Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 01.03.1979, Page 88

Læknablaðið - 01.03.1979, Page 88
50 LÆKNABLAÐIÐ HEIÐURSFÉLAGAR LÆKNAFÉLAGS ÍSLANDS Á formannaráðstefnu Læknafélags Islands á liðnu hausti voru sex læknum er kjörnir höfðu verið heiðursfélagar, afhent skjöl því til stað- festingar. Formaður L.I., Tómas Á. Jónasson, ávarpaði heiðursfélagana og gerði jafnframt nokkra grein fyrir starfsferli þeirra. Verða hér á eftir raktir helztu þættir æviágrips heiðurs- félaganna. Helgi Ingvarsson, er fæddur 10. október 1896. Helgi varð kandidat 1922 og hóf fljótt störf við berklalækningar á innlendum og erlendum sjúkrahúsum, var viðurkenndur sérfræðingur í berklalækningum 1929. Frá 1939 var Helgi yfirlæknir á Vífilsstöðum þar til 1966, að hann lét af störfum fyrir aldurs sakir. Helgi starfaði einnig við berklavarnir, sinnti ávallt stórum sjúklingahópi utan spítalavinnunnar og lét sér annt um kennslu læknanema. Knn þótt starf Helga væri margþætt, hygg ég, að hann sjálf- ur telji starf sitt innan veggja berklahælisins merkasta þáttinn, og reyndi þar verulega á hæfileika hans og samstarfsmanna hans, þar sem hælið var ávallt yfirfullt af sjúklingum, oft mikið veikum. Helgi var mjög dáður af sjúk- lingum og samstarfsfólki fyrir ljúfmennsku sína og mannkosti, en þekking hans og vak- andi áhugi urðu til þess, að allar nýjungar í meðferð, þar á meðal hin nýju áhriíamiklu lyf voru þar upp tekin jafnskjótt og þau voru fáanleg. Þegar svo var komið, að berklahælisins var ekki lengur þörf fyrir berklasjúklinga ein- göngu, hafði Helgi fullan skilning á því og tók virkan þátt í að breyta starfseminni. Dr. Sigurður Sigurðsson, fyrrverandi land- læknir, er fæddur 2. mai 1903. Hann varð kandidat 1929, en dr. med. við Háskóla Islands 1951 fyrir rit sitt „Berklaveiki á Islandi". Að loknu sérnámi og störfum erlendis hlaut Sig- urður viðurkenningu sem sérfræðingur í lyf- lækningum 1934 og starfaði þá á Landspítalan- um um hríð. Árið 1935 tók dr. Sigurður við nýstofnuðu embætti berklayfirlæknis. Starf- semi hans við berklavarnirnar beindist fljótt að því í vaxandi mæli að finna sjúkdóminn hjá einkennalausum sjúklingum, svo að þeir mættu komast sem fyrst til meðferðar og yrðu siður til þess að smita út frá sér. Dugnaður hans og samstarfsmanna hans við þessa starfsemi er alþjóð kunn, og fara margar sögur af ferða- lögum þeirra, þar sem þeir létu jafnvel ekki stórfljót og jökla hamla för sinni með röntgen- tæki sín. Dr. Sigurður tók ágætan þátt i félagsstarfi iækna og gegndi formennsku í Læknafélagi Reykjavíkur 1936—1940. Hann sat i stjórn Rauða Krossins og alllengi i bæjarstjórn Reykjavíkur. Dr. Sigurður var lengi prófdóm- ari við læknadeild og gegndi þar um skeið kennslustörfum. Þá var Sigurður Sigurðsson alloft tilkallaður sem fyrirlesari og ráðgjafi á erlendum vettvangi bæði fyrir og eftir að hann tók við embætti landjæknis, en það gerði hann 1960. I öllum störfum Sigurðar kom fram ein- stakur dugnaður og miklir hæfileikar, enda naut hann almenns trausts og hefur á marg- víslegan hátt verið heiðraður innan lands og utan. Oddur Ölafsson er fæddur 26. april 1909. Aö loknu kandidatsprófi 1936 starfaði hann á Vífilsstöðum og öðrum sjúkrahúsum innan- lands og utan og hlaut viðurkenningu sem sér- fræðingur í berklalækningum 1943. Áhugi Odds beindist snemma að endurhæfingu berklasjúk- linga, og kynnti hann sér þau mál rækilega. Frá 1942 sat hann i undirbúningsnefnd og síðar byggingarnefnd vinnuhælis S.l.B.S. að Reykjalundi, og var hann skipaður yfirlæknir og jafnframt forstöðumaður þess, er það hóf starfsemi sína í febrúar 1945 með 15 sjúkling- um. Þessi sjúklingafjöldi og umfang starfsem- innar jókst ótrúlega fljótt, svo að innan skamms vakti starfsemi Reykjalundar verð- skuldaða ahygli innan leuids og utan. Þegar að því kom, að möguleikar voru ekki fullnýttir af berklasjúklingum, sneri Oddur sér að því af engu minni krafti að skapa aðstöðu til endur- hæfingar annarra sjúklinga. Tók hann þá virkan þátt í starfi Öryrkjabandalagsins sem formaður þess og leiðbeinandi, og hefur siðan hann hætti læknisstörfum að Reykjalundi ein- beitt sér að þessum málum innan Aiþingis og utan með miklum árangri. Oddur hefur starf- að í fjölmörgum nefndum og ráðum, sem of langt er upp að telja. Þó er rétt að minnast á setu hans í stjórn Domus Medica frá 1962. Dr. Öskar Þórðarson er fæddur 29. desember 1906. Hann varð kandidat 1934 og sigldi þá þegar til framhaldsnáms til Noregs og síðar Danmerkur, þar sem hann starfaði til ársins 1945. Hann hlaut doktorsnafnbót við Hafnar- háskóla 1941 og var viðurkenndur sérfræðing- ur í lyflækningum 1945. Eftir heimkomuna starfaði dr. Óskar sem sérfræðingur í Reykja- vík, en starfaði jafnframt á Landspítala, síðar St. Jósefs spitala, en tók við yfirlæknisstöðu á lyflæknisdeild Borgarspítalans 1955 og gegndi því starfi til 1976, er hann Iét af störfum fyrir aldurs sakir. Störfum sínum hefur dr. Óskar gegnt af sérstökum áhuga og samvizkusemi og verið nákvæmur og einarður stjórnandi. Hann hefur birt fjölmargar vísindagreinar í sérgrein sinni og örvað yngri samstarfsmenn til hins sama.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.