Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 01.12.1970, Page 9

Læknablaðið - 01.12.1970, Page 9
LÆKNABLAÐIÐ LÆKNAFÉLAG ÍSLANDS OG L/EKNAFÉLAG REYKJAVÍKUR Aðalritstjóri: Ólafur Jensson. Meðritstjórar: Karl Strand og Þorkell Jóhannesson (L.I.), Ásmundur Brekkan og Sævar Halldórsson (L.R.) 56. ÁRG. DESEMBER 1970 6. HEFTI ÁRSSKÝRSLA LÆKNAFÉLAGS ÍSLANDS FYRIR STARFSÁRIÐ 1968-1969 Inngangur Gjaldskyldir félagar L.í. 1.7.19'69 voru 281, þar af 198 í Læknafélagi Reykjavíkur. 1. janúar 1969 voru íslenzkir læknakandídatar samtals 465; þar af með lækningaleyfi 390, búsettir á íslandi 269, búsettir erlendis 121. Sérfræðingar voru 166, og skiptast þeir niður á 29 sérgreinar. Læknakandídatar án lækningaleyfis voru samtals 75. Stjórn og Stjóm L.í. hefur haldið 32 fundi frá því síðasta aðal- stjórnarfundir fundi lauk, en auk þess hafa verið haldnir átta sam- eiginlegir fundir með stjórn L.R. um þau mál, er sér- staklega varða bæði félögin. Á síðasta aðalfundi baðst Ásmundur Brekkan lausnar frá gjaldkerastörfum félagsins sökum annríkis. Tók þá Helgi Valdimarsson við gjaldkerastörfum til 15. september, en þá hvarf hann til framhaldsnáms erlendis. Við gjaldkerastörfum tók þá Stefán Bogason, en hann var varamaður í stjórn L.í. Stefán Bogason er einnig gjaldkeri L.R., og hefur þetta fyrirkomulag skapað mögu- leika til þess að fá yfirsýn yfir fjárhag beggja félaganna. Hefur reynsla af því að hafa sameiginlegan gjaldkera verið sérlega góð, og er vissu- lega athugandi, hvort þessu fyrirkomulagi ætti ekki að halda fram- vegis, ef þess er kostur. Eftir að Ásmundur Brekkan hafði sagt af sér störfum og Helgi Valdimarsson farið erlendis, var Örn Bjarnason eini varastjórnarmað- urinn. Hefur hann ætíð sótt stjórnarfundi, þegar hann hefur átt þess

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.