Dagblaðið Vísir - DV - 23.02.2007, Side 8
föstudagur 23. febrúar 20078 Fréttir DV
erlendarFréttir
ritstjorn@dv.is
Fellibylur í
ofanálag
Ekki er
ein bár-
an stök í
Mósam-
bík.
Nokkrum
dögum
eftir stór-
flóð þar
sem 40
týndu lífi
og 120.000
manns
misstu
heimili
sín gengur stærsti fellibylur síðan
mælingar hófust á land af Ind-
landshafinu. Ríkisstjórnin þykir
hafa brugðist vel við flóðunum
en hefur nú miklar áhyggjur af
heimilislausum sem hafast við í
tjöldum eða skúrabraki eftir flóð-
in. Fellibylurinn Favio er sterkari
en öflugasti fellibylurinn stór-
slysaárið 2000, þegar 700 manns
létust og hálf milljón flosnaði upp
frá heimilum sínum.
Meðan Mugabe forseti gúffar í
sig afmælisköku eiga þegnar hans
í Simbabve nær engan kost á því
að finna brauð á hillum búða og
bakaría. Bakarar í landinu neita að
halda áfram að selja brauð því þeir
segjast vera farnir að borga með
brauðinu. Verðbólga er nærri 1600
prósentum en forsetinn hefur sett
reglugerð um lögboðið brauðverð
til þess að hlífa almenningi við verð-
hækkunum. Því er brauðið nú löngu
farið að gefa minna í aðra hönd en
kostar að kaupa hráefnin í það.
Mugabe heldur sjálfur upp á af-
mæli sitt á morgun með íburðar-
mikilli afmælisveislu, sem gagnrýn-
endur hans segja að gæti brauðfætt
þúsundir þegnanna svo mánuðum
skiptir.
Mugabe bannaði alla fundi og
mótmæli í landinu eftir að átök
blossuðu upp milli lögreglu og póli-
tískra andstæðinga forsetans, sem
þó höfðu fengið leyfi dómstóls til að
halda útifund. Andstæðingar Muga-
bes segja fundabannið örþrifaráð
forseta sem óttast vaxandi and-
spyrnu í þjóðfélaginu.
Verðbólgan í Simbabve étur upp hagnað bakara:
Sagan af brauðinu dýra
83 ára afmælisbarn robert Mugabe sendir löndum sínum kaldar kveðjur meðan
hann sjálfur býður í afmæli.
Nýja Ungdómshúsið
skólabyggingin við stevnsgade
sem ungdómshúsið vill aðeins
borga eina danska krónu fyrir.
Engin sátt virðist í sjónmáli í deilum um Ungdómshúsið í Kaupmannahöfn þrátt fyrir
stíf fundahöld í vikunni. Lögregla hafði gefið út að húsið yrði rýmt en þeim aðgerðum
var frestað meðan viðræður voru í gangi. Tilboði borgaryfirvalda um að selja eða leigja
forsvarsmönnum Ungdómshússins tómt skólahúsnæði undir starfsemina var hafnað.
Það lítur því út fyrir að lögregla rými húsið með valdi og óttast menn uppþot og róstur í
kjölfarið.
Vilja aðeins borga eina
krónu fyrir nýtt hús
Nú síðast fyrir upphæð sem sam-
svarar hundrað og fjörutíu milljón-
um íslenskra króna. Borgin er tilbúin
til að selja sjóðnum tóma skólabygg-
ingu fyrir þá upphæð en forsvars-
menn Ungdómshússins segjast ekki
borga meira en eina danska krónu.
Það ber því töluvert á milli.
Samkvæmt núverandi plönum
borgarinnar á að nýta skólabygging-
una fyrir fötluð börn í framtíðinni og
því yrði söluverðið nýtt til að finna
þeirri starfsemi annan stað. En þar
sem Ungdómshúsið er ekki til í að
borga uppsett verð kom fram tillaga
frá lögmanni sjóðsins um að borg-
in myndi gefa skólann en sjóðurinn
kaupa nýtt húsnæði undir börnin.
Í tilkynningu frá Ungdómshúsinu
segir að enginn munur sé á þessum
tveimur tillögum og þær því felldar.
Hugmyndir um að húsið yrði leigt
af borginni voru sömuleiðis skotnar
niður af báðum aðilum. Ritt Bjerre-
gaard borgarstjóri segist ekki sjá aðra
lausn á málinu en þá að sjóðurinn
kaupi skólabygginguna og ekki sé
von á nýju tilboði frá borginni.
Á miðvikudag sendi Knud Fold-
schack frá sér tilkynningu þar sem
segir að hann og sjóðurinn hafi gefist
upp á að ná sáttum um málið.
Lögreglan gaf það út í vikunni að
hún myndi ekki hefjast handa við að
rýma húsið á meðan samningafund-
ir stæðu enn yfir. En þar sem þeir eru
fyrir bí er útlit fyrir að húsið verði rýmt
með lögregluvaldi á næstunni. Er bú-
ist við hörðum mótmælum í fram-
haldinu og hefur upplýsingabæklingi
verið dreift í skóla og verslanir á svæð-
inu í kringum húsið með leiðbeining-
um um hvernig brugðist skuli við ef
mótmæli brjótast út. Á vefsíðu Ung-
dómshússins kemur fram að mót-
mæli muni standa yfir í nokkra daga
verði samtökin húsnæðislaus.
Enginn árangur hefur náðst á fundum borgaryfirvalda í Kaup-
mannahöfn og forsvarsmanna Ungdómshússins í vikunni. Deilu-
aðilar hafa sest að samningaborði fyrir tilstuðlan lögmannsins
Knuds Foldschack sem fer fyrir sjóði sem ítrekað hefur reynt að
kaupa núverandi húsnæði Ungdómshússins.
lögreglan gaf það út í
vikunni að hún myndi
ekki hefjast handa við
að rýma húsið á meðan
samningafundir stæðu
enn yfir.
Prinsinn í
skýjunum
Harry Breta-
prins er hæst-
ánægður með
að verða sendur
til Íraks. Prins-
inn hafði lýst því
yfir að hann tæki
ekki í mál að sitja
heima ef félagar
hans í herdeild-
inni færu á víg-
völlinn. Hann útskrifaðist úr
Sandhurst- herskólanum í apríl
á síðasta ári og mun leiða um
það bil 12 manna hópa í Suður-
Írak í 6 mánuði. Ólíklegt má hins
vegar telja að hann verði sendur
í hættuleg verkefni, þó hann óski
ekki eftir sérmeðferð. Það myndi
einnig setja félaga hans í hættu
að vera við hlið svo eftirsótts
skotmarks.
blair til bjargar
Ef Írakar ná ekki tökum á
ástandinu í suðurhluta landsins
þá mun ekki standa á Bretum
að fjölga í liði sínu á svæðinu á
nýjan leik. Þetta sagði Tony Blair,
forsætisráðherra Bretlands í
gær daginn eftir að hann kynnti
áform sín um draga verulega úr
herstyrknum í Írak. Blair sagði
Breta geta verið stolta af störf-
um hersins í Írak og vísaði á bug
ásökunum um að hann bæri per-
sónulega ábyrgð á því ófremdar-
ástandi sem þar ríkti.
hillary örg
Ummæli Davids Geffen,
framámanns í Hollywood, um að
Clinton hjónin ættu svo auðvelt
með að ljúga að það ylli honum
áhyggjum hafa hleypt illu blóði í
stuðningsmenn Hillary Clinton.
Geffen er fyrrum stuðningsmað-
ur Bill Clinton en styður nú við
bakið á Barack Obama. Talsmað-
ur Hillary Clinton krefst þess að
Obama lýsi andúð sinni á þess-
um ummælum og skili því fé sem
Geffen hafi lagt til baráttu hans.
Obama segist ekki ætla að verða
við þeirri beiðni.
bloggari dæmdur
Egypskur dómstóll hefur
dæmt bloggara í fjögurra ára
fangelsi fyrir að móðga íslam
og forsetann. Þetta er í fyrsta
skipti sem bloggari hefur verið
sóttur til saka í landinu fyrir skrif
sín. Hann er dæmdur fyrir að
gagnrýna æðstu stofnun íslams í
landinu, al-Azhar háskólann og
að kalla Hosni Mubarak einræð-
isherra. Mannréttindasamtök
hafa gagnrýnt dóminn harð-
lega og segja hann mjög harðan.
Margir bloggarar hafa verið fang-
elsaðir í Egyptalandi fyrir skrif
sín en hafa allir verið leystir úr
haldi fljótlega.