Læknablaðið - 01.12.1970, Side 57
LÆKNABLAÐIÐ
193
Hvert félag velur sér fulltrúa í samtökin. Allar umsóknir um aðild
skulu bornar upp á fulltrúaþingi.
2. Tilgangur samtakanna er:
Að efla gagnkvæm kynni milli aðildarfélaga, m. a. með fræðslu um
starfssvið einstaklinga og hópa innan samtakanna; að stuðla að fram-
förum á sviði heilbrigðismála, im. a. með margs konar fræðslu og
kynningu á starfsemi heilbrigðisstofnana, svo og kynningu æskilegra
nýjunga í heilbrigðismálum; að vinna saman að hagkvæmri lausn á
sameiginlegum málum.
3. Fulltrúafjöldi:
Fulltrúafjöldi hvers aðildarfélags innan samtakanna skal ákveðinn
á við félagatölu hvers þeirra þannig: Aðili með félagatölu allt að 50
ihefur rétt á 1 fulltrúa. Aðili, sem telur 51-100 félag'a hefur rétt á 2
fulltrúum, og aðili með 101 eða fleiri félaga hefur rétt á 3 fulltrúum.
Fulltrúar þessir skulu kjörnir til þriggja ára í senn og varamenn jafn-
margir til sama tíma.
4. Stjórn samtakanna:
Stjórn samtakanna, varastjórn og endurskoðendur skal kjósa á
reglubundnum fulltrúafundi til þriggja ára í senn. Stjórnina skipa 3
menn, formaður, ritari og gjaldkeri, og jafnmargir til vara. Ekki er
leyfilegt að endurkjósa stjórnina nema einu sinni. Til fomannskjörs er
aðeins hægt að velja mann, sem áður hefur átt sæti í varastjórn.
Stjórnin fer með framkvæmdarvald samtakanna á milli fulltrúaþinga
og í samræmi við ákvarðanir meiri hluta síðasta fulltrúaþings. Kjósa
má einstaklinga úr aðildarfélögum til nefndarstarfa að fengnu sam-
þykki stjórnar samtakanna. Slíkar nefndir geta verið fastanefndir eða
til iskemmri tíma, en við skipan slíkra nefnda skal nánar ákveðið um til-
högun á starfsemi í samræmi við ákvæði síðasta fulltrúaþings.
5. Fulltrúaþing:
Fulltrúaþing fer með æðsta vald í málum samtakanna.
Dagskrá reglubundins fulltrúaþings skal vera:
1. Skýrsla stjórnar.
2. Ársreikningar.
3. Kjör stjórnar, varastjórnar og endurskoðenda.
4. Ákvörðun um árstillag.
5. Félagsmál samkvæmt dagskrá (störf nefnda).
6. Önnur mál.
Fulltrúaþing skal halda fyrir 1. nóv. ár hvert. Aukafulltrúaþing skal
haldið, ef % hluti fulltrúa leggur fram skriflega ósk þar um. Fundi skal
boða með minnst mánaðarfyrirvara. Fundur er löglegur, ef löglega er
til hans boðað.