Dagblaðið Vísir - DV - 23.02.2007, Blaðsíða 35
föstudagur 16. fEBrúar 2007 35Sport DV
Bylting á AkrAnesi
aldrinum 21–30 og svo er restin bara
kjúklingar. Hópurinn er lítill en mér
finnst gæðin hafa aukist mikið, sér-
staklega í vetur, þannig að framtíðin
er mjög björt.“
Gaman að vera 11 ára í dag
Þriðji flokkur karla í fótbolta
var á æfingu og segir Hjálmur Dór
Hjálmsson þjálfari að húsið sé al-
gjör bylting. „Þetta breytir öllu og er
algjör draumur. Á sama tíma í fyrra
var ég að æfa á sparkvelli og innan-
húss tvisvar sinnum í viku, þannig
að þetta er algjör bylting. Í stað-
inn fyrir að vera í snjó, rigningu og
vondum veðrum er maður í 8 stiga
hita og logni hér inni. Það hefði ver-
ið munur að vera 11 ára í dag,“ seg-
ir Hjálmur í léttum tón. Hann þótti
einn efnilegasti hægri bakvörður
landsins á sínum tíma en meiðsli
bundu enda á feril hans. Hjálmur
segir að þegar hann var ungur hafi
tímarnir verið aðrir.
„Þegar ég var í öðrum flokki
æfðum við á malarvellinum fjór-
um sinnum í viku í hvaða veðri sem
er. Nú er ég með þriðja flokk fimm
sinnum í viku í fótbolta við bestu að-
stæður. Miðað við ágúst í fyrra hefur
fjölgað um 70 iðkendur, þeir voru á
tímabili um 100, en ég er með tæp-
lega 40 stráka á skrá í þriðja flokki.
Það eru líka nokkrir sem eru byrj-
aðir aftur eftir að hafa hætt og þeir
væru klárlega ekki að æfa værum
við enn að æfa úti.“
Grasið sem er í húsinu er einn-
ig mjög gott og er ekki jafnmikið af
gúmmíkúlum og í Egilshöllinni og
Fífunni í Kópavogi. Hjálmur fór úr
skónum og ólíkt því sem er í Eg-
ilshöll og Fífunni, þar sem skórnir
verða fullir af svörtum gúmmíkúl-
um detta ekki nema fjögur korn úr
skónum hans. Þrátt fyrir að hann
hafi verið í höllinni í þrjá tíma.
Algjör bylting
Margrét Ákadóttir var að ljúka
æfingu með sjötta og sjöunda flokki
kvenna og hún tekur í sama streng
og Hjálmur og segir að höllin breyti
öllu íþróttastarfi félagsins.
„Ef þessi höll væri ekki þá væri
ég tvisvar sinnum í viku innanhúss
á parketi. Ég er þrisvar í viku núna.
Það er náttúrulega miklu minna
pláss innanhúss og eins og á æfing-
unni áðan þá vorum við með sam-
eiginlega æfingu hjá stelpunum og
strákunum. Þannig að við höfum
verið að nýta stærðina með því að
spila við aðra flokka.“
Aðspurð hvort iðkendum hafi
eitthvað fjölgað segir Margrét að svo
sé því miður ekki hjá sér þó að fjölg-
unin sé mikil hjá strákunum.
„Það sem er stór plús við þessa
höll er að hún er opin öllum og
hingað geta iðkendur komið um
helgar og leikið sér. Meðan er opið
í sundlaugina er opið hér og þegar
það er ekkert um að vera í höllinni
þá mega krakkarnir koma hingað.
Þannig að hún er mjög vel nýtt.
Ungir krakkar nýta sér hana vel
um helgar þegar hún er laus. Þetta
er algjör bylting og breytir alveg
helling og við eigum eftir að sjá það
þegar fram líða stundir.“
Miklu betra
Almar Knörr Hjaltason er 10 ára
gamall og er því í sjötta flokki. Hann
er himinlifandi með að það sé kom-
ið fjölnota hús á Akranesi. „Það
er miklu betra að vera hér en úti á
gervigrasi og inni á parketi. Ég held
að ég hafi bætt mig pínu þó að ég
geti ekki gert fleiri trikk. Ég get sko
spilað eiginlega allar stöður nema
frammi. Við æfum þrisvar sinnum
í viku og Óli þjálfari er mjög góður
þjálfari.“
Hrafn Darri Guðbjörnsson er
með Almari í sjötta flokki og finnst
gott að spila í höllinni.
„Við erum búnir að spila við
Þrótt, Val, Víking og Þór og það hef-
ur bara gengið mjög vel hjá okk-
ur. Ég er alveg ágætur í fótbolta og
þetta er miklu betra en að vera inni
á parketinu.“
Ellert Jón Björnsson leikmað-
ur meistaraflokks félagsins segir
að ýmislegt hafi breyst með komu
hallarinnar. „Við æfðum innanhúss-
fótbolta á parketi tvisvar til þrisvar
sinnum í viku. Það voru ekkert all-
ir sem gátu æft þar vegna meiðsla
og þeir sömu æfðu þá engan fót-
bolta alla vikuna. Við fórum reyndar
stundum til Reykjavíkur og æfðum í
Egilshöll klukkan átta á morgnana.
Vorum lagðir af stað héðan ofan af
Skaga um sjö, en það var sjaldan.
Við hlupum 15 km á malbiki og lyft-
um. Það gerðum við allan veturinn.
Í gamla daga var mikið æft í fjör-
unni, þó að við höfum gert töluvert
af því í fyrra. Það var bara þegar
veðrið var þannig, en það var ekkert
hægt að treysta á það.“
“Það sem er stór plús við þessa höll er að hún er
opin öllum og hingað geta iðkendur komið um
helgar og leikið sér. Meðan er opið í sundlaug-
ina er opið hér og þegar það er ekkert um að
vera í höllinni þá mega krakkarnir koma hing-
að. Þannig að hún er mjög vel nýtt.
Ekki lengur í fjörunni Meistaraflokkur Ía hefur æft á Langa-
sandi undanfarin ár en nú er öldin önnur og segir Þórður
guðjónsson að gæðin í hópnum séu meiri en á sama tíma í fyrra.
Að gefa góð ráð Hjálmur dór Hjálmsson þjálfari þriðja flokks karla miðlar hér
upplýsingum til yngri iðkenda.
Ánægð með höllina Yngri kynslóðin er mjög sátt við nýju akraneshöllina og nýtir
hana mjög vel.
Bylting Margrét Ákadóttir segir að höllin breyti gríðarlega miklu fyrir allt íþróttastarf
á akranesi.dv Myndir Eiríkur kristófErsson
leiðin í úrslitin
Arsenal og Chelsea mætast í úrslitum
deildarbikarsins á Englandi á sunnudag-
inn. Liðin hafa hvort um sig mætt þrem-
ur úrvalsdeildarliðum á leið sinni í úrslit-
in. Það vekur athygli að Chelsea hefur
eingöngu fengið á sig eitt mark til þessa í
keppninni.
ArsEnAl:
W.B.a. (ú) 2-0
Everton (ú) 1-0
Liverpool (ú) 6-3
tottenham (ú) 2-2
tottenham (h) 3-1
ChElsEA:
Blackburn (ú) 2-0
aston Villa (h) 4-0
Newcastle (ú) 1-0
Wycombe (ú) 1-1
Wycombe (h) 4-0
BAptistA MArkAhæstur í dEildArBikArnuM
Julio Baptista er markahæstur í deildarbik-
arnum á þessari leiktíð. Hann hefur skorað
sex mörk í tveimur leikjum.
Mörk Arsenal:
Julio Baptista 6
Jeremie aliadiere 4
Emmanuel adebayor 2
alexandre song 1
sjálfsmark 1
alls 14 mörk
Mörk Chelsea:
frank Lampard 3
andriy shevchenko 3
didier drogba 2
Joe Cole 1
salomon Kalou 1
Michael Essien 1
Wayne Bridge 1
alls 12 mörk
Markahæstu menn á Englandi
didier drogba, Chelsea 17
Cristiano ronaldo, Man. utd 15
ayegbeni Yakubu, Middlesbrough 11
robin van Persie, arsenal 11
Nwankwo Kanu, Portsmouth 10
thierry Henry, arsenal 10
frank Lampard, Chelsea 10
Wayne rooney, Man. utd 10
Benedict McCarthy, Blackburn 10
Kevin doyle, reading 10
Obafemi Martins, Newcastle 10
Markahæstu menn á spáni
frederic Kanoute, sevilla 18
ronaldinho, Barcelona 16
diego Milito, r. Zaragoza 15
ruud van Nistelrooy, r. Madrid 11
david Villa, Valencia 10
fernando Baiano, Celta Vigo 9
fernando Morientes, Valencia 9
Luis garcia, Espanyol 8
roberto soldado, Osasuna 8
f. sinama Pongolle, recreativo 8
raul tamudo, Espanyol 8
Markahæstu menn á ítalíu
francesco totti, roma 14
Luca toni, fiorentina 12
rolando Bianchi, reggina 12
gionatha spinesi, Catania 11
fabio Quagliarella, sampdoria 10
Vincenzo Iaquinta, udinese 10
Zlatan Ibrahimovic, Inter 10
Cristiano doni, atalanta 10
adrian Mutu, fiorentina 10
Christiano Lucarelli, Livorno 10
Markahæstu menn í Þýskalandi
Mario gomez, stuttgart 13
Kevin Kuranyi, schalke 11
roy Makaay, Bayern München 11
Miroslac Klose, Werder Bremen 11
Marko Pantelic, Hertha Berlin 11
theofanis gekas, Bochum 9
alexander frei, dortmund 9
diego, Werder Bremen 9
Ivan saenko, Nurnberg 8
sergiu radu, E. Cottbus 8
Mike Hanke, Wolfsburg 8