Læknablaðið - 01.06.1967, Blaðsíða 57
LÆKNABLAÐIÐ
95
Nokkur brögð hafa verið að því, að neyðarvakt hafi verið misnotuð
af heimilislæknum, en það mun í flestum tilfellum stafa af misskilningi
þeirra á hlutverki þessarar þjónustu. Bréf hefur verið sent til allra
heimilislækna, sem hafa yfir 500 númer í .sjúkrasamlagi, og er von
um, að sá vandi sé þar með úr sögunni.
Ljóst virðist, að mjög bráðlega eða jafnvei þegar í stað sé þörf
á fullkominni símaupplýsingaþjónustu vegna allrar neyðarlæknisþjón-
ustu í bænum, og telur vaktþjónustunefndin, að eðlilegast sé, að stefnt
verði að því, að sú upplýsingaþjónusta verði tengd neyðarlæknisþjónustu
Borgarspítalans, þegar flutt verður í ný húsakynni. Meira og meira
ber á, að fólk leiti til skrifstofu iæknafélaganna og biðji um neyðarlækni,
en hefur þá ekki einu sinni reynt að ná sambandi við eigin lækna, en
fremur er sjaldgæft, að það takist ekki. Æskilegast væri því, að síma-
upplýsingaþjónusta yrði kostuð og rekin, jafnvel allan sólarhringinn,
af S. R., en í sem nánustu .sambandi við neyðarlæknisþjónustu Ðorgar-
spítalans. Yrði þá Slysavarðstofa Reykjavíkur jafnframt endurskipu-
lögð og mönnuð starfsliði, er þjónað gæti í öllum bráðum veikinda-
tilfellum, en þá með Borgarspítalann allan sem bakhjarl.
Skattamálanefnd. í nefndinni eiga sæti Ólafur Jónsson, Hannes
Þórarinsson og Ófeigur J. Ófeig&son.
Af skattamálum eru engar fréttir, en nefndin vill benda læknum
á að hafa fylgiskjöl og önnur gögn handbær, þar eð vænta má nánara
eftirlits með skattframtölum almennt í náinni framtíð.
Skattamálanefnd hyggst vinna að því, að viðurkennt verði frá-
dráttarhæft til skatt.s allt framlag í lífeyrissjóð lækna; enn fremur, að
hámarksfrádráttur fyrir ólögboðinni tryggingu verði hækkaður, þannig
að iðgjöld vegna væntanlegra hóptrygginga lækna fáist dregin frá að
fullu.
Blaða- og útvarps- Nefndina skipuðu Þórarinn Guðnason, Skúli
nefnd L. R. Thoroddsen og Þorgeir Gestsson.
Útvarpsþátturinn ,,Raddir lækna“, sem læknar
önnuðust tvo síðastliðna vetur, féll nú niður. Þótti rétt að gera hlé á
þessum flutningi um sinn, enda þótt þátturinn hafi notið mikilla vin-
sælda meðal almennings. Nefndin hefur sjaldan þurft að taka til með-
ferðar önnur mál.
Vottorðanefnd. Vottorðanefnd hefur ræðzt við vegna tilmæla
gjaldskrárnefndar L. R. um breytingar á vottorða-
kafla gjaldskrár, en þar eð kaflinn var rækilega endurskoðaður í fyrra,
þótti ekki ástæða til breytinga, enda höfðu ekki borizt neinar tillögur
um breytingar frá læknum. Engin önnur verkefni hafa verið lögð fyrir
nefndina á árinu.
I nefndinni eiga sæti þeir Bjarni Konráðsson, Jón Gunnlaugsson og
Haukur Kristjánsson.