Dagblaðið Vísir - DV - 23.02.2007, Page 7
Baldur þvertekur fyrir að um bak-
tjaldamakk hafi verið að ræða, en
nokkurrar óánægju hefur gætt í garð
hans meðal kennara skólans. Bald-
ur dregur sjálfur úr fréttum um stirð
samskipti á milli sín og starfsmanna
skólans og bendir á að 40% kennara
hafi í upphafi verið jákvæðir fyrir
rekstrarbreytingunum.
Hugmyndir um iðnháskóla
Með sameiningu Iðnskólans og
Fjöltækniskólans telur Baldur að
skólinn muni færast nær atvinnulíf-
inu, líkt og gert hefur verið í Háskóla
Íslands og Háskólanum í Reykjavík.
„Við lítum á þetta sem tækifæri til
þess að breikka starfssemina sem
mun verða til góðs fyrir báða skól-
ana. Sameiginlega geta þessir skólar
komið á fagháskólastigi.“
Ef af sameiningunni verður mun
rekstur skólanna færast í hendur
einkahlutafélags í eigu Landssam-
bands íslenskra útvegsmanna og
Samtaka iðnaðarins. Hefur skólinn
fengið vinnuheitið 2T Tækniskólinn.
„Þetta hefur átt sér langan aðdrag-
anda, vinna fór af stað á síðasta ári,
en hreyfing komst á málið í haust.
Ég skil þau rök kennara fullkom-
lega að ákvörðunin hefði átt að vera
tekin opinberlega, en okkur fannst
ekki rétt að kynna þessar hugmyndir
hálfkláraðar og skapa ástand óvissu
meðal kennara.“
Baldur segist ekki hafa greint það
sérstaklega hvaða öfl innan skólans
séu á móti honum. „Það eru sumir
sem taka þann pól í hæðina að vera
á móti breytingum. Þarna eru ein-
hverjir sem fara þá leið að ætla að
vera á móti þessum breytingum án
þess að hafa rök fyrir því og án þess
að spá í menntunarmöguleikanum.“
Hann segir engan hafa boðað upp-
sögn ennþá, en segist þó búast við
því að einhverjir sem eigi rétt á bið-
launum kjósi að taka þau. „Það verð-
ur öllum starfsmönnum skólans
boðin ný ráðning á sömu kjörum
og engin breyting verður á rekstrar-
forminu nema nemendurnir munu
finna fyrir því að þeir eru í metnað-
arfyllri og faglegri skóla. Skráning-
argjöld nemenda munu heldur ekki
hækka við breytinguna.“
Fullkomlega ábyrgðarlaust
Jón Bjarnason, alþingismaður
Vinstrihreyfingarinnar - græns fram-
boðs gagnrýnir framgöngu skólanna
og Þorgerðar Katrínar Gunnarsdótt-
ur í málinu. Hann segir að málið
hafi átt að eiga heima á Alþingi fyr-
ir löngu síðan. „Það er mjög ábyrgð-
arlaust að taka einn stærsta og mik-
ilvægasta framhaldsskóla og vöggu
iðnmenntunar í landinu úr ábyrgð
ríkisins og færa reksturinn á einu
bretti yfir á félag í einkaeigu. Þetta
mál er með öllu órökstutt af hálfu
ráðherra og þetta er keyrt í gegn
algjörlega óundirbúið. Þorgerður
Katrín hljóp fram úr sjálfri sér og öll-
um öðrum í málinu. Þetta eru ólíð-
andi vinnubrögð.“
Í fyrirspurn á Alþingi á mánudag
sagði Þorgerður að málið væri ennþá
á frumstigi og því segir Jón það koma
sér verulega á óvart að málið sé á
lokastigi hjá skólunum. Ráðherra ber
greinilega ekki saman við það sem
skólameistari Iðnskólans segir, það
þarf að skýra þessi mál.“ Ekki náðist í
ráðherra við vinnslu fréttarinnar.
DV Fréttir föstudagur 23. febrúar 2007 7
InnlendarFréttIr
ritstjorn@dv.is
Valgeir Örn ragnarsson
blaðamaður skrifar: valgeir@dv.is
Sameining Iðnskólans í Reykjavík og Fjöltækniskólans er á lokastigi, þetta segir Baldur
gíslason skólameistari Iðnskólans í Reykjavík. Í svari við fyrirspurn á Alþingi á mánu-
dag sagði menntamálaráðherra hins vegar að málið væri á frumstigi. Jón Bjarnason
gagnrýnir sameininguna harðlega og segir málið mjög illa undirbúið.
óundirbúin
sameining
keyrð í gegn
Fyrirhuguð sameining Iðnskólans í Reykjavík og Fjöltækniskól-
ans er á lokastigi af hálfu skólanna, samkvæmt Baldri Gíslasyni,
skólameistara Iðnskólans í Reykjavík. Hugmyndir um samein-
inguna og um leið einkavæðingu skólanna hafa verið í vinnslu í
um það bil eitt ár en starfsmönnum Iðnskólans voru ekki kynntar
áætlanirnar fyrr en í upphafi mánaðar.
Jón Bjarnason. segir málið illa rökstutt
af hálfu ráðherra.
Baldur gíslason skólameistari
Iðnskólans í reykjavík segir skráningar-
gjöld nemenda ekki hækka ef af
einkavæðingunni verður.
bankarnir í hár
saman
„Við sendum bréf til bæjar-
ins og erum ekki sátt við þessa
staðsetningu,“ segir Eva Rós Jó-
hannsdóttir, útibússtjóri Spari-
sjóðs Hafnarfjarðar í Garðabæ.
Stjórnendur sparisjóðsins eru
ósáttir við auglýsingaskilti sem
Kaupþing hyggst setja upp, rétt
hjá skilti sparisjóðsins við Vífils-
staðaveg.
„Þetta er frekar nálægt,“ segir
Eva Rós og óttast að nýtt skilti
Kaupþings skyggi á skilti Spari-
sjóðs Hafnarfjarðar sem hefur
verið þarna árum saman.
Bæjarráð Garðabæjar fjallaði
um kvörtun sparisjóðsins í fyrra-
dag. Niðurstaða þess var að rétt
hefði verið staðið að ákvörðun
um að leyfa Kaupþing að koma
skiltinu fyrir.
„Það eru sumir sem
taka þann pól í hæðina
að vera á móti breyt-
ingum.“
ungir þjófar
Fimmtán ára gamall piltur úr
Hafnarfirði var staðinn af þjófan-
ði í matvöruverslun í hafnarfirði
í gær. Talsvert virðist vera um
þjófnað ungmenna því sextán
ára piltur var einnig gripinn í
Kringlunni um kaffileytið í gær.
Þá var þrítugur karlmaður hand-
tekinn eftir þjófnað í sérverslun
á Laugaveginum á miðvikudags-
morginum. Svo voru allnokkrir
bensínþjófnaðir tilkynntir víða
um borgina. Á hverju ári verða
verslanir af milljarði vegna þjófn-
aðar í verslunum samkvæmt
Samtökum atvinnulífsins.