Læknablaðið - 01.12.1970, Side 10
166
LÆKNABLAÐIÐ
kost og verið staddur í Reykjavík. Einnig hefur hann verið kvaddur
sérstaklega til fundar frá Vestmannaeyjum, þegar slík mál hafa legið
fyrir, að nauðsynlegt hefur verið að njóta þekkingar og reynslu í sam-
bandi við könnun á starfsaðstöðu héraðslækna, undirbúning lækna-
miðstöðva og önnur mál, sem hann hefur sérstaklega kynnt sér.
Formannaráðstefna
10. og 11. maí 1969
(fundargerðir)
Laugardaginn 10. maí 1969 hélt stjórn L.í. fund
með formönnum aðildarfélaga L.í. Fundurinn
hófst kl. 10.30 í Domus Medica. Mættir: Arin-
björn Kolbeinsson, Stefán Bogason, Friðrik
Sveinsson og Örn Bjarnason.
Frá L.R.
— L.M.V.
— L.N.V.
— Lf. Suðurlands
— Lf. Akureyrar
Sigmundur Magnússon.
Þórður Oddsson.
Friðrik J. Friðriksson.
Brynleifur H. Steingrímsson.
Sigurður Ólason.
— Lf. Vesturlands og Norðausturlands kom enginn.
Formaður L.Í., Arinbjöm Kolbeinsson, setti fundinn og stjórnaði
honum.
1. mál
Starf samninganefndar L.í, Ritari gerði grein fyrir því, að hann
ásamt tveimur fulltrúum öðrum frá L.f. og þremur fulltrúum frá L.R.
í gjaldskrárnefnd hefði unnið að því að semja sameiginlega gjaidskrá
fyrir allt landið. Upphaflega hefði nefndin sett sér það mark, að gjald-
skráin yrði tilbúin, um leið og samningar við T.R. rynnu út eða fyrir
30. apríl. Sú áætlun hefði þó ekki staðizt, en væri samt svo vel á veg
komin, að hægt yrði að leggja hana fram sem samningsgrundvöll, er
samningar hæfust við T.R. f störfum sínum hefði nefndin stuðzt við
og notað útreikninga Hrólfs Ásvaldssonar viðskiptafræðings. Formaður
gjaldskrárnefndar er Guðmundur Jóhannesson, og mætti hann síðar
á fundinum og gerði frekari grein fyrir nefndarstörfunum.
Fundarmenn voru sammála um, að rétt væri að bíða með samn-
inga, þar til endanlega hefði verið gengið frá gjaldskránni. Sigurður
Ólason og fleiri læknar utan af landi vöktu máls á því, hve seint geng-
ur að reikna rekstrarkostnaðarhækkun inn í gildandi taxta og hve
seint þær breytingar berast læknum landsbyggðarinnar. Þá var og vak-
in á því athygli af Sigurði Ólasyni, að raunar hefði samninganefnd L.í.
samið réttinn af aðildarfélögum úii á landsbyggðinni til þess að fara
eftir gjaldskrá L.R., þegar um utansamlagssjúklinga er að ræða. Sbr.
A lið gjaldskrársamningsins. Eindregin ósk kom fram um, að þetta
yrði athugað nánar.
2. máZ. Skattamál lækna
Sigmundur Magnússon gerði grein fyrir skattamálunum. Hann
rakti misræmi Skattstofunnar í því að taka tillit til þess kostnaðar,
sem leyfður er til frádráttar, þá fyrst og fremst reksturs bifreiðar,