Dagblaðið Vísir - DV - 30.03.2007, Síða 4
föstudagur 30. mars 20074 Fréttir dV
dorrit beinbrotin
Forsetafrúin, Dorrit Mouss-
aieff, beinbrotnaði á skíðum í
Aspen í Colorado í Bandaríkjun-
um fyrr í vikunni. Forseti Íslands,
Ólafur Ragnar
Grímsson, lagði af
stað til Bandaríkj-
anna á miðviku-
dag til fundar-
starfa, en hann
mun nú halda
beint til eiginkonu
sinnar.
Ekki hefur
náðst í Örnólf
Thorsson forsetaritara vegna
málsins, en hann er á ferðalagi
með forsetanum. Skrifstofa for-
setans staðfesti þessa frétt.
Ólöglegar
umbúðir
Neytendastofa hefur bannað
Eggerti Kristjánssyni hf. notkun
umbúða Rauðs Royal Ginsengs
sökum þess hve sláandi líkar
þær eru umbúðum Rauðs Eðal
Ginsengs.
Einnig telur Neytendastofa
í ákvörðun sinni fullyrðingar
um gæðaeftirlit vörunnar sem
birtast á umbúðum þess vera
ósannaðar og því er fyrrgreindu
fyrirtæki skylt að fjarlægja þær.
Þó kemur fram í ákvörðuninni
að fyrirtækinu er heimilt að selja
þá vöru Rauðs Royal Ginsengs
sem fyrir er í verslunum.
sinfónía atla
Heimis í Prag
„Ég verð að viðurkenna að
umhverfið hafði áhrif á útkom-
una,“ segir Atli Heimir Sveins-
son, tónskáld
í viðtali við
tímaritið
„Rudolfinum
Revue“ sem
gefið er út
af tónleika-
höllinni Ru-
dolfinum í
Prag. „Í fyrra
var vorið kalt
hjá ykkur, veturinn langur eins
og á Íslandi. En landslagið var
nýtt fyrir mér, skógar, á og gam-
all kastali - og það ýtti við hug-
myndafluginu,“ er meðal þess
sem Atli Heimir segir í ítarlegu
viðtali við blaðið.
Verk Atla Heimis verður flutt
í Rudolfinum í kvöld og er það í
fyrsta skipti sem Fílharmóníu-
sveit Prag flytur verk hans undir
stjórn hins virta Zdenék Mácal.
Fokillir
kjósendur
„Kjósendur VG í Mosfells-
bæ eru fokillir út í flokkinn
því þeim finnst hann hafa
fórnað umhverfisstefnu sinni
þegar þeir gengu í meiri-
hlutasamstarf við Sjálfstæð-
isflokkinn,“ segir Sigrún
Pálsdóttur stjórnarmað-
ur í Varmársamtökunum
sem buðu fulltrúum Vinstri
grænna til fundar við sig í
fyrrakvöld. Fulltrúi flokks-
ins í bæjarstjórn mætti ekki
á fundinn en það gerði Álf-
heiður Ingadóttir, frambjóð-
andi Vinstri grænna.
InnlendarFréttIr
ritstjorn@dv.is
Tók nektarljósmyndir af áfengisdauðri stelpu og var sýknaður:
Gátu ekki sannað lostafullan hug
„Ég býst við að stúlkan muni taka
niðurstöðunni illa,“ segir Stefán Ól-
afsson, réttargæslumaður stúlku
sem nektarmyndir voru teknar af og
þær sýndar öðru fólki.
Maðurinn sem tók myndirn-
ar var sýknaður af ákæru. Ástæð-
an var vegna þess að það tókst ekki
að sanna að hann hafi tekið mynd-
irnar með lostafullt athæfi í huga.
Hann var ákærður fyrir blygðunar-
brot og var sakaður um að hafa sýnt
fimm manneskjum nektarmyndir
af stúlkunni. Það þótti sannað fyrir
héraðsdómi. Atvikið átti sér stað á
Sauðárkróki.
„Ákæruvaldið þurfti að sanna
að ekki væri um lostafullt athæfi að
ræða, þar af leiðandi þurftu þeir að
sýna fram á huglæga afstöðu ger-
andans,“ segir Stefán um erfiða
stöðu í málinu.
Í dómi segir að stúlkan hafi farið
með hinum sýknaða heim til hans
ásamt öðrum dreng. Þar eiga mynd-
irnar að hafa verið teknar en sjálf
var stúlkan drukkin og man ekki
eftir að hafa gefið samþykki sitt við
myndunum. Myndirnar sem piltur-
inn sýndi þeim sem sjá vildu voru
mjög opinskáar. Það var meðal ann-
ars mynd af vasaljósi að lýsa upp
sköp stúlkunnar.
Pilturinn sýndi fjórum karlmönn-
um myndirnar sem voru í síma hans
og einni stúlku. Allir þessir aðilar
játuðu fyrir héraðsdómi að hafa séð
myndirnar.
Sjálfur vill Stefán ekki leggja efn-
islega mat á málið enda sótti hann
það ekki, heldur var eingöngu rétt-
argæslumaður stúlkunnar.
valur@dv.is Sauðárkrókur ungur maður á sauðárkróki tók nektarmyndir af stúlku og sýndi öðru
fólki þær.
Unicef á Íslandi vinnur að langtímaverkefni á norðvesturströnd Afríku. Barist er gegn
malaríu með dreifingu flugnaneta. Margir grunnskólar hafa verið byggðir og aðgangur
að vatni og hreinlætisaðstöðu verið bættur.
Byggja grunnskÓla
í gíneu- BissÁ
„Við vildum hjálpa þar sem þörfin er
mikil í landi sem er ekki of stórt fyrir
okkar samtök,“ segir Stefán Stefáns-
son, framkvæmdastjóri Unicef á Ís-
landi. Samtökin hafa unnið að upp-
byggingu menntunar og heilbrigðis
í Gíneu-Bissá á norðvesturströnd
Afríku síðan 2005.
Baugur, FL Group og Fons styrktu
verkefnið með 135 milljónum sem
fara í uppbyggingu grunnskóla í
landinu. Auk þess söfnuðust 80
milljónir í uppboði sem fór fram
árið 2004 á hátíðarkvöldverði sem
haldin var til heiðurs Roger Moore
sendiherra Unicef.
„Fljótlega settum við okkur í
samband við hjónin Jónínu Einars-
dóttur mannfræðing við HÍ og Geir
Gunnlaugsson yfirlækni miðstöðv-
ar heilsuverndar barna sem bjuggu
í Gíneu-Bissá á árunum 1990-98 og
eru einhverjir mestu sérfræðingar
í veröldinni í málefnum landsins,“
segir Stefán.
Barist gegn malaríu
Mánaðarlega deyja í Gíneu-Bissá
um þúsund börn yngri en fimm
mánaða. Meirihluti þeirra deyr úr
malaríu. Aðallega smitast fólk af
stungum moskítóflugna sem herja
á fólk á kvöldin og nóttunni. „Sem
dæmi um útbreiðslu sjúkdóms-
ins þá þurfti menntamálaráðherra
landsins að afboða fund með okk-
ur sökum þess að hann veiktist af
malaríu,“ segir Stefán.Til að sporna
við útbreiðslu sjúkdómsins keyptu
samtökin 240 þúsund flugnanet.
Netið er að hluta til ofið úr eitruðum
þráðum og endist eitrið í fimm ár.
Unicef mælir með að öll börn und-
ir fimm ára aldri, konur með barn á
brjósti og barnshafandi konur noti
netið að staðaldri.
Stærstur hluti netanna var af-
hentur fyrir síðustu jól í norðaust-
ur hluta landsins. „Við gefum ekki
hverjum sem er netin og reynum
að hafa stjórn á dreifingunni til að
koma í veg fyrir brask,“ segir Stefán
og benti á að samhliða dreifingunni
var fólki boðið A-vítamín og orma-
lyf.
„Við höfum stuðlað að uppbygg-
ingu 130 skóla í þremur af átta hér-
uðum landsins,“ segir Stefán. Veik-
byggð hús voru notuð sem skólar
og voru sextíu slíkra bygginga end-
urbyggðar. Sum húsanna voru laus-
lega samansett úr pálmatrjám og
pálmagreinum. Auk þess voru sjö-
tíu nýbyggingar reistar. Hver bygg-
ing hýsir þrjár kennslustofur. „Hér
þarf ekki að byggja úr járnbentri
steinsteypu“ segir Stefán og bendir
á að veðráttan í landinu sé svo mild
að mikilvægast sé að skýla sér fyrir
sólinni.
Stuðla að samkennd
Í hvern skóla ganga rúmlega
eitt hundrað nemendur. Stunda-
skráin er mun styttri en Íslending-
ar eiga að venjast. „Við viljum bæta
kennslugögn og þróa nýja kennslu-
skrá,“ segir Stefán. Samtökin leggja
áherslu á grunnfögin, lestur, skrift
og reikning.
Auk þess hefur Unicef lagt mikla
áherslu á að skapa samkennd með-
al nemenda. Fánar hafa verið keypt-
ir og þjóðsöngurinn er sunginn svo
eitthvað sé nefnt.
Engra skólagjalda er krafist í
þeim skólum sem Unicef styður.
„Almennt ganga fleiri strákar í skóla
í landinu og ef skólagjalds er krafist
þá senda foreldar frekar syni sína
en dætur,“ segir Stefán. Stúlkurnar
fara síður í skóla ef hreint vatn og
góð hreinlætisaðstaða er ekki fyrir
hendi auk þess sem þær geta verið
smeykar við að ferðast til skóla ef
hann er of langt frá heimaþorpinu.
Stefán segir að þeir skólar sem þeir
byggi séu allir með góða hreinlæt-
isaðstöðu, auk þess sem reynt er að
tryggja aðgang að hreinu vatni með
því að grafa vatnsbrunna. „Brunn-
arnir nýtast öllu samfélaginu, en
ekki bara nemendum,“ segir Stefán
sem segir samtökin nú þegar hafa
lagt drög að víðtækari aðstoð við
landið.
„Við gefum ekki hverj-
um sem er netin og
reynum að hafa stjórn
á dreifingunni til að
koma í veg fyrir brask,“
Moskítónet afhent
íbúum í Guinea
Bissau stefán
stefánsson var meðal
þeirra sem afhentu
blaðamaður skrifar: skorri@dv.is
Skorri GíSlaSon
Moskítónet afhent
íbúum í Gíneu-Bissá
stefán stefánsson var
meðal þeirra sem afhentu
íbúum gíneu-Bissá
flugnanet til að sporna
gegn stungum moskító-
flugna.