Dagblaðið Vísir - DV - 23.02.2007, Qupperneq 62
FÖSTUDAGUR 16. FebRúAR62 Helgarblað DV
Sandkorn
Hjálmar og
fyrirspurnin
Jóhanna
Sigurðardóttir
og Sigurjón
Þórðarson hafa
bæði spurt út
í kostnað við
Baugsmálin.
Einu svörin sem þau hafa fengið
til þessa hafa verið að engin svör
væri að hafa. Þetta hefur þó ekki
dregið úr þeim kjark heldur hafa
þau nú sameinast og fengið nýja
samherja með sér þau Kolbrúnu
Halldórsdóttur og stjórnarliðann
Hjálmar Árnason. Spurning
hvort aðild þingflokksformanns
Framsóknar auki líkur á svari. Svo
má auðvitað spyrja hvers vegna
enginn sjálfstæðismaður skrifar
undir fyrirspurnina.
Framboð og
eftirspurn
Búast má við að
framboðsmál Frjáls-
lyndra taki á sig
mynd um helgina,
eða í síðasta lagi
fljótlega eftir helgi.
Þannig gæti ráðist
hvort Grétar Mar Jónsson fái ósk
sína uppfyllta og leiði lista flokks-
ins í suðurkjördæmi. Þá á eftir að
koma í ljós hvort annar nýju þing-
manna flokksins fái vænlegt sæti.
Kristinn H. Gunnarsson skipar
auðvitað annað sætið í norðvest-
urkjördæmi og Valdimar Leó Frið-
riksson bíður væntanlega spennt-
ur eftir að vita hvort hann leiði
Frjálslynda í kraganum.
Margrét
undir feldi
Hljótt hefur farið um framboðs-
mál Margrétar K. Sverrisdóttur
undanfarið og reyndar svo mjög
að sumir fyrrum félagar hennar
í Frjálslynda flokknum eru farnir
að gæla við möguleikann á að hún
fari ekki fram. Yrði sú niðurstaðan
kynni að fara svo að þeir sem ella
hefðu kosið Margréti héldu
tryggð við Frjáls-
lynda flokkinn. Á
móti kemur að Mar-
grét er ekki hætt.
Bjartsýnustu
raddir herma að
hún kynni fyrir-
ætlanir sínar á
morgun, laugar-
dag.
Margrétarvandinn
Talandi um
Margréti og
Frjálslynda
flokkinn má
velta einu fyr-
ir sér. Hvers
vegna helst
frjálslyndum
svona illa á
Margrétum? Þeir áttu varaborgar-
fulltrúann Margréti Sverrisdóttur
í Reykjavík. Hún yfirgaf flokk-
inn. Svo státuðu þeir af varaþing-
manninum Sigurlín Margréti Sig-
urðardóttur í suðvesturkjördæmi.
Hún hvarf líka á braut. Spurning
hvort hættandi sé á fleiri slíkar.
Vægt frost um allt land um helgina
“Það er svo merkilegt með veðrið
þessa dagana að það er afskaplega
bærilegt um mest allt land nema með
ströndinni sunnanlands, þar sem
sums staðar hefur verið hávaðarok
og sandbylur. Um helgina virðist hins
vegar ætla að verða lát á þegar vind-
ur hallar sér meira til norðausturs og
norðurs,” segir Einar Sveinbjörnsson,
veðurfræðingur.
Hann segir að um leið kólni heldur
og gera megi ráð fyrir vægu frosti um
nær allt land.
“Suðvestanlands mun sólin skína
glatt, en einhver él eða snjómugga
verður viðloðandi norðanverða Vest-
firði og norðanvert landið. Ekki lítur
út fyrir að fólk komist á skíði á höfuð-
borgarsvæðinu. Enn vantar snjóinn
þó að öllu öðru leyti sé ekki undan
veðrinu að kvarta. Nægur skíðasnjór
er hins vegar í Hlíðarfjalli og á Dal-
vík. Síðan mik-
ill náttúru-
legur snjór í
Oddskarði, loks-
ins eftir nokkur
mögur skíða-
ár þar og skíða-
snjór er einn-
ig á Ísafirði og
ekki má gleyma
Siglufirði.”
...Vernharði Þorleifssyni að leika í
Venna Páer. Vernharð á það
sameiginlegt með...
...Thor Vilhjálmssyni að vera með
svarta beltið í júdó. Thor á það
sameiginlegt...
...Hugleiki Dagsyni að vera
rithöfundur. Hugleikur á það
sameiginlegt með...
...Begga í Sóldögg að hafa
rappað. Beggi á það sameiginlegt
með...
...Jóa Fel að vera bakari. Jói á það
sameiginlegt með...
...Arnari Grant að vera helmass-
aður. Arnar á það sameiginlegt
með...
...Gillzenegger að vera einkaþjálf-
ari. Gillzenegger á það sameigin-
legt með...
...Siennu Miller að vera ljóshærð-
ur. Sienna á það sameiginlegt...
...með Höllu að hafa átt góðar
stundir með Jude Law.
TengslTrúbadorinn og mannvinurinn JoJo varð orðlaus þegar hann
gerði sér grein fyrir að símtalið sem hann fékk austur í Hvera-
gerði var ekkert grín. Gítarvinafélagið hafði ákveðið að færa hon-
um að gjöf forláta, flottan gítar.
JoJo fékk gull-
friðarverkfæri
að gJöf
veðrið um Helgina ritstjorn@dv.is
LAuGArDAGur SunnuDAGur
Halla Vilhjálmsdóttir
á það sameiginlegt með...
“Mér datt ekki annað í hug en þetta
væri Spaugsmál!” segir JoJo, stoltur
og glaður með nýja gítarinn.
Trúbadorinn og mannvinur-
inn JoJo sem glatt hefur marga með
tónlist sinni á götum úti um árabil,
varð fyrir líkamsárás í fyrra eins og
kunnugt er. Kappinn tók upp á því
að forðast þá staði, sem áður höfðu
verið vinnustaður hans.
“Já, ég átti erfitt með að upplifa
þessa vondu reynslu og var farinn
að einangra mig,” sagði JoJo, þar
sem hann sat sæll og glaður í gær
með nýjan gítar í fanginu. “Ég leit-
aði mér áfallahjálpar á Heilsuhæl-
inu í Hveragerði og var að útskrifast
þar áðan. Þar var gott að vera, góð-
ur félagsskapur og allt til alls og þar
gat ég sýnt vilja minn í verki. Þegar
ég fékk upphringingu frá Gítarvina-
félaginu á miðvikudaginn, þar sem
mér var tilkynnt að félagið ætlaði
að gefa mér glænýjan gítar, datt
mér ekki annað í hug en þetta væri
Spaugsmál!” segir hann hlæjandi.
“En þetta er raunin og hér held ég
nú á þessum forláta Ovation 347 gít-
ar, sem er sannkallað gull-friðar-
verkfæri að njóta.”
JoJo segist ætla að taka upp fyrra
starf og syngja fyrir vegfarendur í
miðbænum.
“Ég læt ekki nokkra slæma
skemma lífið,” segir hann. “99% Ís-
lendinga eru virkilega gott fólk, en
vissulega eru til “bömmerar” hér á
landi eins og annars staðar í heim-
inum. Þeir eru bara í svo miklum
minnihluta að þeir mega ekki kom-
ast upp með að varpa myrkri á lífið
í landinu.”
Og þakklæti JoJo til félaga í Gít-
arvinafélaginu er takmarkalaust.
“Veistu það, að kann ekki einu
sinni að koma orðum að því hversu
þakklátur ég er,” segir JoJo, sem brátt
mun gleðja miðborgargesti með tón-
list sinni og stefnir að bjartari fram-
tíð með gullgítarinn sér við hlið.
annakristine@dv.is
DV MYND Júlíus Valsson
6
6
6
6
4
6
6
6
11
1
0
1
1
1
1
1
0
04
6
6
6
18
4
6
6
6
31
1
0
1
1
1
1
1
0
22
Brautarholti 26 · 105 Reykjavík · 512 7000 · dv@dv.is
VANTAR FÓLK
DV vex og vantar að ráða eira fólk til starfa.
· Við leitum að prófarkalesara í fullt starf.
· Við leitum að góðum sölumanni í
auglýsingasölu.