Dagblaðið Vísir - DV - 23.02.2007, Page 54
Leikurinn Chili Con Carnage kom út í síðustu viku og er þar á ferðinni frumlegur, skemmti-legur og öðruvísi hasarleikur.
Leikmenn fara í hlutverk Ramiros
Cruz, eða Rams, og hann kallar ekki
allt ömmu sína. Faðir Rams er lög-
regluþjónn og í upphafi leiksins er
hann drepinn af eiturlyfjasamtökum
í Mexíkó. Kemur þá í ljós að pabbinn
var á góðri leið með að knésetja sam-
tökin og ákveður Ram því að klára
hálfnað verk föður síns. Með aðstoð
hins gáskafulla en grimma frænda
Marco er ekkert ómögulegt en rétt-
lætið er oft látið sitja á hakanum í
Mexíkó. Að upplagi minnir leikur-
inn mikið á Grand Theft Auto leik-
ina með klípu af Max Payne, en svo-
leiðis blanda klikkar seint. Í leiknum
er boðið upp á margar nýjungar sem
ekki hafa sést áður í leikjum af þessu
tagi. Skotbardagar hafa sjaldan verið
jafn spennandi, en hægt er að miða
nákvæmar en nokkru sinni fyrr og
taka massíft flott stökkskot eins og
þekktist í Max Payne. Umhverfi leiks-
ins er líka nýjung út af fyrir sig, en
Mexíkó hefur aldrei litið jafn hættu-
lega út. Vopnin eru svo ekki af skorn-
um skammti en nóg er af allskyns
byssum og basúkum. Þá er tónlist-
in einnig til fyrirmyndar en helstu
hip-hop sveitir Suður-Ameríku, til
dæmis Molotov og Delinquent Ha-
bit hafa tekið saman höndum til þess
að tryggja rétta stemmingu. Leikur-
inn kemur aðeins út á hina knáu en
smáu PSP fyrst um sinn en eins og
með aðra vinsæla PSP-leiki eru all-
ar líkur á því að leikurinn komi út á
Playstation 2 fyrir árslok. Chili Con
Carnage er toppleikur. Hann ætti
að gleðja alla þá sem hafa gaman af
góðum hasar og sýnir hve miklu er
hægt að áorka í tölvuleikjagerð með
dassi af frumleika.
dóri dna segir:
&
U m s j ó n : D ó r i D N A N e t f a n g : d o r i @ d v . i s
föstudagur 23. febrúar 200754 Helgarblað DV
leikirtölvu
MortaL
KoMbat á Wii
Mortal Kombat: armageddon er
væntanlegur í apríl á Nintendo Wii. Í
leiknum verður notast við Wii-
fjarstýringuna og hreyfitækni hennar.
Þar framkalla hreyfingar með stýripinn-
anum mismunandi hreyfingar hjá
persónunum í leiknum. Hægt er að
velja úr 60 mismunandi persónum til að
berjast með eða öllum þeim sem komið
hafa fram í leikjunum í gegnum árin.
Crash tag team racing Platinum - PSP
supreme Commander - PC
gunpey - PSP/NDS
Hot Pxl - PSP
Infernal - PC
ghost rider - PS2/PSP/GBA
Warriors - PSP
Kíkið á þessa
TölvuleiKur
SKotgLaðir MexíKóar
Fyrir Eurovision-partíið síðast-
liðinn laugardag settumst við niður
félagarnir og ætlaði ég að sýna þeim
nýjustu viðbótina í leikjasafnið; NFL
Street. Mikil spenna var í loftinu, því
ekki var maður lítið búinn að hrósa
NFL Madden í vinahópnum. Í stuttu
máli, þá slökktum við á leiknum eft-
ir hálftímaspilun og ég efast um að
ég setji leikinn aftur í. Það er ein-
hvern veginn allt að þessum leik.
Leikmenn hreyfa sig asnalega, eru
hægari en í Madden (gríðarleg von-
brigði) völlurinn er þrengri og styttri
og 10 mínútna leikur tekur um 40
mínútur að spila þar sem lítið sem
ekkert gerist, minna en í Madden
að minnsta kosti. Hægt er að fara í
gegnum æfingakerfi þar sem maður
lærir á leikinn en það er gríðarlegur
ókostur við leikinn að það eru ekki
sömu takkar og í Madden. Eitthvað
hefur gerst í hönnunarherbergi EA
Sports Big þegar leikurinn var hann-
aður. Ég held að það yrði allt vitlaust
ef takkarnir væru ekki þeir sömu í
FIFA Street og Fifa 07. Eftir að hafa
orðið Super
Bowl-meist-
ari með Caro-
lina Panth-
ers í Madden
þori ég alveg
að segja að
ég er þokka-
legur í þeim
leik. Að nota
ekki sömu
takka er fá-
ránlegt og
eyðileggur alla stemmingu. Kaninn
kallar þá sem eru vitrir eftir á „mon-
day morning quarterback“ og þeir
sem gerðu þennan leik eiga ekkert
hrós skilið því það er aðeins til eitt
tækifæri á að eiga góð fyrstu kynni.
Ég veit að það á að gefa stjörnur í
þessu en ég get því miður ekki gert
það, gef leiknum fjórar hauskúpur af
fimm mögulegum. Benedikt Bóas
Ný borð
fyrir LoSt
PLaNet
Xbox 360 leikurinn Lost Planet: extreme
Condition hefur átt mikilli velgengni að
fagna undanfarið. Nú hefur Camcom,
framleiðandi leiksins, tilkynnt að
væntanlegur sé aukapakki fyrir leikinn
með að minnsta kosti sjö ný borð fyrir
multi-player hluta leiksins. einnig er
búið að hnýta nokkra lausa enda sem
leikmenn hafa kvartað sáran yfir. Hægt
verður að nálgast aukapakkann á Xbox
Live heimasíðunni, gegn vægu gjaldi
auðvitað.
HouSe-
StjarNa í C&C
Leikkonan Jennifer
Morrison kemur til
með að leika
hlutverk í leiknum
Command &
Conquer 3.
Morrison sem er
þekktust fyrir að
leika í sjónvarps-
þáttunum House
mun leika
Lautinant Kirce
James í gdI-liðinu og munu leikmenn
þurfa að fylgja fyrirmælum hennar í
gegnum allan leikinn. fleiri þekktir
leikarar hafa skráð sig til leiks í þessum
þriðja Command & Conquer, meðal
annars billy dee Williams, Michael
Ironside og Josh Holloway.
Hasarleikurinn Chili Con
Carnage kom út í síðustu
viku. Leikurinn hefur hlot-
ið einróma lof gagnrýnenda
og segja margir að hér sé á
ferðinni stórmerkilegur kok-
teill, nokkurs konar blanda
af Grand Theft Auto og Max
Payne. Eins og er fæst leikur-
inn bara á Playstation Port-
able en líklegt þykir að hann
komi út fyrir stærri leikja-
tölvur seinna á árinu.
NFL Street 3
Íþróttaleikur
PS2 og fl.
TölvuleiKur
gTa-maður
dæmdur
Síðastliðinn miðvikudag gerðist
það að Ryan Brant, fyrrverandi
forstjóri fyrirtækisins Take Two,
játaði sig sekan um að hafa
falsað bókhald fyrirtækisins.
Ryan hefur staðið í löngum og
ströngum málaferlum en sátt
hefur greinilega náðst í málinu.
Take Two átti stóran þátt í gerð
leiksins GTA á sínum tíma og
hlakkar nú í andstæðingum
ofbeldisfullra tölvuleikja. Því nú
er það staðreynd að skapari GTA
er dæmdur glæpamaður.
NFL Street 3 Mikil vonbrigði
og fékk aðeins að staldra við
í tölvunni í 30 mínútur.
Chili Con Carnage Game Informer - 70% Pro-G - 90% Games Master UK - 78% Playstation Official Magazine UK - 80%
og rótSterKt CHiLi
Frumleikinn í fyrirrúmi
Leikurinn er frumlegur og
skemmtilegur með eindæmum.
Ramiro Cruz aðalhetja
leiksins kallar ekki allt
ömmu sína.
vonbrigði