Læknablaðið - 01.03.1979, Síða 68
40
LÆKNABLAÐIÐ
Ólafur Ólafsson landlæknir, Margrét Guðnadóttir prófessor,
Skúli G. Johnsen borgarlæknir
ÁÆTLUN UM AÐ „0TRÝMA“ FÓSTURSKEMMDUM
VEGNA RAUÐRA HUNDA Á ÍSLANDI
Frá árinu 1941 hafa gengið rubella far-
aldrar á 8—10 ára fresti hér. Alls er vitað
um 53 börn sem fæðst hafa með heila-,
mænu-, hjarta-, sjón- og heyrnargalla vegna
þessa sjúkdóms. Samkvæmt upplýsingum
Brands Jónssonar, skólastjóra Heyrnleys-
ingjaskólans, dveljast nú 60 börn í skólan-
um og þar af eru 30 mjög alvarlega
heyrnarskert vegna rubellasýkingar. Auk
þess eru sum þeirra með skerta sjón og
heilastarfsemi.
Heimild er í lögum til fóstureyðingar ef
kona sýkist á fyrstu 4 mánuðum þungun-
ar, enda fjölgar mjög aðgerðum þegar far-
aldur gengur yfir. Fóstureyðing kemur þó
ekki alltaf að gagni því að í 25—30%
kvenna sem sýkjast fá ekki útbrot. Frá
því á árinu 1975 höfum við bólusett 12—13
ára stúlkubörn við rauðum hundum og
jafnframt þær konur sem fæða og reynast
ekki hafa mótefni gegn þessari veiki.
Samkvæmt lögum um ónæmisaðgerðir
frá 11. maí 1978 greiðir ríkið kostnað
vegna bólusetningar gegn rauðum hund-
um.
Rannsóknastofa Háskólans í veirufræði
hefur á undanförnum árum unnið mikið
starf við rubella-rannsóknir undir stjórn
próf. Margrétar Guðnadóttur. Á vegum
stofnunarinnar hafa 17.000 konur af um
33.000 á aldrinum 15—45 ára verið rann-
sakaðar með tilliti til ónæmis gegn veik-
inni.
Til þess að koma í veg fyrir fóstur-
skemmdir vegna rauðra hunda í framtíð-
inni þarf að gera eftirfarandi.
Kanna ónæmi ca. 20.000 kvenna og
bólusetja ca. 4.000 þeirra.
Kostnaður vegna verksins:
Ónæmiskönnun
Bólusetning
Skráning, tölvulistun og
tæknivinna
10.000.000 kr.
4.000.000 —
6.000.000 —
Samtals 20.000.000 kr.
Jafnframt verður þeim sið viðhaldið að
bólusetja allar 12—13 ára stúlkur í land-
inu í framtíðinni.
Þjóðfélagið leggur í mikinn kostnað
vegna uppeldis, endurhæfingar og mennt-
unar barna sem hafa skaddast vegna rauðra
hunda sýkingar. Þess skal getið að kostn-
aður við rekstur Heyrnleysingjaskólans er
á fjárlögum 1977 kr. 73.000.000 — og er
þá ótalinn allur annar kostnaður.
Kostnaður þjóðfélagsins vegna einstak-
lings er fæðist heymarlaus eftir rauðra
hunda sýkingu. Miðað er við verðlag árið
1978:
Barnaörorka 1—15 ára.
446.000 x 15 6.7 millj.
Örorka 50% 16—67 ára.
360.000 x 51 18.4 —
Styrkur til iðnskólanáms 16—21 ára 2.6 —
Kostnaður á nemanda i Heyrn-
leysingjaskólanum í 9 ár 7.5 —
örorkustyrkur 6.2 —
Heyrnartæki ca. 20 1.6 —
43.0 millj.
Vitaskuld er ýmis aukakostnaður ótal-
inn og þar við bætist þjáning og sorg. Bú-
ast má við að kostnaður vegna ofannefndra
einstaklinga sé um 2 milljarðar á ári.
Samkvæmt upplýsingum Trygginga-
stofnunar ríkisins og Brands
Jónssonar skólastjóra Heyrnleysingja-
skólans.
Þess skal getið að íslendingar eru fyrsta
þjóðin sem grípur til svo víðtækra aðgerða
gegn rauðum hundum sem að framan er
lýst.
Áætlun þessi hefur verið rædd við
Magnús H. Magnússon ráðherra og fjár-
veitinganefnd Alþingis, Vonandi fæst fé
til þessara aðgerða enda verðugt verkefni
á árinu 1979 sem er ár barnsins. í bígerð
er og áætlun um fjöldabólusetningu gegn
mislingum.