Dagblaðið Vísir - DV - 23.02.2007, Qupperneq 34
föstudagur 16. febrúar 200734 Sport DV
ÍÞRÓTTAMOLAR
Þórður Guðjónsson sem lék og
æfði við bestu aðstæður um margra
ára skeið sem atvinnumaður segir
að Akraneshöllin breyti öllu íþrótta-
starfi ÍA.
„Þetta er algjör snilld, ef við ber-
um þetta saman við síðasta vet-
ur þar sem við vorum með fimm
gervigrasæfingar allan veturinn
en við náum því á einni viku núna.
Við æfðum í fjörunni þegar var ekki
flóð og næg birta. En það var upp og
ofan hvernig sandurinn var þannig
að þetta er ótrúlegur munur. Í gamla
daga var hægt að spila heila leiki á
sandinum en þetta var orðið þannig
að þetta var orðinn smá skiki sem
var sæmilega spilanlegur. En það
var ekkert hægt að æfa fyrirgjafir og
sendingar.“
Nokkur umræða hefur verið
meðal leikmanna, sem æfa í Egils-
höll og Fífunni, að það sé of mikið af
gúmmíi í grasinu þar. Þórður segir
að grasið í Akraneshöllinni sé betra
en í höllunum á höfuðborgarsvæð-
inu.
„Grasið er það sama og í Fífunni
og Egilshöll en það hefur eitthvað
misfarist í bænum því grasið hér er
miklu betra.
Ég er mjög svekktur að vera kom-
inn yfir þrítugt núna get ég sagt
þér. Fyrir þá sem eru að koma upp
í meistaraflokk núna er þetta algjör
draumur og ef menn bæta sig ekki
núna þá bæta menn sig aldrei. Það
sést mikill munur á liðinu okkar
núna og á sama tíma í fyrra. Sérstak-
lega ungu leikmennirnir og hvað
þeir eru búnir að bæta sig, ef menn
eru í fullu fjöri og æfa fimm til sex
sinnum í viku við svona aðstæður
þá er náttúrulega ekki spurning um
að þeir bæti sig.“
Knattspyrnuhúsin á Íslandi
eru nú sjö talsins. Í Reykjanesbæ,
Reykjavík, Kópavogi, Reyðarfirði,
Akureyri, Hafnarfirði og Akranesi.
Fleiri hús eru væntanleg, með-
al annars hjá Val, KR og annað hús
mun rísa í Kópavogi. Þórður er ekki í
vafa um að þessi hús muni gjörbylta
íslenskri knattspyrnu.
„Þegar það eru komin svona
mörg hús og fleiri eins og þetta þá
verður þetta algjör snilld fyrir ís-
lenska knattspyrnu. Mér finnst fínt
að höllin hér sé ekki upphituð, hún
er opin í gegn þannig að það er alltaf
hreyfing á loftinu. Höllin fyrir norð-
an kólnar rosalega mikið, en hér er
alltaf tveimur til þremur gráðum
heitara, logn og þurft og það seg-
ir sig sjálft að það er miklu betra að
æfa við þessar aðstæður. Við höfum
fyrsta aðgang að húsinu á meðan
liðin í Reykjavík berjast um æfinga-
tímana.“
Getur alltaf bætt sig
Guðjón Þórðarson er kominn
aftur í brúna uppi á Skaga. Eins
og flestir vita er hann faðir þeirra
Þórðar og Bjarna sem leika með ÍA.
Guðjón var ekki á æfingunni þegar
blaðamann bar að garði, þar sem
hann er á Englandi að leita að leik-
mönnum. Þórður lék með ÍA, Stoke
og íslenska landsliðinu undir stjórn
Guðjóns en hvernig finnst honum
að vera kominn aftur undir stjórn
gamla mannsins?
„Það er bara gaman, ég var með
hann fyrst sem þjálfara 1990 og það
hefur margt breyst á þessum tíma.
Þjálfunaraðferðir og aðstæður. En
ég þekki hann vel og þekki hvern-
ig hann reynir menn og prófar og
annað slíkt. Maður þekkir allt sem
hann er að segja og hann miðlar vel
af reynslunni, en maður er aldrei of
gamall til að læra. Maður getur alltaf
bætt sig,“ segir Þórður og glottir.
Ungt lið núna
Með komu Akraneshallarinn-
ar hafa æfingar breyst mikið frá því
í fyrra. Lið ÍA æfir nú miklu meira
með bolta og er minna í útihlaup-
um sem hafa verið aðalsmerki und-
irbúningstímabilsins þar. Þórður
segir að lið ÍA sé í allt öðruvísi formi
nú en á sama tíma í fyrra.
„Við erum í miklu betra bolta-
formi núna en á sama tíma í fyrra,
erum reyndar þungir þar sem við
erum í þungu prógrammi, sem er
eðlilegt þar sem við erum 5–6 sinn-
um á viku með bolta og svo lyftum
við þrisvar sinnum í viku.
Við erum með 19 leikmenn
núna, þar af eru 12 gjaldgengir í 21
árs landsliðið þannig við erum með
ansi ungt lið núna sem er mikill
munur frá því í fyrra. Þá vorum við
með 8 leikmenn yfir þrítugu, nú eru
bara þrír, svo erum við með fjóra á
ByLTing á AkRAnesi
„Við erum í miklu betra boltaformi núna en á
sama tíma í fyrra, erum reyndar þungir þar sem
við erum í þungu prógrammi, sem er eðlilegt
þar sem við erum 5-6 sinnum á viku með bolta
og svo lyftum við þrisvar sinnum í viku.
Tilkoma þessa mikla mannvirkis breytir gríðarlega miklu fyrir
íþróttalíf á Akranesi. Hlaupabraut er í kringum völlinn og nýta
frjálsíþróttamenn hana mikið og þá var einn eldri borgari að klára
átta hringi í kringum völlinn þegar blaðamann bar að garði.
Þann 21. október var nýtt og glæsilegt fjölnota
íþróttahús opnað á Akranesi, Akraneshöllin.
Höllin gjörbreytir knattspyrnuaðstöðunni í
bænum og er vel nýtt af ungum sem öldnum.
Hver er Hassler?
bolaji Ojo-Oba, fram-
kvæmdarstjóri nígeríska
knattspyrnusambandsins,
kom af fjöllum þegar
fjölmiðlar þar í landi
spurðu hann út í nýjan
aðstoðarmann bertis
Vogts, thomas Hassler. „Hann hefur ekki
ráðið sér aðstoðarmann,“ sagði Ojo-Oba
en fjölmiðlar bentu honum á grein sem
birtist í þýska blaðinu bild þar sem
Vogts lýsti ánægju með að vera búinn
að fá Hassler í lið sitt. „Við verðum þá
bara að ræða þessa ráðningu þegar
Vogts kemur næst til Nígeríu,“ sagði
framkvæmdastjórinn furðu lostinn.
Makaay vill vera Hjá
Bayern
Hollenski markahrókurinn
roy Makaay hefur lýst því
yfir að hann vilji enda
ferilinn hjá bayern
Munchen. Makaay, sem er
31 árs, er með samning út
júní 2008 við þýska liðið og hefur skorað
11 mörk í deildinni. „ef ég mætti ráða þá
myndi ég vilja vera hér um ókomna
framtíð. en hver veit hvað framtíðin ber í
skauti sér?“ sagði þessi magnaði
framherji.
WeMBley ekki tilBúinn
Miklum
hátíðarhöldum til
að fagna nýjum
Wembley-
leikvangi sem
fara áttu fram 17. mars hefur verið
slegið á frest vegna tafa. um 60 þúsund
manns var boðið og átti sjálf drottning-
in að mæta á svæðið. Þetta er í enn eitt
skiptið sem ástralska fyrirtækið
Multiplex, sem sér um byggingu
vallarins, stendur ekki við gefin loforð.
Þeir segja þó að völlurinn verði tilbúinn
fyrir bikarúrslitaleikinn í maí.
jUninHo áfraM Hjá lyon
Hinn 32 ára gamli
brasilíumaður Juninho
hefur framlengt samning
sinn við Lyon um eitt ár, til
ársins 2009. Juninho sem
er af mörgum talinn einn
besti spyrnumaður heims
um þessar mundir gekk í
raðir franska liðsins frá Vasco de gama
árið 2001 og hefur síðan þá verið einn
besti maður liðsins. Hann er í dag
fyrirliði þess og andlit þess út á við.
speGill, speGill
Patrice evra sagði í viðtali
við hinn áreiðanlega miðil
the sun að Christiano
ronaldo væri ástfanginn
af sjálfum sér. „Hann er sá
eini sem er með prívat og
persónulegan spegil í
búningsklefanum. Hann
eyðir heilu klukkutímunum fyrir framan
spegilinn að laga á sér hárið og skoða
líkamann.“ ekki lét frakkinn staðar
numið þar og sagði að nokkrir leikmenn
hefðu ansi skrautleg gælunöfn, Wayne
„the Hummer“ rooney, Paul „the
Pitbull“ scholes, ryan „the rocket“
giggs, Ole „the Legend“ solskjaer og
Louis „the Panther“ saha. ekki ódýrt
prógramm þar á ferð.
DynaMo kiev vill fá
sHevcHenko
forseti dynamo Kiev Igor
surkis vill endilega fá
fyrrverandi leikmann
liðsins andriy shev-
chenko aftur til liðsins.
„Ég hef sagt honum að
hann geti ekki náð því besta fram í
sjálfum sér því þeir hjá Chelsea treysta
honum ekki. Ég vona að hann komi
aftur til okkar í sumar,“ segir þessi
bjartsýni maður. shevchenko var seldur
á sínum tíma frá dynamo til aC Milan
þar sem hann sýndi og sannaði að hann
er einn besti framherji í heimi þótt fátt
hafi gengið upp í vetur.
scHWarzer til Bayern?
Markvörður
Middlesbrough
Mark schwarzer
gæti verið á leið til
bayern Munchen.
Hann sleit samstarfi
við umboðsmann sinn til tíu ára og vill
endilega snúa aftur til þýskalands. Þar
lék hann með Kaiserslautern áður en
hann var keyptur til bradford. Kona
schwarzers er þýsk og vill ólm komast
aftur til heimalandsins. talið er að
bayern Munchen sjái schwarzer sem
eftirmann Olivers Kahn sem leggur
skóna á hilluna í sumar.