Læknablaðið - 01.03.1979, Blaðsíða 79
LÆKNABLAÐIÐ
45
AÐALFUNDUR LÆKNAFÉLAGS ÍSLANDS 1978
Útdráttur úr fundargerð
Formaður Læknafélags Islands, Tómas ÁrrJ
•Tónasson, setti fundinn þann 23. júní kl. 9.30 i
hátíðasal Menntaskólans á Akureyri. Kjörbréf
fulltrúa Læknafélags Vesturlands og Lækna-
félags Norð-Vesturlands höfðu ekki verið send,
en fulltrúar þessara félaga höfðu verið til-
kynntir skrifstofu læknafélaganna áður og nöfn
þeirra birt í ársskýrslunni. Vegna fyrirhug-
aðrar aðildar Félags íslenzkra lækna í Svíþjóð
að Læknafélagi Islands var tilkynnt að Lækna-
félag Reykjavíkur hefði rétt til að bæta við
einum fulltrúa. Fulltrúar á aðalfundi L.I. voru
þá eftirtaldir:
Frá Læknafélagi Reykjavíkur: Benedikt
Sveinsson, Guðmundur H. Þórðarson, Haukur
S. Magnússon, Lára Halla Maack, Ólafur Þ.
Jónsson, Stefán Karlsson, Víkingur H. Arnórs-
son, Þorvaldur Veigar Guðmundsson, Örn
Smári Arnaldsson og Sigurður B. Þorsteinsson.
Frá Læknafélagi Austurlands: Eggert Brekkan,
frá Læknafélagi Suðurlands: Brynleifur H.
Steingrimsson, frá Læknafélagi Akureyrar: Er-
lendur Konráðsson og Ólafur Hergill Oddsson,
frá Læknafélagi Norð-Austurlands: Gísli G.
Auðunsson, frá Læknafélagi Vestfjarða: Úifur
Gunnarsson, frá Læknafélagi Vesturlands: Jón
Jóhannesson, frá Læknafélagi Norð-Vestur-
iands: Sigursteinn Guðmundsson og frá Félagi
íslenzkra lækna í Bretlandi: Katrín Fjeldsted.
Auk réttkjörinna fulltrúa svæðafélaganna á
aðalfundi L.I. sátu fundinn stjórnarmennirnir
Tómas Á. Jónsson, formaður, Auðólfur Gunn-
arsson, ritari og Guðmundur Sigurðsson, gjald-
keri, varafulltrúarnir Magnús L. Stefánsson
frá Læknafélagi Akureyrar, Kristján Sigurðs-
son og Guðjón Magnússon frá Félagi íslenzkra
lækna i Svíþjóð og Páll Þórðarson, fram-
kvæmdastjóri. Gestir fundarins voru: Páll Sig-
urðsson, ráðuneytisstjóri, Skúli G. Johnsen,
borgarlæknir í Reykjavík, Eggert Steinþórsson,
formaður stjórnar Domus Medica og Stefán
Carlsson frá Félagi ungra lækna.
Fyrsta mál á dagskrá var tillaga stjómar
Læknafélags Islands um aðild Félags íslenzkra
lækna i Svíþjóð og var aðildin samþykkt mót-
atkvæðalaust. Tilkynnt hafði verið að Guðjón
Magnússon yrði fulltrúi félagsins á fundinum,
og var hann mættur.
Þá var tekið fyrir næsta mál á dagskrá, sem
var skýrsla stjórnar.
Formaður bauð Félag íslenzkra iækna í Sví-
þjóð velkomið í L.I.
Hann minntist í upphafi tveggja félaga, sem
látist höfðu á starfsárinu, þeirra Kjartans R.
Guðmundssonar og Kjartans Árnasonar, og risu
fundarmenn úr sætum i virðingarskyni.
1 upphafi skýrslunnar ræddi hann um að L.l.
væri 60 ára á þessu ári og rakti síðan nokkur
atriði úr sögu félagsins og ræddi ýmis mál, sem
það hefur látið til sín taka. Er sá kafli úr ræðu
formanns birtur á öðrum stað í blaðinu. Árs-
skýrsla félagsins hefur verið gefin út prentuð
og rakti hann efni skýrslunnar og gerði nánari
grein fyrir ýmsum atriðum.
Að lokinni skýrslu formanns þakkaði Páll
Sigurðsson, ráðuneytisstjóri Heilbrigðis- og
tryggingamálaráðuneytisins, fyrir boð á fund-
inn og flutti árnaðaróskir til félagsins og
kveðjur Matthíasar Bjarnasonar, heilbrigðis-
málaráðherra, sem boðið hafði verið á fundinn
en gat ekki verið viðstaddur vegna anna.
Þessu næst hófust umræður um skýrslu
stjórnar.
Þar sem skýrslan verður send út fjölrituð
fyrir næsta aðalfund, þykir ekki ástæða til
þess að birta umræður hér.
Á aðalfundinum voru nýjar Siðareglur lækna
samþykktar, svo og ný lög Læknafélags Islands
og hafa siðareglurnar og lögin þegar verið
send læknum sérprentuð.
Önnur aðalmál fundarins voru:
Bókasafnsmál og almenningsfræðsla um heil-
brigðismál, tilvísanir til sérfræðinga, Lækna-
blaðið, gagnkvæm lækningaleyfi á Norður-
löndum, samningamál, reikningar félagsins og
fjárhagsáætlun, Styrktarsjóður lækna, rekstur
skrifstofunnar, málefni sjálfseignarstofnunar-
innar Domus Medica.
Árgjald til félagsins var ákveðið krónur
60.000 fyrir árið 1979.
Fundi var fram haldið 24. júní. Þá flutti
Páll Sigurðsson ráðuneytisstjóri erindi, sem
hann nefndi: „Fjármögnun og framkvæmdir á
vegum heilbrigðisráðuneytisins á sl. 8 árum‘‘.
Erindið er birt í heild á öðrum stað í blaðinu.
Miklar umræður urðu um erindi ráðuneytis-
stjórans og er sem fyrr vísað til fundargerðar-
innar.
Ályktanir aöalfundarins voru þessar:
„Aðalfundur L.I. haldinn á Akureyri 23.—24.
júní 1978 mótmælir eindregið þeirri ákvörðun
heilbrigðismálaráðherra að leyfa starfsemi
hnykkis (kiropraktors) hér á landi. Fundurinn
telur, að með þessu sé stigið skref aftur á bak
varðandi menntun þeirra, sem stunda lækning-
ar, og með því lögheimiluð starfsemi á þvi
sviði, sem ekki byggir á læknisfræðilegri þekk-