Læknablaðið - 01.12.1970, Qupperneq 70
206
LÆKNABLAÐIÐ
FYLGISKJAL 9 A
21. jan. 1969.
Kæru collegar:
Með skírskotun til viðræðna okkar á Húsavík 12. og 13. jan. s.l.
sendum við hér með grind fyrir læknasamstarf við sjúkrahúsið á Húsa-
vík, miðað við núverandi aðstæður, en með hliðsjón af þróun lækn-
ingastarfseminnar þar í nánustu framtíð. í tillögum þessum er að
sjálfsögðu aðeins drepið á nokkur atriði, sem við teljum, að mestu máli
skipti fyrir grundvöli að góðu samstarfi.
I þessu sambandi viljum við benda á, að eftirfarandi ályktun var
samþykkt á síðasta aðalfundi L.í. (1968), og teljum við, að efni hennar
snerti aðstæður á Húsavík.
„Æskilegt er, að læknamiðstöðvar í dreifbýli séu reknar í nán-
um tengslum við sjúkrahús, þannig að öll aðstaða, húsakynni,
tæki og starfslið nýtist sameiginlega og allar upplýsingar um
sjúklinga liggi fyrir á einum stað. Þessi sjúkrahús þurfa að vera
heimilislækningasjúkrahús, þar sem allir læknar stöðvarinnar hafa
jafna aðstöðu.“
Það eru eindregin tilmæli stjórnar Læknafélags íslands, að iæknar
á Húsavík leitist við að byggja samstarf á tillögum þeim, sem fylgja
bréfi þessu, og einnig með hliðsjón af ýmsum þeim atriðum, sem fram
komu í viðræðum okkar á Húsavík. Við teljum, að reynslutími til þess
að skapa samstarfsgrundvöll með þeim hætti, sem að ofan greinir, megi
vart vera minni en 3—4 mánuðir.
Ef þið teljið, að mikilvæg atriði vanti inn í meðfylgjandi grind
um læknasamstarf eða atriðum sé þar ofaukið, er stjórn Læknafélags
íslands að sjálfsögðu fús að taka siíkar ábendingar til skjótrar athug-
unar,
F. h. stjórnar Læknafélags íslands,
Arinbjörn Kolbeinsson, Friðrik Sveinsson,
formaður. ritari.
GRIND FYRIR LÆKNASAMSTARF VIÐ SJÚKRAHÚS HÚSAVÍKUR
I. Samstarf
Samstarfið sé byggt á því, að allir læknar vinni saman á jafn-
réttisgrundvelli, svo sem menntun, þjálfun og reynsla þeirra býður, en
með hliðsjón af áhugasviðum. í samstarfshópum á sjúkrahúsinu sé yfir-
iæknir „foringi meðal jafningja“, enda mun það samrýmast 4. gr.
sjúkrahúslaga nr. 36 frá 4. apríl 1956.
Áherzla verði lögð á gagnkvæma upplýsingastarfsemi og skoðana-
skipti, þ. e. fundi, verkaskiptingu í nokkrum grunnatriðum og reglur
þar að lútandi.
II. Umræðufundir
Morgunfundir (kaffifundir) séu ætíð haldnir með öllum læknum,
þegar þess er kostur. Á þessum fundum verði m. a. fjallað um eftirfar-