Dagblaðið Vísir - DV - 23.02.2007, Page 44
vatni og kaffirjóma og bætið
grænmetisteningi út í. Bætið pastanu
út í, ásamt beikoninu og slurki af
rjóma og að síðustu niðurskornum
döðlum og vínberjum.
Berið fram með hvítlauksbrauði og
lambhagasalati með balsamiksírópi.
KLESSUKAKA
l 150 g smjörlíki
l 200 g suðusúkkulaði
Brætt saman á hæsta styrk í
örbylgjuofni í þrjár mínútur.
l Hrærið saman fjórum eggjum og
15 grömmum af sykri þar til
blandan er ljós og létt.
l Súkkulaðibráðinu hellt út í
ásamt 2 dl af hveiti og
hrært létt saman.
Setjið í form og bakið í
örbylgjuofni í sex mínútur á
hæsta styrk.
Skerið jarðarberin niður
og dreifið þeim yfir
kökuna sem síðan er borin
fram með þeyttum rjóma.
föStudagur 23. feBrúar 200744 Helgarblað DV
Elín María skorar á bróður
sinn Ólaf Má Björnsson
augnlækni. „Hann er algjör
snilldarkokkur og sá sem hefur
verið hvað duglegastur við að
bjóða fjölskyldunni í mat (fyrir
utan mömmu auðvitað!),“
segir Elín María um
arftaka sinn.
Elín María Björnsdóttir, verslun-
arstjóri í versluninni EGG og dag-
skrárgerðarmaður, er matgæðingur
DV þessa vikuna. Áslaug Hulda Jóns-
dóttir skoraði á hana og sagði við það
tækifæri að Elínu Maríu hefði farið
mikið fram í matargerðarlistinni og
það væri bæði gott og gaman að vera
boðið í mat til hennar og Hrafnkels
eiginmanns hennar. Þessa dagana
er Elín María í skíðaferð með stór-
fjölskyldunni í fjallakofa í Noregi og
skíðin eru óspart notuð. Elínu Maríu
finnst ekki leiðinlegt að elda ofan í
þennan stóra hóp.
„Þegar ég byrjaði að búa eld-
aði ég oftast soðinn fisk, nautahakk
og spæld egg, svona dæmigerðan
heimilismat, og kunni ákaflega lítið
að nota framandi krydd. Áslaug vin-
kona mín kom mér upp á lagið með
að elda sannkallað sælkerafæði og í
dag myndi ég leyfa mér að fullyrða að
ég sé sómakokkur. Ég styðst við upp-
skriftir til þess að fá hugmyndir en á
erfitt með að fara nákvæmlega eftir
þeim og þá skiptir ekki máli hvort ég
er að baka eða elda. Útkoman er ekk-
ert verri fyrir það og ég er viss um að
vinir og vandamenn geta tekið undir
þá fullyrðingu.
„Ég er verslunarstjóri í versluninni
EGG þar sem selt er nánast allt fyr-
ir heimilið og ég legg mikla áherslu
á að þar sé á boðstólum gott úrval af
eldhúsáhöldum og fylgihlutum.
Ég reyni að elda á hverjum degi
og þá gjarnan eitthvað einfalt og
fljótlegt og er jafnframt dugleg við að
kenna börnunum mínum að borða
hollan mat. En skemmtilegast finnst
mér að elda hátíðarmat og bjóða til
veislu. Ég á stóra fjölskyldu og stór-
an vinahóp og ég er dugleg að bjóða
þeim í mat og á sumrin er grillið í
mikilli notkun. Það er ekki óalgengt
að við séum frá tíu og upp í tuttugu
manns sem komum saman og njót-
um þess að borða góðan mat,“ segir
Elín María að lokum.
Elín María gefur uppskrift að
gráðostapasta og svokallaðri klessu-
köku sem hún segir að sé tilbúin á
borðið tíu mínútum eftir að byrjað er
að baka hana.
GRÁÐOSTAPASTA
l tagliatelle-pasta – einn pakki
l Beikon
l Laukur
l Paprika
l Sveppir
l Hvítlaukur
l döðlur
l Vínber
Steikið beikonið á pönnu og leggið til
hliðar. Hitið grænmetið á pönnu og
leggið til hliðar.
Bræðið gráðostinn á pönnu í smá
Dv m
ynD GúnDi
deig:
l 300 g fínt hveiti
l 100 g flórsykur
l 200 g smjör
l fínrifinn börkur af ½ sítrónu
l 1 eggjarauða, hrærð saman við 1
msk. af vatni
fylling:
l 50 g ljós hrásykur
l 50 g dökkur púðursykur
l fínrifinn börkur af hálfri sítrónu
l fínrifinn börkur af hálfri appelsínu
l 2 msk. fínt hveiti
l 1 tsk. mulinn kanill
l ½ tsk. rifin múskathneta
l 50 g mjúkar rúsínur
l 50 g möndlur, afhýddar og hakkaðar
l 500 g súr epli, skræld og skorin í báta
Sigtið hveitið og flórsykurinn saman í
skál. Myljið smjörið út í ásamt sítrónu-
berki og hrærðu eggjarauðunni. Hnoðið
deigið hratt og látið þá standa á köldum
stað í að minnsta kosti klukkutíma.
Blandið hrásykri og púðursykri vel saman
við sítrónu- og appelsínubörk, hveiti,
kanil, múskat, rúsínur og möndlur. Notið
2/3 af deiginu til að þekja botn og hliðar
kökuformsins. dreifið helmingi
eplabátanna jafnt ofan á deigið og hellið
helmingi af fyllingunni yfir. Setjið annað
lag af eplabátum ofan á og svo hinn
helming fyllingarinnar. Notið afganginn
af deiginu sem lok ofan á fyllinguna.
Klemmið það fast við deigið sem liggur
upp frá hliðunum. Búið til örfá göt á lokið
svo rakinn frá eplunum komist út. Hitið
ofninn í 180°C. Penslið lokið með þeyttu
eggi og bakið tertuna í 30–40 mínútur
þar til hún er orðin gyllt. ef lokið bakast
of hratt má setja álpappir yfir tertuna
undir lok bökunartímans. Berið fram
með þeyttum eða sýrðum rjóma.
Ensk eplaterta
(fyrir 8-10)
U m s j ó n : J a n u s S i g u r j ó n s s o n . N e t f a n g j a n u s @ d v . i s
&Matur vín
Frá Ástralíu, nánar tiltekið Limestone Coast, kemur þessi flotti Chardonnay sem er ljósgulur á lit með grænum tónum. Ilmurinn minnir á þroskuð
epli og suðræna ávexti. Vínið er meðalbragðmikið og ber hvað mest á sítrus og mel- ónu, einnig vanillu og smá eikartónum.
Þetta er feitt og flott vín sem hentar vel með feitum fiski og rjómasósum, einnig með ljósu kjöti eins og kjúklingi og grísakjöti.
La Habanera (Spánn)
Hér er komið afar gott vín sem fær góða
dóma nánast alls staðar þar sem það
snertir tungu. Dökkrauður litur með
miklum og flóknum ilm sem ber vanillu
og eik. Smá sæta og silkimjúk tannín.
Þetta vín hefur legið á eikartunnum í sex
mánuði sem er frekar sjaldgæft á meðal
kassavína og er útkoman hreint frábær.
Eitt af fáum kassavínum sem þolir stórar
steikur eins og naut og lamb.
Verð í vínbúðum ÁTVR: 3.590 kr.
J.P. Chenet Caber-
net/Syrah (Frakk-
land)
Enn og aftur vill ég fjalla um
Chenetinn, einfaldlega vegna
þess að hann er alveg að gera sig,
hér kominn í boxútgáfu og stenst
öðrum vínum vel snúning. Sætt og
þroskað bragð, kirsuber, rósapipar
og súkkulaði. Ilmurinn er meðal-
opinn og grípur fljótt í nefið. Fékk
góða dóma í Wine Spectator sem segir
allt sem segja þarf um þetta vín. Prufaðu það
með réttinum hennar Ellu hér að ofan, ég veit
hún mælir með því sjálf.
Verð í vínbúðum ÁTVR: 3.650 kr.
Wolf Blass Eaglehawk
Shiraz (Ástralía)
Fékk þetta vín í veislu um daginn
þar sem gestgjafinn bauð upp á
smárétti alls staðar að úr heiminum
og ég verð að segja ykkur að þarna
er vín á ferðinni sem vert er að gefa
gaum. Fallega litað, kirsuberjatónn,
pínu þurrt og sýruríkt, frekar lítil
tannín en höfugt í alla staði. Ef þú
ert þessi týpa sem vilt eiga vín í
matargerð og til drykkjar, smelltu
þér þá á þetta.
Verð í vínbúðum ÁTVR: 4.090 kr.
AxEL ó.
skrifar: axelo@visir.is
Súkkulaðikaka
Brons
silfur
Gull
á tíu mínútum
Stórfjölskyldan snæðir
saman í fjallakofa í Noregi
„Hér verður boðið upp á pasta og
súkkulaðikökuna góðu í kvöld.“
Veldu vínið
Sætur matur kallar á sætt vín. Með sterkkrydduðum mat á
ekki að hafa kröftug vín. Besta mótvægið við sterkt krydd-
bragð er fremur létt vín sem er sætt eða ávaxtaríkt. Með
feitum mat er gott að vínið sé alkóhólríkt. Vínandinn brýtur
niður fituna. að sama skapi sé maturinn léttur, á vínið
sömuleiðis að vera létt.
Elín María Björnsdóttir: MatGæðinGurinn