Læknablaðið - 01.12.1970, Qupperneq 31
LÆKNABLAÐIÐ
179
setja reglur um samstarf lækna við sjúkrahúsið á Húsavík. Páli Gísla-
syni, yfirlækni á Akranesi, var falið að vera fulltrúi Læknafélags ís-
lands við að semja þessar reglur. Voru reglur þessar samdar í Reykja-
vík af fulltrúum stjómar sjúkrahússins, en til ráðuneytis voru Páll
Gíslason og Haukur Benediktsson, skrifstofustjóri Borgarspítalans í
Reykjavík. Eftir að nefnd þessi hafði samið reglurnar, fékk formaður
L.f. reglurnar til lestrar og gerði á þeim smávegis breytingar, sem
efnislega voru flestar teknar til greina, áður en stjórn sjúkrahússins
á Húsavík fjallaði endanlega um málið. Reglugerð þessi hefur nú verið
staðfest af ráðuneytinu með nokkrum breytingum. Reglugerðin fylgir
með ársskýrslunni (fskj. 9 B). Eftir að reglugerð þessi hafði verið
samþykkt, mælti stjórn sjúkrahússins svo fyrir, að læknar þeir, sem
störfuðu við sjúkrahúsið, færu eftir reglugerðinni, en yfirlæknir
sjúkrahússins taldi sér ekki fært að starfa eftir henni í öllum aðal-
atriðum og áleit, að hún bryti í bága við 4. gr. sjúkrahúslaga.
í maí mætti yfirlæknir Sjúkrahúss Húsavíkur á fundi með stjórn
L.f. og lögfræðingi félagsins, þar sem vandamál þessi voru rædd. Kom
þar fram sú skoðun lögfræðingsins, að orkað gæti tvímælis, hvort
reglugerðin myndi að öllu leyti standast samkvæmt sjúkrahúslögum.
Hann benti yfirlækni samt á að fara eftir reglugerðinni í einu og öllu,
en hins vegar gæti hann höfðað mál fyrir dómstólum landsins til að
sannreyna, hvort reglugerðin stæðist gagnvart sjúkrahúslögunum.
Benti hann yfirlækni á, að stjórn sjúkrahússins kynni að segja honum
upp starfi, ef hann færi ekki að þessum ráðum.
Hinn 24. júní sagði stjóm sjúkrahússins á Húsavík yfirlækninum
upp störfum, þar sem hún taldi, að hann hefði fyrirgert starfssamningi
sínum með því að óhlýðnast löglega settri reglugerð. í júlí kom yfir-
læknir sjúkrahússins á Húsavík aftur til fundar við stjórn Læknafélags
íslands og samdi ýtarlega greinargerð um málið, sem hann afhenti
stjórn félagsins, þar sem fram voru bornar óskir um aðgerðir af hálfu
stjórnar L.f. í máli þessu. Lögfræðingur félagsins taldi, að stjómin
gæti ekkert aðhafzt í máli þessu nema rannsaka það nánar og þyrfti
hún að fá umsögn sjúkrahússtjómar og lækna á Húsavík um skýrslu
yfirlæknisins, áður en til frekari aðgerða kæmi í málinu, en yfirlæknir
sjúkrahússins synjaði um leyfi til þessara athugana. Þess vegna verður
þessi skýrsla yfirlæknisins ekki birt sem fylgiskjal með ársskýrslu
þessari.
Nokkur blaðaskrif urðu um málið af hálfu stjómar sjúkrahússins
og yfirlæknis.
Að ráði lögfræðingsins ákvað stjórn L.í. að birta engar yfirlýsingar
eða leiðréttingar varðandi mál þetta í blöðunum, enda þótt tilmæli frá
báðum aðilum hafi komið fram um slíkar aðgerðir af hálfu stjómar
L.í.
Eftirfarandi skeyti barst frá stjórn sjúkrahússins á Húsavík, dags.
28.6.1969: „Skírskotum til samstarfs við félagið við undirbúning starfs-
reglna lækna á sjúkrahúsinu. Óskast í briéfi skýr afstaða stjómar fé-
lagsins varðandi rangmæli Daníels Daníelssonar í athugasemd við