Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 01.03.1979, Page 93

Læknablaðið - 01.03.1979, Page 93
LÆKNABLAÐIÐ 55 LeLðbein.ingar fyrir greinaköfunda EFNI Efni, sem óskað er birtingar á, skal sent í tvíriti til ritstjómar Læknablaðsins, Domus Medica, Reykjavík. Skulu því fylgja upplýsingar um vinnu- stað og heimilisfang höfundar (höfunda). Læknablaðið birtir vísindalegar greinar um öll svið læknisfræðinnar, hvort sem þær eru byggðar á eigin athugunum og rannsóknum eða um er að ræða saman- tekt á reynslu annarra, bæði yfirlits- og fræðslugreinar. Blaðið birtir efni er varðar málefni L.Í., svæða- og sérfélaga og um hvert það efni annað, sem tengt er hagsmuna- og áhuga- málum lækna. Þá eru og birtar stuttar athugasemdir og lesendabréf. GREINAR Greinar skulu settar upp á skýran og ljósan hátt. Greinartitill skal vera stuttur, en skýr, og lýsa viðfangsefni greinarinnar. Stundum er betra að hafa undirtitil. Inniheldur aðal- titill þá eitt eða fleiri lykilorð sem nauð- synleg eru til réttrar færslu greinarinnar í spjaldskrá. Undir titil greinarinnar setur höfundur nafn sitt og ef til vill nafn stofn- unar þeirrar, þar sem að greininni hefur verið unnið. EFNISÁGRIP í upphafi greinar skal í örstuttu máli segja frá efni hennar og þar sem það á við, hvert sé tilefni hennar og/eða tilgangur með birtingu hennar. Greinar skulu vera á góðri íslenzku og skal íslenzka öll erlend orð og heiti, verði því við komið. Sé þörf á skulu erlend orð sett í sviga aftan við þau íslenzku. Séu ekki til íslenzk heiti eða hugtök yfir það, sem um er rætt skulu erlend orð sett innan gæsalappa. HANDRIT Handrit skulu vélrituð skýrt og greini- lega öðru megin á pappírsarkir í stærðinni A4 (210 mm á breidd og 296 mm á hæð) og skal vera minnst 20 mm jaðar á alla vegu. Línubil skal vera tvöfalt. Ekki er leyfilegt að vélrita á jaðrana. Blaðsíður handrits skulu tölusettar í röð í efra horni hægra megin. Slík töluröð er áframhaldandi á efniságripi og heimildum. Áður en handrit er sent ritstjórn skal það vandlega yfir- farið. Minniháttar leiðréttingar má vélrita inn á milli lína. Sé hins vegar um meiri- háttar leiðréttingar að ræða, skal vélrita þann hluta að nýju. Frágangur handrits skal vera þannig, að hægt væri að senda það til setningar í prentsmiðju, ef um þrykkingu efnis verður að ræða. Ef hins vegar á að ,,offset“-prenta eða „offset“- fjölrita, skal frágangur handrits vera þann- ig, að hægt sé að gera myndamót eða stensla beint eftir handritinu og það á að geta þolað nauðsynlega smækkun. Skal þá haft samband við ritstjórn, hver skuli vera lögun og stærð þess flatar, er letur á að vera innan. TÖFLUR Töflur spara oft langt mál og skal ekki að nauðsynjalausu endurtaka í texta þær upplýsingar, sem í töflum standa, Töflur skulu hafðar eins einfaldar og skýrar og unnt er. Töflur á að vera hægt að skilja óháð texta í aðalmáli. Á þeim skal vera núnier, t.d. Tafla I, eða Table I, þegar ástæða er til að hafa texta töflunnar á ensku. Á þeim skal vera titill eða yfirskrift. Þar skal í örstuttu máli gera grein fyrir efni töflunnar, hvers konar upp- lýsingum hefir verið safnað, hvar, hvenær o.s.frv. Titill er ritaður með HÁSTÖFUM (blokkstöfum). Hægt er að setja fram frekari upplýsingar í undirtitli, til þess að titill verði ekki of langur. Undirtitill er ritaður með lágstöfum. í textadálki lengst til vinstri og í haus skal texti vera eins stuttorður og kostur er. Töflum skal skipt niður í reiti, með lárétt- um og lóðréttum línum, þegar þörf er.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.