Læknablaðið - 01.06.1967, Blaðsíða 49
LÆKNABLAÐIÐ
89
3. gr.
Vinna skv. ráðningarsamningi, sem greidd er eftir 1. grein, skal
innt af hendi á tímanum kl. 8—17 virka daga, þó kl. 8—12 á laugar-
dögum. Þetta gildir þó ekki um vinnu við kvöldstofugang eða vinnu
.skv. síðustu málsgrein 1. greinar.
Læknum skal skylt að vinna yfirvinnu að ósk yfirlæknis. Skiptist
hún í eftirvinnu, næturvinnu og helgidagavinnu.
4. gr.
Eftirvinna telst fyrstu tvær klukkustundirnar, eftir að umsaminni
eyktavinnu lýkur, þó ekki eftir kl. 12 á laugardögum né eftir kl. 19
aðra virka daga.
Fyrir eftirvinnu skal greiða sem hér segir:
Aðstoðarlæknar 1.—4. stigs grunnkaup pr. klst. kr. 136.36
— 5. — —-------------— 151.78
Sérfræðingar — — — — 168.96
5. gr.
Næturvinna telst frá kl. 19 eða frá lokum eftirvinnutíma, ef fyrr
er, til kl. 8. Helgidagavinna telst frá kl. 12 á hádegi á laugardegi til
kl. 8 á mánudagsmorgni, svo og vinna á helgidögum þjóðkirkjunnar,
sumardaginn fyrsta, 1. maí, 17. júní. Þá skal greiða sem helgidaga-
vinnu vinnu fyrsta mánudag í ágúst, 1. desember og laugardag fyrir
páska í þeim mæli, sem tíðkazt hefur. Vinna frá hádegi aðfangadag jóla
og gamlaársdag telst helgidagavinna.
Fyrir nætur- og helgidagavinnu skal greiða sem hér segir:
Aðstoðarlæknar 1.—4. stigs grunnkaup pr. klst. kr. 172.72
— 5. — —-------------— 192.25
Sérfræðingar — — — — 214.03
6. gr.
Fyrir gæzluvaktir skal greitt miðað við klukkustund sem hér segir:
Aðstoðarlæknar 1.—4. stigs grunnkaup pr. klst. kr. 30.30
— 5. — —-------------— 33.73
Sérfræðingar — — — — 37.55
Ef læknir á gæzluvakt er kallaður til .starfa, skal greiða honum
yfirvinnukaup skv. 4. og 5. grein, en starfstíminn dregst frá þeim
tíma, sem gæzluvaktarþóknun kemur fyrir.
7. gr.
Læknar, sem ráðnir eru eftir samningi þessum til starfa í 12 eyktir
á viku eða lengri tíma, skulu eigi taka að sér störf utan viðkomandi
sjúkrahúss, nema sérstakt leyfi .stjórnarnefndar ríkisspítalanna komi
til. Þó skal þeim heimilt starf á eigin stofu allt að einni eykt á viku
hverri án slíks leyfis, en fá skal samþykki viðkomandi yfirlæknis á
stofutíma.