Læknablaðið - 01.12.1970, Síða 22
174
LÆKNABLAÐIÐ
Starfsemi skrifstofu Eins og fram hefur komið í ársskýrslum L.í.
læknafclaganna og L.R., hófust í sept. 1967 viðræður millí fé-
laganna um endurskipulagningu á rekstri skrif-
stofunnar og hagræðingu, sem miðaðist að því, að sú þjónusta, sem
skrifstofan veitir félagsmönnum, verði sem almennust og ódýrust, að
allir eigi þar sem jafnastan hluta að máli, enda er rekstur skrifstof-
unnar greiddur sameiginlega af árgjöldum félagsmanna. Umræður um
þessi mál héldu áfram í byrjun ársins 1968 og voru teknar til ræki-
legrar meðferðar og lokaafgreiðslu í sept. 1968.
Eins og fram kom á síðasta aðalfundi L.Í., leyfir fjárhagur lækna-
félaganna ekki að greiða full laun framkvæmdastjóra, enda má segja,
að verkefni séu hvergi nærri næg fyrir slíkt starf, ef utanaðkomandi
verkefni koma ekki til sögunnar.
Við athugun á ráðningarsamningi framkvæmdastjóra, sem dag-
settur var í apríl 1966 og undirritaður af þáverandi formanni L.Í., Ólafi
Bjarnasyni, og íyrrverandi formanni L.R., Gunnlaugi Snædal, kom
fram, að samningi þessum var ekki unnt að breyta, nema honum yrði
sagt upp, og uppsagnarfrestur var sex mánuðir. í lok september 1968
var ákveðið á sameiginlegum stjórnarfundi L.í. og L.R. að segja upp
ráðningarsamningi framkvæmdastjóra, þar sem breyting á rekstri skrif-
stofunnar og lækkun á reksturskostnaði varðandi vinnulaun yrði ekki
framkvæmd á fullnægjandi hátt með öðru móti. Einnig kom í Ijós við
athugun þessa, að starfslið skrifstofunnar var í rauninni meira en aðal-
fundarsamþykktir gerðu ráð fyrir, og nam umframstarfslið starfstíma
hálfsdags-stúlku.
í október 1968 tilkynnti stjórn Lífeyrissjóðs lækna, að hún myndi
taka bókhald Lífeyrissjóðsins og fjárvörzlu hans að mestu leyti úr
höndum skrifstofu læknafélaganna, þar sem stjórn sjóðsins teldi, að
sú afgreiðsla, sem sjóðurinn hefði fengið, hefði verið ófullnægjandi.
Samhliða þessu fór einnig að nokkru leyti afgreiðsla hóptrygginga
lækna úr höndum skrifstofunnar og fjárreiður Námssjóðs sjúkrahús-
lækna. Fjárreiður Námssjóðs lækna höfðu einnig að nokkru leyti verið
í höndum skrifstofu læknafélaganna, en reikningar fyrir þann sjóð
höfðu aldrei birzt á réttum tíma, og var ákveðið á sameiginlegum
stjórnarfundi með L.í. og L.R. að rita bréf og gera athugasemdir við
þetta fyrirkomulag.
Varðandi frekara áframhald á skipulagi skrifstofunnar hafa stjórn-
ir L.í. og L.R. haldið marga sameiginlega fundi, og var ákveðið að
breyta rekstrinum þannig, að framkvæmdastjóri yrði eigi ráðinn eftir
1. apríl, enda hafði Sigfús Gunnlaugsson þá sett á stofn sitt eigið fyrir-
tæki.
Við þessa athugun kom einnig í ljós, að innrétting skrifstofunnar
var hin óheppilegasta og í rauninni óframkvæmanlegt að skipuleggja
þar hagkvæman skrifstofurekstur. Var því ákveðið að breyta innrétt-
ingum skrifstofrmnar, og var því verki lokið á einni viku, án þess að
starfsemi skrifstofunnar stöðvaðist.
Starfslið skrifstofunnar eftir 1. apríl voru þrjár skrifstofustúlkur,