaverino (með
breyttri samsetningu). Oculentum album heitir nú oculentum amido-
hydrargyricum og oculentum flavum nefnist nú oculentum hydrargyri
oxidi. Loks heita guttae adetamini fortiores nú guttae A-D-vitamini
fortiores.
Styrkleikagreining lyfjasamsetninga með t. d. major og minor,
fortius og mite fellur víðast hvar niður, en í staðinn kemur nákvæm
greining styrkleikans. Þannig heita nú tabl. phenemali minores eftir
hinum nýju reglum tabl. phenemali 15 mg, og inj. theophylamini fortius
verður inj. theophylamini 20%, en mite verður 2r%.
Pilulae eru á undanhaldi fyrir tablettae. í stað pil. chinini koma
tabl. chinini 0,1 g (nú klóríð í stað súlfats), í stað pil. colchicini koma
tabl. colchicini 0,5 mg o. s. frv.
Nokkur lyfjaform hafa breytt um nafn og önnur ný eru skilgreind.
Cutipulvis heitir nú conspergens, nebuloleum nefnist nebulogenum og
dulciblettae, oriblettae, tablettae orales og trochisci heita nú tablettae.
Allar töflur, sem verka eftir ísog gegnum munnslímhúð, nefnast nú
resoriblettae, en auk þess eru nú skilgreindar implantablettae og
intramammaria. Önnur ný form, sem nú eru skilgreind, eru ampullae
canulatae, bacilli, collyria, otoguttae, sera, tubuli, vaccina og techniket-