Læknablaðið - 01.12.1970, Side 32
180
LÆKNABLAÐIÐ
fréttatilkynningu stjórnarinnar, er varðar samskipti við formann fé-
lagsins og félagið í heild. Að gefnu tilefni óskast skýringar á 4. gr.
siðareglna lækna varðandi sjúkrahússtarfsemi. Þá óskar sjúkrahúsið
eftir að fá reglurnar sendar varðandi bessi efni. Vísast til samtala við
formann félagsins og Örn Bjarnason. Væntum svara. Sjúkrahús Húsa-
víkur. Áskell Einarsson“.
Skeytinu var svarað með bréfi, dags. 29.7. 1969 (fskj. 9 C).
Eftirfarandi bréf barst frá yfirlækni sjúkrahússins á Húsavík,
dags. 17.8. 1969 (fskj. 9 D). Að ráði lögfræðingsins varð stjórn L.í.
eigi við því að birta opinberlega yfirlýsingu varðandi atriði í bréfi
yfirlæknisins, enda hafði þá frétzt, að yfirlæknirinn hefði skrifað stjórn
sjúkrahússins og boðizt til að vinna eftir reglugerðinni.
Hinn 19. ágúst 1969 kom til viðræðna við stjórn L.f. þriggja
manna sendinefnd frá Húsavík, og var nefndin þannig skipuð: Þor-
gerður Þórðardóttir, Hermóður Guðmundsson og Gunnar Karlsson.
Nefndin hafði með sér ljósrit af undirskriftarMstum, þar sem þess var
óskað, að stjórn sjúkrahússins á Húsavík réði yfirlækninn aftur til
starfa við sjúkrahúsið, enda hefði hann í bréfi, dags. 22.7.1969 (fskj.
9 E), lofað að starfa eftir áðurnefndri reglugerð að svo miklu leyti,
sem hún bryti eigi í bága við hans læknissamvizku eða 4. gr. Codex
Ethicus L.í.
Nefndinni var skýrt frá því, að mál þetta væri í meginatriðum
lögfræðilegs eðMs og stjórn L.í. hefði þá stefnu að fylgja ráðum lög-
fræðings; myndi hún bera þetta mál undir hann og hlíta þeim ábend-
ingum, er hann legði fram. Hinn 21.8.1969 var bréf skrifað lögfræð-
ingi félagsins (fskj. 9 F). Svar hans barst 22. ágúst (fskj. 9 G), og
sama dag var stjórn Sjúkrahúss Húsavíkur ritað bréf (fskj. 9 H).
Stjórn L.f. hefur borizt bréf sem svar við bréfi stjórnar Sjúkrahúss
Húsavíkur (fskj. 91).
Könnun á starfsaðstöðu Haustið 1967 fór fram könnun á vegum
og aðbúnaði liéraðslækna stjórnar L. í. á starfsaðstöðu og aðbúnaði
héraðslækna, og var sú könnun þannig
framkvæmd, að Örn Bjarnason og Friðrik Sveinsson útbjuggu spurn-
ingaeyðublað, sem sent var öllum héraðslæknum.
Á eyðublaði þessu voru settar fram spurningar um húsakynni og
lækningastofur og um tækjabúnað. Auk þess var spurt um víðáttu
héraða, íbúafjölda, ferðalög, bílakost lækna, ráðningar, samstarf og
margt fleira, sem að gagni mætti koma til þess að komast að raun
um, hvort og hvar hugsanlegt væri að setja niður læknamiðstöðvar.
Einnig var spurt um það, hverjar úrbætur þyrfti að gera, til þess að
læknar mættu fást í þau héruð, sem afskekkt væru.
í ágústlok og septemberbyrjun fóru síðan fulltrúar Læknafélagsins
í ferðalag um landið og heimsóttu flesta héraðslækna og ræddu við
þá og rituðu niður ýmis þau atriði, sem ekki höfðu komið fram á spurn-
ingalista. Um Vesturland og Vestfirði fór Helgi Valdimarsson, um
Austfirði Örn Bjarnason, um Norðausturland Gísli Auðunsson og um